Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Side 38
Helgarblað 6.–9. júní 201438 Lífsstíll
Æfingar eru
eina meðalið
n Baráttan við appelsínuhúð n Krem og dýrar meðferðir gagnslausar
Á
vefsíðunni justformetoday.
com birtist nýlega grein
um appelsínuhúð þar sem
segir að engin krem virki
á þetta heimsþekkta fyrir-
bæri. Engar töfralausnir sé að finna
á appelsínuhúðinni sem flestar
konur fyrirlíta og margar borga
háar fjárhæðir til að losna við. Það
er sjúkraþjálfarinn og æfingasér-
fræðingurinn Joey Atlas sem rit-
ar greinina en niðurlag hennar er í
takt við rannsóknir Molly Wanner
við Harvard-háskólann í Banda-
ríkjunum sem komst að því árið
2008 að engin raunveruleg lækn-
ing væri til við appelsínuhúð. Fleiri
rannsóknir, svo sem þær sem gerð-
ar voru við David Geffen School of
Medicine sem er hluti Kaliforníu-
háskóla skiluðu sömu niðurstöð-
um. Gefum Atlas orðið:
1 Ekkert krem virkar „Ekk-ert krem, gel eða skrúbb
getur læknað appelsínuhúð. Sama
hversu dýrt það er. Þrátt fyrir að
úrvalið sé mikið er engin möguleg
leið að eitthvað af því geti losað
fólk við appelsínuhúð. Vanda-
málið tengist ekki húðinni. Það er
tilkomið vegna líkams- og vöðva-
byggingar. Það er aðeins hægt að
laga með því að styrkja vöðvana
undir viðkomandi svæði.“
2 Dýrar meðferðir peninga-eyðsla „Áhættusamar og
dýrar meðferðir á förðunarstofum
skila engu nema holu í veskinu.
Jafnvel hefur verið fjallað um slíkar
meðferðir sem hafa endað illa.
Hitameðferðir, plastvafningar og
annað í þeim dúr á ekki við nein
vísindaleg rök að styðjast.“
3 Appelsínuhúð erfist ekki „Appelsínuhúð er ekki
eitthvað sem gengur í erfðir og þú
ert ekki föst með hana til æviloka.
Að trúa þessu mun aðeins hindra
þig í að gera það sem þarf til að
losna við appelsínuhúð. Það að sjá
mæðgur með appelsínuhúð er ekki
endanleg sönnun þess efnis. Það
þýðir bara að þær hafa ekki fundið
réttu leiðina til að losna við hana.“
4 Hægt er að losna við app-elsínuhúð óháð aldri „Þar
sem appelsínuhúð er vandamál
sem er vöðvafræðilegs eðlis er hægt
að draga úr henni með einföldum
æfingum. Allar konur óháð aldri
geta framkvæmt þessar æfingar.
Þessar æfingar gera það að verkum
að vöðvar þrýsta húðinni út og
draga úr appelsínuhúðinni. Skiptir
ekki hversu lengi app-
elsínuhúðin hefur verið
til staðar.“
5 Æfingar eina lausnin „Eina
leiðin sem sannað hef-
ur verið að dregið geti
úr appelsínuhúð er
hreyfing og sérstakar
æfingar sem styrkja
svæðið þar sem
hún myndast. Með
auknum vöðvamassa
eykst fitubrennsla og
auka fita minnkar enn frekar. Ekki
þessar hefðbundnu líkamsræktar-
æfingar með lóðum heldur marg-
þátta
æfingar (e. multidimensional
exercises) sem virkja fleiri vöðva
en aðeins þá stærstu.“ n
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Margþátta
æfingar
Er eina raun-
verulega leiðin
til að draga úr
appelsínuhúð
er að styrkja
viðkomandi
svæði.
Kremin virka ekki Engar eða mjög takmarkaðar sannanir eru til um að krem virki á appelsínuhúð.
„Áhættusamar og
dýrar meðferðir
á förðunarstofum skila
engu nema holu í veskinu
Telja kannabis hafa áhrif á frjósemi
Vísbendingar um tengsl milli neyslu slíkra efna og frjósemi karlmanna
N
ý rannsókn sem gerð var
við háskólann í Sheffield í
Englandi bendir til þess að
neysla kannabisefna geti
haft slæm áhrif á heilbrigði sæðis-
fruma og geti breytt stærð og lög-
un þeirra, nokkuð sem hefur áhrif á
hvort þær geti frjóvgað eggfrumur.
Höfundur rannsóknarinnar, dr.
