Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 44
Helgarblað 6.–9. júní 201444 Menning
Svín Gough
Sumarsýning Listasafnsins á
Akur eyri ber heitið Íslensk sam
tíðarportrett – mannlýsingar á
21. öld. Sýningin verður opnuð
laugardaginn 7. júní klukkan
15.00 en á sýningunni eru verk
eftir, meðal annarra, Erró, Ragnar
Kjartansson, Kristínu Gunnlaugs
dóttur, Hallgrím Helgason,
Steinunni Þórarinsdóttur, Hugleik
Dagsson, Aðalheiði S. Eysteins
dóttur, Baltasar Samper og Ólöfu
Nordal. Í fréttatilkynningu frá
safninu segir: „Hugmyndin um
portrett felst í því að draga fram á
listilegan hátt það sem öðrum er
almennt hulið. Að einskorða sig
við portrett er ein leið til að skoða
á hvaða hátt íslenskir listamenn
fjalla um samtíðina.“ Á meðfylgj
andi mynd má sjá verkið Svín
Gough eftir Karl Jóhann Jónsson.
Saga Surtseyjar
Bókin Surtsey í sjónmáli þró
unarsaga í máli og myndum er
komin út. Höfundar eru Erling
ur Ólafsson og Lovísa Ásbjörns
dóttir en Edda gefur út. Í bókinni
er fjallað um Surtsey út frá sögu,
jarðfræði, gróðri, fuglalífi og sam
félagi smádýra svo eitthvað sé
nefnt. Því er um að ræða heild
stætt verk um eyna frægu sem
telst náttúruperla á heimsvísu.
Erlingur er líffræðingur og Lovísa
jarðfræðingur en bæði hafa þau
starfað hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands. Bókin telur 224 blaðsíður
er ríkulega myndskreytt og kemur
út bæði á íslensku og ensku. Hún
fæst nú í öllum helstu bókaversl
unum landsins.
Leikhúsgjörningar á Listahátíð
Um Wide Slumber í Tjarnarbíói og Der Klang der Offenbarung des Göttlichen í Borgarleikhúsinu
L
eikhúspakkinn á Listahá
tíð er allsérstakur að þessu
sinni. Það er ekki boðið upp
á hefðbundnar leiksýningar
þar sem áhorfandinn get
ur gengið að því vísu hvað hann
fær að sjá og heyra. Það eru engin
leikrit á ferðinni í hefðbundinni
merkingu þess orðs. Sagan, orðið
eða textinn er ekki í fyrir rúmi, þótt
texti og tungumál sé vissulega mik
ilvæg uppspretta og inneign sem
listamennirnir geta sótt í, forðabúr
hugmynda og sköpunar. Þetta á við
jafn ólíkar sýningar og Wide Slum
ber sem VaVaVoom og Bedroom
Community sýndu í Tjarnarbíói
og eins sýningu Ragnars Kjartans
sonar og Kjartans Sveinssonar Der
Klang der Offenbarung des Gött
lichen í Borgarleikhúsinu. Og það
sem meira er, að hinn lifandi leikari
er líka víðs fjarri að minnsta kosti í
sýningu þeirra Ragnars og Kjartans,
þar sem leiktjöldin og tónlistin leika
aðalhlutverk.
Lífshringur fiðrilda
Báðar sýningarnar eru fyrst og
fremst mjög öflugt og lifandi sam
starf margra listamanna sem allir
leggja sína sjálfstæðu listsköpun í
púkkið við túlkun á þeim hugmynd
um og efni sem lagt er upp með.
Þar með verður til annars konar
texti á leiksviðinu, margslunginn
vefnaður sem reynir mest á skynjun
áhorfandans og sver sig meira í ætt
við konseptlist og gjörninga en þó
með vel úthugsuðu myndmunstri.
Þannig var sýningin á Wide Slum
ber hreint ótrúleg úrvinnsla og út
færsla á ljóðaflokki eftir kanadísku
skáldkonuna E. Rawlings, ljóðum
sem urðu til á löngu tímabili m.a.
undir áhrifum frá Björk og eru nán
ast rannsókn á ýmsum svefnstigum
mannsins og draumförum, sett í
samhengi við fjögur lífsstig fiðrilda,
allt frá eggi til lirfu, púpu og full
mótaðs fiðrildis. Lífshringur þessa
vængjaða skordýrs er settur í sam
hengi við svefnhring mannsins og
útkoman er kynngimagnaður leik
húsgjörningur.
