Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 12
Helgarblað 6.–9. júní 201412 Fréttir
S
almann Tamimi, fyrrverandi
formaður Félags múslima
á Íslandi, segist hafa fund-
ið fyrir auknum fordómum
gagnvart múslimum eftir
að Framsóknarflokkurinn blandaði
trúarbrögðum þeirra inn í umræðu
um úthlutun lóða og húsnæðiseklu
í Reykjavík. Þetta byggir hann bæði
á samtölum við aðra múslima og á
þeim morðhótunum sem honum
bárust í byrjun vikunnar.
„Það hefur gríðarleg áhrif þegar
rasistar og ofstækismenn á Íslandi
fá beinan stuðning frá elsta stjórn-
málaflokki landsins, flokki sem fer
með forsætisráðuneytið í ríkisstjórn
Íslands,“ segir Salmann. Hann tel-
ur að með málflutningi sínum um
múslima og moskur hafi Framsókn
og flugvallarvinir gefið fordómum og
hatursorðræðu sem áður blundaði
undir yfirborðinu ákveðið lögmæti.
Á samfélagsmiðlunum gengur nú
mynd af Salmann ofan í ruslafötu sem
á stendur „förgun“, en myndin birtist
fyrst á Facebook-síðunni Mótmæl-
um mosku á Íslandi. Þegar DV spurði
Guðfinnu Jóhönnu Guðmunds-
dóttur, nýkjörinn borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, á dögunum
hvað henni þætti um stuðning rasista
og forsvarsmanna fyrrnefndrar Face-
book-síðu við Framsóknarflokkinn
svaraði hún: „Þurfum við ekki að taka
þessa umræðu upp í þjóðfélaginu,
eins og aðra umræðu? Ég tel að virkja
þurfi íbúalýðræði af meiri krafti en
áður hefur tíðkast.“
„Loksins fengið lóð“
Salmann bendir á að fylgi Fram-
sóknar og flugvallarvina hafi tekið
stökk eftir að Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, oddviti flokksins, hvatti
til þess í viðtali og á Facebook að út-
hlutun lóðar til byggingar mosku
yrði afturkölluð. Ummælum sínum
fylgdi Sveinbjörg eftir með því að
deila og „læka“ efni á Facebook þar
sem alhæft var um múslima og „her-
menn Íslam“, fullyrt að innflytjend-
ur væru ófúsir að aðlagast og fjölgun
múslima í Noregi gerð tortryggileg.
Skömmu síðar sagðist Guðfinna Jó-
hanna ekki hafa áhyggjur af því hvort
jafnræðisreglan væri brotin gagn-
vart múslimum með því að aftur-
kalla úthlutun lóðarinnar, enda væri
mikilvægara að fólk hefði húsnæði í
Reykjavík. Með málflutningi Fram-
sóknar var markvisst gefið í skyn að
lóðaúthlutun til múslima væri bein-
línis hluti af húsnæðisvandanum í
Reykjavík. Þannig var fjárhagslegum
hagsmunum Reykvíkinga stillt upp
andspænis múslimum og þeir fram-
andgerðir.
Salmann segir eðlilegt að rætt sé
um innflytjendamál og ólíka menn-
ingarheima með yfirveguðum hætti.
Hins vegar hafi það alvarlegar af-
leiðingar þegar stjórnmálamenn
hvetja til þess að jafnræðissjónar-
miðum og forsendum raunveru-
legs trúfrelsis sé kastað fyrir róða.
„Múslimar hafa loksins fengið lóð
eftir 14 ára bið og það hafa ekki kom-
ið upp vandamál í kringum múslima
á Íslandi. Það er lágkúrulegt að Fram-
sókn hafi kosið að nota andúð gegn
minnihlutahópi sem vopn í kosn-
ingabaráttunni sinni,“ segir hann.
Borgin yrði skaðabótaskyld
Umsókn Félags múslima á Íslandi um
mosku í Reykjavík hefur velkst um í
borgarkerfinu síðan árið 2000 þegar
félagið sótti fyrst um leyfi, en sú tillaga
gerði ráð fyrir lóð við Stekkjarbakka í
Elliðaárdal. Í fyrra samþykkti borg-
arráð loksins deiliskipulag sem ger-
ir ráð fyrir mosku í Sogamýri á milli
Suðurlandsbrautar og Miklubraut-
ar. Byggingin verður 800 fermetrar
að flatarmáli og með níu metra háan
bænaturn.
Í stjórnsýslulögum er ekki að finna
lagastoð fyrir því að afturkalla lóðina.
Samkvæmt 25. grein laganna get-
ur stjórnvald „afturkallað ákvörðun
sína að eigin frumkvæði, sem til-
kynnt hefur verið aðila máls, þegar:
1. það er ekki til tjóns fyrir aðila, eða
2. ákvörðun er ógildanleg.“ Hvorugt
á við í tilviki lóðaúthlutunarinnar til
Félags múslima. Bæði Sveinbjörg og
Guðfinna eru lögfræðimenntaðar
og vita að ef lóðin verður afturköll-
uð verður Reykjavíkurborg skaða-
bótaskyld. „Hún getur ekki einu sinni
breytt ákvörðuninni lögum sam-
kvæmt. Hún er bara að plata og segir
þetta bara til að næla sér í fylgi hálf-
vita,“ segir Salmann.
Ljón í veginum
Framsókn og flugvallarvinir eru ekki
að finna upp hjólið, því ýmsir aðr-
ir hafa streist gegn því í gegnum tíð-
ina að múslimar fái að byggja mosku
í Reykjavík. Sem áður segir hefur
gætt ákveðinnar tregðu í kerfinu líkt
og löng bið eftir bænahúsi ber vitni
um. Þá hefur múslimum verið ógnað
og reynt að ala á tortryggni gagnvart
þeim á meðal íbúa Sogamýrar. Árið
2012 fengu nokkrir þeirra bréf þar
sem varað var við byggingu mosku
með myndum af hauskúpu og blóði
og texta sem hafði að geyma alhæf-
ingar og sleggjudóma um múslima
og moskur.
