Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Síða 36
Helgarblað 6.–9. júní 201436 Lífsstíll
R
obert Rhinehart, 24 ára for
ritari, átti við vandamál
að stríða. Árið 2012 bjó
hann ásamt félögum sín
um saman í lítilli íbúð í San
Francisco og unnu þeir sem frum
kvöðlar og forritarar. Á þessu sama
ári höfðu Rhinehart og viðskipta
félagar hans nýlega tapað miklum
peningum í viðskiptaævintýri sem
fór á hausinn og hafði ekki mikið á
milli handanna.
Matseld allt of tímafrek
Það var svo einn daginn þegar hann
sat á veitingastað ásamt félögunum
að það rann upp fyrir honum hvað
hann eyddi miklum peningum og
tíma í mat og athöfnina sjálfa að
borða. Það að setjast niður og borða
var eintómt vesen fyrir Rhinehart
og honum fannst það bara trufla
hann við vinnu.
Það var þá sem Rhinehart fór að
prófa sig áfram og hóf að þróa eitt
hvað sem gæti komið í staðinn fyrir
máltíð og þarfnaðist ekki eldunar.
Hann vildi búa til eitthvað sem
mætti kalla næringarhristing sem
væri meira en fæðubót og kostaði
ekki mikið.
Rhinehart vann ötullega að
þessu verkefni og það virtist eiga
hug hans allan í nokkra mánuði.
Rhinehart taldi sig vera búinn að
fullkomna formúluna og ákvað
að borða ekkert annað í heilan
mánuð. Þegar mánuðurinn var
liðinn stóð Rhinehart enn í fæt
urna, hraustur að eigin sögn og var
búinn að losa sig við fitu í þokka
bót. Þessi tilraun virðist hafa borg
að sig á endanum, því þetta uppá
tæki Rhineharts fór að vekja athygli
á veraldarvefnum.
Tugþúsundir pöntuðu strax
Svo fór að Rhinehart hóf söfnun á
netinu þar sem fólk gat lagt verk
efninu lið og viðbrögðin stóðu
ekki á sér. Á örskömmum tíma
höfðu 20.000 manns gefið peninga
til verk efnisins og hið nýstofnaða
fyrir tæki fékk meira en tvær millj
ónir Bandaríkjadala. Í staðinn fær
fólk poka af dufti sem samanstend
ur af kolvetnum, próteini og öðrum
næringarefnum ásamt blöndu af
olíum og vítamínum, sem er bland
að saman við vatn. Hver máltíð
kostar um fjóra Bandaríkjadali, eða
rúmar 400 krónur.
Snýst ekki um bragðið
Þeir sem hafa smakkað blönduna
hafa mismunandi skoðanir á
henni, sumum finnst hún ógeðfelld
en aðrir líkja henni við bragðlítinn
vanilluhristing. Rhinehart segir þó
að hann sé ekki að reyna að búa
til eitthvað sem sé bragðgott. „Það
er til nóg af bragðgóðum hlutum,
þetta snýst um hagkvæmni, kostn
að og þægindi,“ segir Rhinehart.
Hann bendir einnig á að Soylent
sé ekki ætlað að leysa aðra fæðu al
gjörlega af hólmi, bara flesta.
Rhinehart nefndi fyrirtækið Soy
lent. Nafnið er kaldhæðin tilvísun
í kvikmyndina Soylent Green, sem
fjallar um ógnvænlega og dökka
framtíð þar sem almenningur lifir
eingöngu á samnefndu mauki, sem
kemur svo á daginn að búið er til úr
mannakjöti.
Skiptast á uppskriftum
á netinu
Svo virðist sem margir taki þessari
þróun fagnandi og Soylent á greini
lega hljómgrunn hjá mörgum. Í
gegnum áratugina hefur vinnuálag
á fólk aukist og dagurinn er al
mennt annasamari en hann var
fyrir einhverjum áratugum og það
er spurning hvort þessi bylting sé
svar við því. Einnig breytti krepp
an lífsgæðum margra, svo ekki sé
minnst á stúdenta, sem hafa oftar
en ekki lítið á milli handanna. Soy
lent er kannski ekki fyrsta varan af
þessari tegund, en þetta er í fyrsta
skipti sem slík vara verður svona
gríðarlega vinsæl.
Í kjölfar vinsælda Soylent hafa
margir netverjar byrjað að þróa
sínar eigin uppskriftir og skiptast á
skoðunum um hvaða blöndur virka
best, þannig að það er spurning
hvort þessi tegund fæðu fari að ná
fótfestu hjá almenningi. n
Í uppreisn gegn
máltíðinni
Soylent Hér má sjá pakkn-
ingar Soylent. Í hverjum poka
eru um það bil þrjár máltíðir.