Eðli alls sem er
Sara Martí er leikstjóri og kall
ar verkið tónleikhús enda eru
ljóðin flutt af þremur söngvur
um við tónlist Valgeirs Sigurðs
sonar, tónlist sem lokkar og seiðir
með afbyggingu og endurtekningu
einstakra tóna og hljóða. Á móti
tónlistinni sem flutt er af hljóm
sveit undir stjórn Valgeirs á leik
sviðinu og er einn mikilvægasti vef
ur verksins, leggst annar vefur yfir
leiksviðið í formi myndbands sem
varpað er á leikmyndina af miklu
hugviti, frjórri hugsun og einstakri
fegurð. Samspili þessara tveggja
þátta sem eru aðaluppistaða sýn
ingarinnar tókst að skapa áhrif
sem færðu skynjun áhorfandans
inn í furðuheima þess smæsta og
stærsta í heiminum. Hugurinn fór á
flug og reikaði ekki aðeins um eðli
svefns og vöku, heldur eðli alls sem
er, upphaf og endi alls, kenningar í
eðlisfræði um strengi og skammta,
þróun lífs á jörðu, hvernig líffræði
fiðrildis endurspeglar í raun sköp
unarferli í margvíslegum skilningi
jafnt í vöku sem draumi, listum og
vísindum. Leikstjórn og kóreógrafía
er hófstillt, fullstatísk, en bauð svo
sem ekki upp á mikla hreyfing sem
fólst í tónlistinni og ekki síst mynd
vinnslu og lýsingu.
Vandaður vefnaður
Miðlægur í leikmyndinni er vef
stóllinn sjálfur, fullkomin tákn
mynd ferlisins sem við verðum vitni
að og inni í honum er svefngeng
illinn, sá sem dreymir þessa and
vökunótt sem ljóðið spannar. Aðr
ar persónur sem koma við sögu
eru svefnvísindamaður og fiðrilda
fræðingur og svo vefarinn sjálf
ur sem heldur í alla þræði eins og
brúðustjórnandi. Wide Slumber má
helst líkja við litla óperu þar sem
ólíkar raddir skipta með sér verkum
við að koma innihaldinu til skila. Og
þessi litla ópera kom heldur betur á
óvart, raddir söngvaranna ólíkar í lit
og stíl, raddstigið mismunandi líkt
og lífsstig fiðrildisins eða manns
ins. Og öllum tókst söngvurunum
að skapa sérstæð og eftirminni
leg hlutverk í allsherjar afbyggingu
orða og tóna. Hugmyndaríkir bún
ingar og gervi ýttu undir áhrifin og
alla skynjun og undirstrikuðu þátt
tímans í öllu verkinu, tíma manns
ins mældum í æviskeiði hans sem
og sögu hans í sköpunarverk
Wide Slumber og Der
Klang der Offenbarung
des Göttlichen
Wide Slumber
Tónlist: Valgeir Sigurðsson
Leikgerð: Sigríður Sunna Reynisdóttir og
Sara Martí. Leikstjórn: Sara Martí
Söngvarar: Alexi Murdoch, Sasha Siem,
Ásgerður Júníusdóttir
Hljóðfæraleikarar: James McVinnie, Liam
Byrne, Ólafur Björn Ólafsson
Leikmyndahönnun: Eva Signý Berger
Búningahönnun: Harpa Einarsdóttir
Leikmuna- og brúðuhönnun: Sigríður
Sunna Reynisdóttir og Marie Keller
Ljósa- og vídjóhönnun: Ingi Bekk
Myndbandsverk: Pierre-Alain Giraud
Der Klan
Der Offenbarung des Göttlichen
Leikstjóri: Ragnar Kjartansson
Tónlist: Kjartan Sveinsson
Hljómsveitarstjórn: Davíð Þór Jónsson
Hljómsveit: Deutsches Filmorchester
Babelsberg Kór: Schola cantorum
Hlín Agnarsdóttir
ritstjorn@dv.is
Dómur
Wide Slumber Sameig-
inlegt verk VaVaVoom og
Bedroom Community. „Báðar sýn-
ingarnar eru
fyrst og fremst mjög
öflugt og lifandi
samstarf margra
listamanna
Sumarjazz
á Jómfrúnni
Árlega tónleikaröðin Sumarjazz
hefst á Jómfrúnni á laugardaginn.
