Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 21
Umræða 21Helgarblað 6.–9. júní 2014
Ég kem af fjöllum Ég er búin að gráta á
hverjum degi
Nú er heilinn á mér byrjaður
að pæla eitthvað
Börn Ragnheiðar Örnu Arnardóttur voru tekin af henni – Akureyri Vikublað Jón Gnarr kvaddi borgarstjórn – DV.is
A
ð sveitarstjórnarkosningum
loknum er ekki annað hægt
en að dást að hárinu á Degi
B. Eggertssyni, sem virð
ist mun vinsælli en flokkur
hans. Og skyldi engan undra, hárlaus
maður hefur aldrei setið í embætti
borgarstjóra nema þá hann hafi hul
ið lýti sitt vel. Sá sem kemst næst því
er Gunnar Thoroddsen og hátt enni
hans, en þá þarf að leita rúma hálfa
öld aftur í tímann.
Sömu sögu er að segja af lands
málunum. Nánast er útilokað að skalli
rísi hærra en að verða fjármálaráð
herra, og þá aðeins á miklum um
rótstíma. Það fyrirgefst að vera þéttur
í holdum, en þar eru mörkin dregin.
Framsóknarmennirnir Halldór Ás
grímsson og Ólafur Jóhannesson voru
reyndar alveg á mörkunum hárlega
séð, enda tókst hvorugum að sitja í
heilt kjörtímabil. Ólafur var þó, ólíkt
Halldóri, kosinn til starfans, en það
var á 8. áratugnum, líklega síðasta
áratugnum þar sem sköllóttir menn
áttu erindi í æðstu embætti. Þetta á
einnig við þegar forsetar eru skoðaðir.
Kristján Eldjárn var með landsföður
legt enni en núverandi forseti er með
myndarlegan sveip. Því hlýtur mað
ur að spyrja sig hvernig stjórnmála
þróunin hefði verið ef Steingrímur J.
væri með krullurnar hans Davíðs og
Davíð með skallann hans Steingríms.
Níðingsverk Kennedys
Þetta er þó engan veginn séríslenskt
fyrirbæri. Síðasti skallinn til að vera
kosinn í embætti forseta Bandaríkj
anna var Eisenhower á 6. áratugnum,
á þeim tímum þegar karlmenn gengu
um með höfuðföt við flest tækifæri. En
árið 1960 framdi hinn hárprúði Kenn
edy hið mikla níðingsverk að taka
ofan og flagga höfuðprýði sinni við
hvert tækifæri, og karlmenn hafa al
mennt ekki gengið um með hatt síð
an. Kollvikunum hans Nixons tókst
reyndar tvisvar að vera kosin í emb
ætti en festi þá skoðun endanlega í
sessi að háu enni fylgdi illt innræti.
Eftirmaður hans Ford var ekki kosinn
hvorki þá né síðar og allir eftirmenn
hans hver öðrum fríðari.
Líklega var það Tony Blair sem
kom með kynþokkann í bresk stjórn
mál og fékk þjóðina þar með til að
gleyma lærdómi seinni heimsstyrj
aldar, að hinn sköllótti Churchill
sigraðist á hinum hærða Hitler. Bla
ir þótti hafa mikinn æskuþokka og
íhaldsmenn reyndu á skáka honum
með hinum átta árum yngri William
Hague, en gættu ekki að því að Hague
var nauðasköllóttur. Tilraunir hans til
að höfða til yngri kjósenda með því að
ganga um með derhúfu þóttu í besta
falli kjánalegar, enda galt hann afhroð
gegn Blair þrátt fyrir hækkandi kollvik
hins síðarnefnda.
