Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Side 34
34 Skrýtið Sakamál Helgarblað 6.–9. júní 2014
T
ilvera Nevin Yildirim var
hversdagsleg, en ágætlega
hamingjurík. Hún bjó ásamt
manni sínum og tveimur
börnum í hvítu múrsteins-
húsi við þorpstorgið í Yalvak í suð-
vesturhluta Tyrklands og lífið gekk
sinn vanagang – en í janúar 2012
varð þar breyting á.
Í janúar fór eiginmaður Nevin,
líkt og margir vina hans, til Istanbúl,
þar sem hægt var að komast í upp-
grip. En þar sem borgin var fjarri
Yalvak gat hann ekki þvælst fram og
til baka og því þurftu hjónakornin
að sætta sig við að þau myndu ekki
sjást fyrr en í sumarbyrjun.
Vargur í fjölskyldunni
Þetta fyrirkomulag fór ekki fram hjá
Nurettin Gider, 35 ára manni sem
var kvæntur frænku eiginmanns
Nevin. Nurettin hafði lengi litið hina
26 ára Nevin ágirndaraugum og sá
sér nú leik á borði.
Nokkrum dögum eftir brottför
manns Nevin gerði Nurettin sér lítið
fyrir og kleif veggi hvíta múrsteins-
hússins og komst inn um svefn-
herbergisgluggann. Vopnaður riffli
hótaði hann Nevin: „Farðu úr fötun-
um og leggstu á rúmið. Ef þú veitir
mótspyrnu mun ég skera börn þín
á háls.“
Nevin var skelfingu lostin og
sá þann kost vænstan að hlýða
Nurettin, sem beið ekki boðanna og
nauðgaði henni.
Engir góðir kostir í stöðunni
Niðurbrotin velti Nevin fyrir sér
möguleikum sínum í kjölfar nauð-
gunarinnar. Hún sá í hendi sér að
þeir væru fáir góðu kostirnir í stöð-
unni.
Ef hún færi til lögreglunnar
myndi hún verða forsmáð af íbúum
þorpsins og talin léttúðardrós. Eig-
inmaður hennar yrði smánaður og
börn hennar höfð að háði og spotti.
Nurettin var þessi slæma aðstaða
Nevin vel ljós; hún var föst í göml-
um gildum og hefðum og hendur
hennar bundnar.
Næstu nótt endurtók hann leik-
inn og vopnaður riffli kom hann
fram vilja sínum.
Nevin verður barnshafandi
Við tók ömurlegur tími hjá Nevin.
Hún gekk sem draugur væri um
götur þorpsins dagana langa og
Nurettin hélt uppteknum hætti
þegar nátta fór.
Eftir nokkra mánuði komst
Nevin að því að hún var barnshaf-
andi og þegar Nurettin komst að
þessu neyddi hann hana til að sitja
nakin meðan hann tók af henni ljós-
myndir.
„Þú getur ekki streist á móti
núna, ef þú gerir það þá sendi ég
manni þínum þessar myndir, sem
og öðrum ættingjum þínum,“ sagði
Nurettin og nauðgaði Nevin.
Næstu nótt lá Nevin í rúmi sínu,
nötrandi og skjálfandi; henni var vel
ljóst að kvalari hennar kæmi venju
samkvæmt.
Nevin er nóg boðið
Mikið rétt, þegar næturhúmið lagð-
ist yfir sá Nevin hvar Nurettin kleif
upp húsvegginn. Hugur Nevin var
á fleygiferð, en hún fann hagla-
byssu eiginmanns síns og skaut
að Nurettin, sem féll öskrandi og
bölvandi til jarðar.
En þegar þarna var komið sögu
var Nevin nóg boðið og hún fór
út um framdyrnar; torgið blasti
við henni og fjöldi manna sem sat
þar við borð. Nurettin var við hús-
vegginn og reyndi að komast á fæt-
ur, en Nevin lyfti upp haglabyssunni
og skaut hann öðru sinni. Nurettin
heyktist saman og blóðið lagaði úr
öðru læri hans.
Mannsöfnuðurinn við torgið
virtist frosinn, en Nurettin neytti
síðustu krafta til að skríða að Nevin
og reyna að ná af henni byssunni.
Síðasta skotið í kynfærin
Nurettin var orðinn magnvana sök-
um blóðmissis en gat lítið annað
gert en að biðjast griða þegar Nevin
lyfti byssunni enn og aftur. „Ekki
gera þetta,“ veinaði hann aumk-
unarlega þegar hann sá að Nevin
miðaði á kynfæri hans.
En Nevin tók í gikkinn og þar sem
áður höfðu verið kynfæri Nurettins
var orðið að blóðugum tætlum – og
Nurettin var allur.
Af torginu fylgdust menn hálf-
lamaðir með þegar Nevin mund-
aði hníf og hóf að afhöfða líkama
Nurettins. Þegar hún var búin að
því stóð hún upp, hélt á höfðinu og
hrópaði: „Ekki baktala mig – ekki
hafa heiður minn að leiksoppi.“ Hún
fleygði höfðinu inn á torgið: „Hér er
höfuð manns sem lék sér að heiðri
mínum.“
„Ég bjargaði heiðri mínum“
Þá fyrst datt einhverjum í hug að hr-
ingja í lögregluna sem kom, færði
Nevin á lögreglustöðina og kærði
hana fyrir morð.