Í fyrra var svo svínshausum dreift
á lóð múslima í Sogamýri. Um dæmi-
gerðan hatursglæp var að ræða en
starfsmenn Reykjavíkurborgar hentu
sönnunargögnunum í ruslið að lög-
reglu viðstaddri og gerði lítið úr mál-
inu í fjölmiðlum. Félag múslima á Ís-
landi kærði verknaðinn til lögreglu
og eftir að maður viðurkenndi sök í
viðtali á Útvarpi Sögu var hann yfir-
heyrður. Þegar DV ræddi við Helgu
Völu Helgadóttur, lögmann múslima,
fyrr í vikunni sagðist hún ekki hafa
fengið nein svör frá lögreglunni. Á
fimmtudaginn kom svo fram í Frétta-
blaðinu að ekki yrði ákært í málinu.
„Er þetta réttarríki?“
Líkt og Salmann bendir á hefur auk-
in harka færst í hatursáróður gegn
múslimum í netheimum eftir að
framsóknarmenn gerðu mosku að
viðfangsefni kosningabaráttunn-
ar í Reykjavík. Hefur lögreglan verið
gagnrýnd fyrir að bregðast ekki við.
„Af hverju er lögreglan ekkert
búin að aðhafast þegar fyrir liggja
morðhótanir frá nafngreindum
einstaklingum gegn nafngreindum
einstaklingum? Eru morðhótanir
sem sagt í lagi?“ spyr Svavar Gests-
son, fyrrverandi ráðherra, í fyrir-
spurn til lögreglu á Facebook og
bætir því við að ástandið sé í senn
fyrirlitlegt og hættulegt. „Og hvað
með þá sem komu fyrir svínshaus-
um á lóðinni fyrir moskuna, er rann-
sókn þess máls lokið? Er þetta réttar-
ríki?“
Í svari lögreglunnar er 233. grein
almennra hegningarlaga, sem fjallar
um hótanir, túlkuð á þá leið að kæra
þurfi að liggja fyrir til að lögregla geti
brugðist við í slíkum málum.
Múslimar orðnir að boxpúða
Salmann Tamimi kallar eftir því að
stjórnmálamenn átti sig á því að
orðum fylgir ábyrgð. „Hugmyndir
um að múslimar eigi ekki að njóta
jafnræðis á við aðra og ekki að fá að
iðka sína trú í friði hafa bein áhrif á
aðra og veita hatri á minnihlutahóp-
um lögmæti,“ segir hann. Þá bendir
hann á að orðið sé mun algengara
og viðurkenndara að alhæfa um
múslima en um aðra hópa. Fólk seg-
ir og skrifar hluti um múslima og of-
beldi sem það myndi aldrei láta hafa
eftir sér um til dæmis kristna menn.
„Múslimar eru orðnir eins konar
boxpúði fyrir rasista sem dreifa um
þá lygum og óhróðri.“
Hann segir að múslimar mæti
fordómum á flestum sviðum daglegs
lífs. „Ef einhver heitir Muhammed
er erfitt fyrir hann að fá vinnu. Hver
ætti að ráða menn í vinnu sem eru
stimplaðir sem hryðjuverkamenn
eða kvennakúgarar?“ spyr Salmann.
Þá bendir hann á að með því að
jaðarsetja og ala á fordómum gagn-
vart múslimum fái þeir á tilfinn-
inguna að þeir tilheyri ekki íslensku
samfélagi. Þannig myndist gjá sem
sé slæm fyrir alla.
Salmann segir Framsóknarflokk-
inn vera á hættulegri vegferð en tek-
ur jafnframt fram að þetta sé ekki í
fyrsta sinn í sögunni sem flokkurinn
elur á útlendingahatri. „Framsókn
er að stökkva á vagn þjóðernishyggj-
unnar. Við verðum að horfast í augu
við það hvernig þessi flokkur er og
fyrir hvað hann stendur. Þeir stjórn-
málaflokkar sem aðhyllast í raun og
veru jafnræði, frjálslyndi og trúfrelsi
hljóta að lýsa því yfir að þeir vilji ekki
vinna með svona flokki.“ n
Framsókn kynti
undir fordómum
n 14 ára bið eftir lóð á enda n Aðgerðarlaus lögregla, svínshöfuð og hatur
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is 14 ára bið Múslimar
eru einn þeirra minni-
hlutahópa á Íslandi
sem verða fyrir hvað
mestum fordómum.
Þeir hafa beðið eftir
lóð undir mosku í 14 ár.
Mynd Kristinn Magnússon
Kærði morðhótanir Salmann Tamimi segir að hatursáróður gegn múslimum hafi rokið
upp úr öllu valdi eftir að Framsóknarflokkurinn blandaði trúarbrögðum þeirra inn í umræðu
um lóðaúthlutanir. Mynd dV Ehf / sigtryggur ari
Ljótari hatursáróður Múslimar hafa
þurft að þola ljótari hatursáróðri og aukna
fordóma eftir að Framsóknarflokkurinn
blandaði trúarbrögðum þeirra inn í umræðu
um úthlutun lóða og húsnæðiseklu í
Reykjavík. Mynd ÞorMar V gunnarsson
„Eru morð-
hótanir
sem sagt í lagi?
„Múslimar eru
orðnir eins konar
boxpúði fyrir rasista sem
dreifa um þá lygum og
óhróðri.
MIKLABRAUT