Berlusconi og hárígræðslan
Í Noregi voru allir forsætisráðherr
ar sköllóttir fram að Gro Harlem, en
síðan hafa þeir verið hærðir og fríðir,
svo mjög að var gjarnan var talað um
„pikenes Jens.“ Hvort sem um er að
kenna áhrifum sjónvarps og sjón
rænna miðla eða auknum kven
réttindum er það svo að skallarnir
hafa átt auðveldar uppdráttar í lönd
um SuðurEvrópu, þar sem feðra
veldið er almennt sterkara á velli. Að
Sarkozy einum undanskildum hafa
allir forsetar fimmta franska lýðveldis
ins verið afar ennisháir og jafnvel al
veg sköllóttir, eins og Mitterand, með
hjákonur sínar í eftirdragi og allt.
Í landinu sem femínisminn
gleymdi, Ítalíu, hefur hárleysið al
mennt ekki háð mönnum, en jafnvel
Berlusconi þótti þó öruggara að láta
bæta aðeins í á stjórnmálaferli sín
um. Líklega urðu þá einhvers konar
vatnaskil, því hinn ungi og myndar
legi Matteo Renzi er ekki aðeins vel
hærður, heldur líka fyrsti forsætis
ráðherrann til að skipa konur í stjórn
ríkis fyrirtækja.
Hinir hárprúðu leiðtogar Vestur
landa takast nú á við Pútín, sem er
að missa sitt og verður ekki síður lík
ur Bondskúrki fyrir vikið. Gengur þá
aftur minni sem ef til vill má rekja aft
ur til Kennedys gegn Krútsjoff, Súper
mann gegn Lex Lútor eða jafnvel alla
leið aftur til Íslendingasagnanna, þar
sem hetjur voru oftast kynntar með
þeim orðum að þær væru vel hærð
ar. Eina undantekningin er Egill nokk
ur og hans slekti, sem reyndar teljast
frekar andhetjur en eru ekki síður
áhugaverðir fyrir vikið. n
Hárið á Degi og stjórnmálasagan„Tilraunir hans til að
höfða til yngri kjós-
enda með því að ganga
um með derhúfu þóttu í
besta falli kjánalegar.
Valur Gunnarsson
skrifar
Kjallari
Heilabrot allra hinna
Þ
að var í útlöndum, þar sem
hið ómögulega getur alltaf
gerst. Þar bjó þessi undar
legi maður. Hann hafði
þann háttinn á, að hann
fór alltaf í buxurnar á röngunni,
og ekki nóg með það, heldur sneri
buxnaklaufin aftur. Hann var ein
hvern veginn kolöfugur í buxum á
röngunni. Það fór þannig, að til að
byrja með, mætti maður þessi ekki
beinum fordómum, heldur ákvað
fólk að pískra og hvísla. Baktalið
heyrði hann ekki og allar vanga
veltur fólksins fóru framhjá mann
inum sem klæddi sig á annan hátt
en aðrir menn. Umtalið ágerð
ist. Og ef buxnamaðurinn, einsog
hann var kallaður, hefði reynt að
bera sig eftir upplýsingum um eigið
ágæti, hefði hann eflaust fundið
eitt og annað bitastætt. Hann hefði
kannski mátt renna augum yfir álit
fólksins á netinu. Hann hefði t.d.
getað farið á einhverja tískusíðuna
og þar hefði hann e.t.v. rekið aug
un í orðræðu þeirra sem ráðast
af yndislegu vægðarleysi og með
kjafti og klóm gegn þeim sem ekki
kunna að klæða sig. En okkar mað
ur var ekki fróður um kommenta
kerfi netmenningar vorra daga.
Hann lét orðagjálfrið framhjá sér
fara og storminn í vatnsglösum
orðhákanna lét hann sem vind um
eyru þjóta. Alltaf ágerðist umtalið
og það fór svo rækilega úr böndun
um að ein af þessum konum sem
teljast hve mestir smartfræðingar
samtímans, safnaði tískufrömuð
um til málþings. Umræðuefnið var
klæðnaður mannsins sem hafði
fengið uppnefnið buxnamaðurinn.