Þetta er nítjánda árið í röð sem
Jakob Jakobsson, veitingamað
ur á Jómfrúnni, býður gestum á
ókeypis tónleika. Það er Sigurður
Flosason sem kynnir dagskrána
en tónleikar verða haldnir alla
laugardaga í júní, júlí og ágúst.
Á fyrstu tónleikunum kemur
fram tríóið Flatey sem er skipað
þeim Agli B. Hreinssyni á píanó,
Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa
og Kjartani Guðnasyni á trommur.
Tveir gestir koma fram á tónleik
unum. Saxófónleikarinn Jóel Páls
son og Högni Egilsson söngvari úr
Hjaltalín og GusGus.
T
ilnefningar til Grímunnar
2014 voru kynntar á stóra sviði
Borgarleikhússins á fimmtu
dag. Uppsetning Þjóðleik
hússins á Eldrauninni eftir Arthur
Miller hlaut flestar tilnefningar ásamt
frumsömdu íslensku óperunni
Ragnheiði. Bæði verk hlutu ellefu
tilnefningar alls. Af öðrum verkum
má til dæmis nefna að Gullna hliðið
hlaut sjö tilnefningar og Jeppi á
Fjalli fimm. Sem leikarar ársins eru
tilnefndir Hilmir Snær Guðnason
(Eldfærin), Ingvar E. Sigurðsson
(Jeppi á Fjalli), Ólafur Darri Ólafsson
(Hamlett), Stefán Hallur Stefánsson
(Lúkas) og Þorvaldur Davíð Krist
jánsson (Furðulegt háttalag hunds
um nótt). Í flokki leikkvenna ársins
eru tilnefndar Edda Björg Eyjólfs
dóttir (Lúkas), Kristín Þóra Haralds
dóttir (Óskasteinar), María Pálsdóttir
(Gullna hliðið), Margrét Vilhjálms
dóttir (Eldraunin) og Selma Björns
dóttir (Spamalot). Verðlaunaflokk
arnir eru alls 18 að þessu sinni og eru
yfirleitt fimm tilnefningar í hverjum
flokki. Tæplega 70 verk voru skráð til
leiks í ár þar af sjö útvarpsverk, tíu
barnaleikhúsverk, 18 dansverk og 40
sviðsverk. Grímuhátíðin sjálf verður
verður haldin þann 16. júní í Borg
arleikhúsinu og sýnd í beinni út
sendingu á RÚV.
Sýning ársins 2014:
n Eldraunin eftir Arthur Miller í
sviðsetningu Þjóðleikhússins.
n Furðulegt háttalag hunds um nótt
eftir Simon Stephens í sviðsetningu
Borgarleikhússins.
n Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns
son í sviðsetningu Leikfélags Akur
eyrar.
n Ragnheiður eftir Gunnar Þórðar
son og Friðrik Erlingsson í sviðsetn
ingu Íslensku óperunnar.
n Stóru börnin eftir Lilju Sigurðar
dóttur í sviðsetningu Lab Loka.
Leikrit ársins 2014:
n Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins.
n Harmsaga eftir Mikael Torfason í
sviðsetningu Þjóðleikhússins.
n Ragnheiður eftir Friðrik Erlings
son Í sviðsetningu Íslensku óper
unnar.
n Stóru börnin eftir Lilju Sigurðar
dóttur í sviðsetningu Lab Loka.
n Svanir skilja ekki eftir Auði Övu
Ólafsdóttur í sviðsetningu Þjóðleik
hússins.
Eldfærin og Ragnheiður með flestar
Tilnefningar til Grímunnar fyrir leikárið 2013/2014
Ragnheiður Verkið hlaut
11 tilnefningar til Grímuverð-
launna líkt og Eldraunin.