Allan Pacey, sagði gögnin benda til
þess að ráðlegt sé fyrir neytendur
kannabisefna að hætta eða minnka
notkun þeirra ef þeir hyggja á
barneignir. Aðferðin sem rann-
sóknarteymið notaði var að leggja
spurningalista fyrir 2.000 sæðis-
gjafa og rannsaka hvort fylgni væri
milli frjósemi þeirra og lífsstíls.
Í ljós kom að 318 þátttakend-
ur voru með það sem taldist vera
léleg sæðisframleiðsla og upplýs-
ingar um þá voru bornar saman við
restina af úrtakinu. Í ljós kom að lítil
fylgni var milli frjósemi og tóbaks-
eða áfengisnotkunar en hins vegar
var sæðisframleiðsla þeirra sem
reykt höfðu kannabis síðastliðna
þrjá mánuði verri en annarra þátt-
takenda.
Höfundar rannsóknarinnar
bentu einnig á að þó að tengslin
væru til staðar væri erfitt að úti-
loka aðra þætti sem gætu haft áhrif
á frjósemi, til dæmis erfðir. Niður-
stöður rannsóknarinnar birtust í
júnítölublaði vísindaritsins Human
Reproduction. n
Skaðleg áhrif? Rannsóknin
fann tengsl milli kannabisreyk-
inga og frjósemi karlmanna.
Æfing á tíu
mínútum
Það hafa ekki allir tíma til þess
að fara í ræktina. En margt smátt
getur gert eitt stórt. Á „frídög-
um“ er hægt að gera einfalda og
árangursríka æfingarútínu þess
vegna á skrifstofunni til að halda
sér við. Excercise.about.com býð-
ur lesendum sínum upp á þessar
æfingar. Gert er ráð fyrir 3–5 mín-
útna upphitun.
1. mínúta – Hnébeygja og hopp
Fyrst tvær hnébeygjur og síðan tvö
hnébeygjuhopp. Djúpar hnébeygjur og
sprengja síðan í hátt hopp. Lenda síðan
aftur beint í hnébeygjustöðu. Gera þetta
í 45–50 sekúndur, hvíla í 10 og byrja á
næstu.
2. mínúta – Framstig og hopp
Tekur framstig með hægri og vinstri fæti
til skiptis í 25 sekúndur. Síðan framstig
og hopp upp úr framstiginu og skiptir
um fót. 25 sekúndur af framstigshopp-
um. Um 45–50 sekúndur.
3. mínúta – Bjarnarganga
og armbeygjur
25 sekúndur af hálfri bjarnargöngu.
Fætur á sínum stað en gengur á höndum
fram og aftur niður í armbeygjustöðu.
Seinni 25 eru gerðar armbeygjur.
4. mínúta
– Réttstaða á
hægri fæti
Í 50 sekúndur er gerð
réttstaða á hægri
fæti. Vinstri fótur helst
beinn á meðan þú teygir þig fram með
hendur í átt að jörðu. Passa að halda
bakinu stöðugu.
5. mínúta – Réttstaða
á vinstri fæti
Sama endur tekið fyrir vinstri fót. Rétt-
staða fram. Engin lóð þarf en í góðu lagi
að hafa eitthvað létt í höndum.
6. mínúta – Rússneskur stóll
Situr við vegg með hné í um 90 gráðum.
Síðan lyftir þú varlega öðrum fæti í einu
stutt frá gólfi. Ef það er of erfitt lætur þú
stólinn duga til að byrja með.
7. mínúta
–Dýfur
Hér þarftu að
finna þér eitthvað
stöðugt til að gera
dýfur á. Passa að það
sé stöðugt! Fætur á jörðu og hreyfingin í
gegnum olnboga.
8. mínútur – Burpees
Þessi er alltaf jafn vinsæl, eða hvað?
Stekkur upp og klappar saman höndum
og þaðan beint niður í armbeygjustöðu.
Stekkur með fætur að líkama og beint í
upphoppið aftur.
9. mínúta – Hliðarplanki
Hliðarplanki í 30 sekúndur á hvorri hlið.
Engin ástæða til að hvíla hér. Tekur 30
og 30 og síðan beint í þá síðustu. Hægt
að þyngja æfinguna með því að gera
armbeygjur og fara upp í hliðarplanka-
stöðu á milli.
10. mínúta
–Brú og rasslyfta
Hægt er að gera brú
með rass upp í loft og
brjóstbak í gólf. Passa að
fetta mjóbakið ekki of mikið. Einnig hægt
að setja annan fót upp í loft og teygja
hann til himins. 30 sekúndur á hvorn fót.