Við bráðabirgðayfirheyrsluna
sagði Nevin: „Nurettin sagði sí og
æ að hann myndi segja öllum frá
nauðgununum. Dóttir mín byrjar í
skóla á þessu ári. Allir hefðu svívirt
börnin mín. Núna getur það enginn.
Ég bjargaði heiðri mínum. Sagt
verður um börnin mín að þau séu
börn konunnar sem bjargaði heiðri
sínum.“
Í ljós kom að Nevin hafði reynt
að fá fóstureyðingu áður en hún
banaði Nurettin, en verið hafnað
vegna þess að hún var gengin 14
vikur, en 10 vikna meðganga er há-
mark, nema til komi „sérstakar að-
stæður“.
Stoltur eiginmaður
Málið kveikti miklar umræður
um fóstureyðingar í Tyrklandi og
sýndist sitt hverjum, en forsætis-
ráðherra landsins, Recep Erdogan,
er svarinn andstæðingur fóstur-
eyðinga.
Slíkt hið sama er að segja varð-
andi borgarstjóra höfuðborgarinnar
Ankara, en eftir honum hefur verið
haft að mæður sem íhuga fóstur-
eyðingu ættu „að svipta sig lífi þess
í stað og ekki láta barnið gjalda fyrir
mistökin“.
En það voru viðbrögð eigin-
manns Nevin sem vöktu nánast
hvað mesta athygli og fengu íhalds-
sama Tyrki til að klóra sér í höfðinu,
en hann sagði í sjónvarpsviðtali: „Ég
elska konuna mína og ég er stoltur
af henni fyrir að hafa gert það sem
hún gerði.“
Nevin segir að það skipti hana
litlu hvort hún deyr eða eyðir því
sem eftir er ævinnar í fangelsi, þar
sem hún bíður réttarhalda. En hún
krefst þess enn að fá að fara í fóstur-
eyðingu. n
n Nurettin hafði heiður Nevin að leiksoppi n Nevin tók til sinna ráða
smáð kona tók
til sinna ráða
Nurettin og Nevin
Nurettin hefndist
fyrir ofbeldið sem
hann beitti Nevin.
„Farðu úr fötunum
og leggstu á rúm-
ið. Ef þú veitir mótspyrnu
mun ég skera börn þín á
háls.
Nevin Yildirim
Fékk nóg af kvalara sínum og sagði stopp.
Myrtu afa
og ömmu
Lögreglan í Denver rannsakar
nú hvort það fáist staðist að
ungur maður hafi í slagtogi
við kærustu sína, myrt ömmu
sína og afa. Lögregla segir
að Brendan Lee Johnson og
kærasta hans, Cassandra Ann
Rieb, hafi brotið sér leið inn á
heimili gömlu hjónanna í síð-
asta mánuði og myrt þau. Þau
brenndu lík gömlu konunnar og
dreifðu á tveimur mismunandi
stöðum fjarri heimili hennar en
hringdu á lögreglu og sögðust
hafa komið að gamla mannin-
um látnum. Síðar játuðu þau á
sig alla glæpi og sagði Brendan
við lögreglumennina: „Við fór-
um saman og við gerðum þetta
saman.“ Tilgangurinn var að
komast yfir arf eftir gömlu hjón-
in. Lögreglan hefur látið hafa
eftir sér að um sé að ræða „unga
og heimska“ morðingja.
Gróf foreldrana
í garðinum
Það var í október á liðnu ári
sem eldri hjón voru að dytta
að garðinum við heimili sitt
í Notthingham á Bretlandi
þegar þau rákust á það sem
virtist vera lík grafið á milli
trjáa. Málið hefur vakið mikla
athygli á Bretlandi en þegar
lögregla hóf vettvangsrannsókn
í garðinum fundust tvö lík kirfi-
lega grafin og vafin í sængur-
fatnað. Um var að ræða fyrri
eigendur hússins, þau William
og Patriciu Wycherley, og
leiddi krufning í ljós að hjónin
höfðu bæði verið myrt með
skotvopni nokkru fyrr. Dóttir
þeirra, Susan Edwards, hefur
játað að hafa orðið móður sinni
að bana árið 1998. Hún segir
móður sína hafa banað föður
hennar og því segist Susan
hafa tekið til sinna ráða. Eftir
morðið sannfærði Susan aðra
fjölskyldumeðlimi, stofnanir
og félagsmálayfirvöld um að
foreldrar hennar væru enn
sprelllifandi. Á því hagnaðist
hún umtalsvert. Seldi hún
meðal annars heimili þeirra
sjö árum eftir morðið og gabb-
aði lögmenn og fasteignasala.
Susan og eiginmaður hennar
Christopher hafa verið ákærð
fyrir morðið og bíða dóms.