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Rob Rheinhart þróaði drykk sem kemur í stað venjulegrar fæðu„Það er til nóg
af bragðgóðum
hlutum, þetta snýst um
hagkvæmni, kostnað
og þægindi.
Rob Rheinhart Rheinhart stofnaði
Soylent og hlaupa tekjur þess nú þegar á
milljónum dala.
Svefnleysi
jafn skaðlegt
og vímuefni?
Þótt að það sé oft freistandi að
halda sér vakandi fram eftir
öllu ættu þeir sem vilja ná góð
um árangri í námi að hugsa sig
tvisvar um.
Niðurstöður nýrrar rann
sóknar sem framkvæmd var á
háskóla í Bandaríkjunum bentu
til þess að þeir sem sofa illa og
lítið væru mun líklegri til að fá
verri einkunnir og hætta í námi.
Áhrifin eru nánast jafn mikil og
þau sem neysla áfengis og mari
júana hafa á námsárangur.
Niðurstöðurnar fengu rann
sakendur eftir að hafa tekið aðra
þætti inn í dæmið, til dæmis
þunglyndi, félagslega einangrun
og önnur heilsufarsvandamál.
Tvítyngi hægir á öldrun heilans
Ný rannsókn sýnir tengsl á milli tungumálakunnáttu og öldrunar heilans
A
ð læra og geta talað annað
tungumál en móðurmálið get
ur haft jákvæð áhrif á heila
starfsemi, samkvæmt nýrri
rannsókn sem gerð var við Edin
borgarháskóla. Ekki virðist skipta máli
hvort einstaklingur læri annað tungu
mál sem barn eða á fullorðinsaldri,
það hefur alltaf jákvæð áhrif á heilann.
Rannsóknir sem gerðar hafa ver
ið áður hafa sýnt fram á þessi tengsl,
en þá var ekki hægt að svara því hvort
aukin greind væri orsök eða afleiðing
tungumálakunnáttunnar. Þessi nýja
rannsókn gæti þó hugsanlega verið
með svarið.
Rannsakendurnir komust að
því að talhæfni og greind jókst hjá
þeim sem töluðu að minnsta kosti
eitt tungumál umfram móðurmál
ið, auk þess sem elliglöpum seinkaði
hjá þeim hópi. Rannsóknin var fram
kvæmd þannig að haft var upp á þátt
takendum í greindarprófi sem tekið
var árið 1947, þegar þeir voru ellefu
ára. Þátttakendurnir, sem eru í dag á
sjötugsaldri, voru rannsakaðir aftur á
árunum 2008 til 2010.
Allir þeir þátttakendur sem töluðu
fleiri en eitt tungumál höfðu vitræna
getu yfir meðaltali og sást mestur
munur á almennri greind og lesskiln
ingi. Ekki fannst marktækur munur á
því hvort þátttakendur lærðu tungu
málið ungir að aldri eða á efri árum.
Rannsakendur sögðu þó að frek
ari rannsókna væri þörf og að þeirra
niðurstöður vektu upp enn fleiri
spurningar, til dæmis hvort það væri
munur á því að kunna annað tungu
mál og nota það sjaldan eða kunna
það og nýta að staðaldri. n
Hægir á öldrun Að tala fleiri en eitt tungumál virðist hægja á öldrun heilans, samkvæmt
rannsókninni. Mynd Al JAzeeRA AMeRicA
Karlar finna
meira til eftir
stórar aðgerðir
Karlmenn finna meira til en
konur eftir stórar aðgerðir. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn
þar sem yfir 10 þúsund sjúkling
um var fylgt eftir á sjúkrahúsi í
Þýskalandi. Vísindamenn telja
að hormón geti útskýrt mismun
inn, karlkyns hormón dragi úr
sársauka auk þess sem sársauka
þröskuldur kvenna sé breytileg
ur eftir tíðahring, en einnig séu
menningar og sálfræðilegar
skýringar. Í ljós kom að karl
menn fundu fyrir meiri sársauka
eftir stórar aðgerðir, en konur
voru líklegri til að finna til eftir
litlar aðgerðir.
Einhverfa
tengd karl-
hormónum
Karlkynsfóstur sem verða fyrir
miklu magni af karlhórmónum í
móðurkviði eru líklegri til að þróa
með sér einhverfu. Þetta kemur
fram í rannsókn vísindamanna
við háskólann í Cambridge og
fjallað var um í læknaritinu
Mole cular Psychiatry. Einhverfa
leggst á bæði kyn en er algengari
á meðal drengja. Vísindamenn
segja að þrátt fyrir niðurstöðurn
ar sé einhverfugreining á fóstur
stigi ekki sjáanleg í nánustu fram
tíð. Þeir ítreka einnig að málið sé
flóknara en svo að aðeins þurfi að
blokkera hormónin til að koma í
veg fyrir einhverfu enda séu karl
hormón, líkt og testósterón, mjög
mikilvæg fyrir þroska fóstra.