Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 32
32 Neytendur Helgarblað 6.–9. júní 2014
n Einföld röð af seldum dósum á ári næði 16,5 km. upp í loftið n Sparar 100.000 á ári ef þú hættir
tóbaksdósaturninn
Þetta er íslenski
E
f þú tækir seldar neftóbaks-
dósir á Íslandi í fyrra og
staflaðir þeim upp, einni
ofan á aðra, myndi tóbaks-
dósaturninn ná rúma
16,5 kílómetra upp í himininn.
Sprenging hefur orðið í neyslu á ís-
lenska neftóbakinu undanfarin ár
en í dag notar meirihluti neytenda
það í vör. ÁTVR selur hátt í þrjá-
tíu tonn af neftóbaki á ári en sam-
kvæmt síðustu mælingum taka 15
prósent karla á aldrinum 18–24
ára í vörina daglega og 13 prósent
karla á aldrinum 25–-34 ára. Spara
má hátt í hundrað þúsund krónur
á ári með því að hætta.
Dýr ávani
Verð á hverri tóbaksdós hefur
hækkað mikið á liðnum árum
samhliða vinsældum tóbaksins en
margir sáu það sem ódýrari val-
kost en reyktóbak þegar verð tók
að hækka verulega með aukinni
neyslustýringu stjórnvalda. Í dag
er algengt verð á tóbaksdós í versl-
unum í kringum 1.900 krónur.
Samkvæmt grófum útreikning-
um DV notar sá sem tekur dug-
lega í vörina á hverjum degi um
eina 50 gramma dós á viku. Sum-
ir nota meira aðrir minna. Maður
sem notar eina dós á viku notar 2,6
kíló af tóbaki á ári og hefur á því
tímabili sóað 98.800 krónum til að
svala nikótínfíkn sinni.
16 kílómetra hár dósaturn
Samkvæmt tölum frá ÁTVR voru
27,6 tonn af íslensku neftóbaki
seld á síðasta ári. Það samsvar-
ar 552 þúsund 50 gramma dós-
um. Blaðamaður ákvað að setja
það magn í samhengi og leika sér
aðeins með tölurnar svo lesendur
gætu glöggvað sig á þessu ótrú-
lega magni. Tekin voru mál á 50
gramma tóbaksdós og reyndist
hún vera 3 sentímetrar á hæð og
7,5 sentímetrar í þvermál.
Sé seldum dósum síðasta árs
staflað upp myndi sá tóbaksturn
gnæfa rúmlega 16,5 kílómetra
yfir jörðu. Það jafnast á við rúm-
lega 220 Hallgrímskirkjuturna.
Hæsta bygging í heimi er hinn 830
metra hái skýjakljúfur Burj Khalifa
í Dúbaí. Það þyrfti því tæplega 20
slíka til að skáka íslenska tóbaks-
dósaturninum.
Næði langleiðina til Keflavíkur
Sé hverri seldri dós raðað upp
hlið við hlið myndi sá tóbaksdósa-
stígur teygja sig 41,4 kílómetra
vegalengd.
Til að setja þá vegalengd í sam-
hengi fyrir einhverja þá myndi
þessi stígur dekka þá 38 kíló-
metra vegalengd sem er frá Akra-
nesi til Borgarness og næstum því
duga þá 46 kílómetra sem eru frá
Reykjavík til Keflavíkur samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni.
Annað dæmi sem hægt er að
nefna er að ef lögð yrði röð af sam-
hliða tóbaksdósum frá Gróttu á
Seltjarnarnesi að gatnamótum
Miklubrautar og Vesturlandsvegar
í Reykjavík, miðað við beina loft-
línu, væri hægt að fara fjórar ferðir
fram og til baka.
Sala dregist saman
Ef rýnt er í sölutölur á neftóbaki
frá ÁTVR þá virðist notkunin vera
að leita í jafnvægi eftir stanslausa
aukningu frá árinu 2004 til 2011.
Á því tímabili nam aukningin 238
prósentum út frá seldum tonn-
um. Árið 2004 voru 12,7 tonn seld
en metárið 2011 voru 30,2 tonn
seld. Það dró síðan heldur úr sölu
árið 2012 (28,8 tonn) og enn árið
2013 (27,6 tonn) sem fyrr segir.
ÁTVR er með tóbak í heildsölu þar
sem sölueining er 20 stykki af 50
gramma dósum. 1. janúar 2007 var
heildsöluverð á einingunni 6.860
krónur. Þann 1. janúar 2014 var
verðið búið að hækka upp í 29.243
krónur, eða um 326 prósent. Þetta
ætti að gefa ykkur hugmynd um
hversu mikil hækkunin hefur þá
verið hjá smásöluaðilum sem
þurft hafa að bregðast við þessum
hækkunum. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Hallgrímskirkja
í Reykjavík
Burj Khalifa
Turninn í Dúbaí
er sá hæsti í heimi
Mount Everest
hæsti tindur heims
Tóbaksdósaturninn
16.500 metrar*8.848 metrar*830 metrar74 metrar *frá sjávarmáli að hæsta tindi.
Neysla kostar
100.000 á ári
Þetta gætir þú keypt þér
n Nokia Lumia 1020 farsími
= 97.995 kr.
n 2x Apple iPad mini
16 GB(WiFi)
= 97.990 kr.
n Flug fyrir 2 til
London með WOW
Air 5.–8. júní með
sköttum = 99.671 kr.
n 10 x áfylling á 40
lítra bensíntank
= 98.600 kr.
n 2 x árskort í
Reebook Fitness
= 93.600 kr.
n Borgarnes
n Akranes
n Reykjavík
n Reykjanesbær
25
30
35
35
Tonn
20
15
10
5
0
2004 2007 20102005 2008 20112006 2009 2012 2013
12,7
13,9 14,4
16,9
19,9
23,6
25,5
30,2
28,8
27,6
Heildarsala neftóbaks
Seldar tóbaksdósir
á ári næðu 41,4
kílómetra ef þær
yrðu lagðar hlið við
hlið.
n Vegalengdin frá
Akranesi til Borgarness
er 38 kílómetrar.
n Frá Reykjavík til
Keflavíkur eru 46
kílómetrar.
Dós á viku Sá sem
tekur hressilega í vörina
fer með um dós á viku.
Nikotínfíknin kostar hann
tæpar hundrað þúsund
krónur á ári.
46 km
38 km
Risavaxinn í
samanburði Það
þyrfti ríflega 220
Hallgrímskirkju-
turna til að jafna
íslenska tóbaks-
dósaturninn.
Heildsöluverð
á neftóbaki
n Árið 2007 kostuðu 20 stk. af
50 gramma dósum 6.860 krónur.
n Árið 2010 kostuðu 20 stk. af
50 gramma dósum 11.713 krónur.
n Árið 2014 kostuðu 20 stk. af
50 gramma dósum 29.243 krónur.
Heildsöluverð miðað við 1. janúar.
*miðað við
einfalda röð dósa.