Nú var svo komið að umtalið fór
ekki framhjá neinum lifandi manni
nema sjálfum buxnamanninum.
Hann einn var laus við vitneskj
una um ágæti þess að vera klæddur
samkvæmt hinni svokölluðu tísku.
Hann vakti það sem hann sjálf
ur hefði væntanlega kallað óverð
skuldaða athygli. Netheimar log
uðu af óhróðri, rætni og ömurlegu
umtali í garð buxnamannsins. Og
svo gerðist hið óvænta; spjótum
var beint að forstjóra fyrirtækisins
sem buxnamaðurinn starfaði hjá.
Sá ágæti yfirmaður sá þann kost
vænstan, að kalla okkar mann á
teppið. Vegna þess að þú hefur um
langa hríð verið öfugur í buxum á
röngunni, höfum við í stjórn fyrir
tækisins ákveðið að láta þig fara,
sagði forstjórinn. Okkar maður
stamaði uppúr sér nokkrum van
hugsuðum setningum en sagði
svo: Ekki gat ég ímyndað mér að
einungis mætti klæðast buxum
með einum tilteknum hætti. n
Vegferð okkar vart er greið
og víst er frelsið glatað
þegar aðeins eina leið
allir geta ratað.
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
Myndin Í dómsal Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Bjarni Jóhannesson voru allir sýknaðir í Aurum-málinu svokallaða á fimmtu-dagsmorgun. Hér má sjá Guðjón St. Marteinsson, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, bíða þess að þinghald hefjist. MyNd SiGtRyGGuR ARi
1 Fann falleg skilaboð frá dóttur sinni eftir andlát
hennar. Dean Orchard, faðir Athenu
Orchard, tólf ára breskrar stúlku sem lést
úr krabbameini síðastliðinn miðvikudag,
var orðlaus þegar hann fann einlæg og
ítarleg skrif dóttur sinnar falin á bak við
spegil í herbergi hennar. „Ást snýst ekki
um það hverjum þú sérð fyrir þér að eyða
ævinni með, heldur snýst ást um það
hverjum þú getur ekki séð fyrir þér að
eyða lífinu án,“ skrifaði Athena.
Lesið: 16.990
2 Börnin tekin af Ragn-heiði: „Ég er búin að
gráta á hverjum degi“ Guð minn
góður hvað ég er búin að gráta mikið,“
segir Ragnheiður Arna Arnarsdóttir,
móðir tveggja barna sem barna-
verndaryfirvöld á Akureyri úrskurðuðu
í 12 mánaða fóstur 9. maí síðastliðinn.
Börnin voru tekin af henni þvert gegn
vilja yfirgeðlæknis á Akureyri.
Lesið: 15.803
3 Hús Stracta voru mygluð Myglu var að finna í gistiálmum
Stracta-hótelsins á Hellu þegar verið var
að vinna í þeim í vetur. Húseiningunum
hafði verið breytt þannig að hægt væri
að nota þær í hótelrekstur.
Lesið: 8.365
4 Bjarni svarar Jóhönnu með því að hnýta flugu
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna-
hagsráðherra, birti mynd á Facebook-
síðu sinni af nýhnýttri flugu. Augljóst
þótti að Bjarni var að líkja flugunni við
Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi
forsætisráðherra, sem gagnrýndi Bjarna
og Sigmund Davíð Gunnlaugsson fyrir að
þekkjast boð í laxveiði.
Lesið: 7.186
5 Makker Rooneys í trekanti ætlar að deila
kynlífssögum af honum í
sjónvarpi Fyrrverandi vændiskon-
an Helen Wood verður þátttakandi í
raunveruleikaþættinum Big Brother þar
sem hún ætlar að deila sögum af Wayne
Rooney í bólinu.
Lesið: 5.570
Mest lesið
á DV.is
Gunnar Þorsteinsson vissi ekki að honum hefði verið vikið úr Krossinum – DV.is