Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 54
Helgarblað 6.–9. júní 201454 Fólk
Hrygna
á Frances
Bjarna Benediktssyni fjármála-
ráðherra og Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni forsætisráðherra
tókst ekki að landa fyrsta laxi
sumarsins í Norðurá á fimmtu-
dagsmorgun. Þeim var boðið að
opna ána ásamt öðrum veiði-
mönnum en fyrsta laxinn fékk
Sigurður Sigfússon. Bjarni veiddi
þó lax skömmu síðar þegar hann
landaði 78 sentimetra hrygnu
á Brotinu. Laxinn tók rauða
Frances-keilutúbu skömmu fyrir
hálf átta á fimmtudagsmorgun.
Athygli vakti að Sigmundur Davíð
klæddist ekki vöðlum við veiðarn-
ar líkt og venja er og kastaði því
aðeins af bakkanum. Hann setti
ekki í fisk að þessu sinni.
Fékk golfsett
frá kærastanum
Stjörnu- og Idolparið Snorri
Snorrason og Heiða Ólafsdóttir
eru ástfangnar turtildúfur. Tón-
listarfólkið er iðið við að tjá hvort
öðru ást sína á Facebook en þar
kom fram að Snorri hefði komið
kærustunni heldur betur á óvart
á dögunum þegar hann gaf henni
golfsett – að sjálfsögðu með
bleikum kylfum. Parið verður því
líklega syngjandi saman á golf-
völlum landsins í sumar.
Leikkonur
selja fötin sín
Nú þegar sólin fer að verða sem
hæst á lofti taka margir til í skáp-
unum hjá sér og halda fata-
markað. Leikkonurnar Elma
Lísa, Tinna Hrafnsdóttir og
María Heba eru þar á meðal en
þær ætla að halda fatamarkað á
laugardaginn. Markaðurinn fer
fram í FÍL-húsinu, Lindargötu 6
og stendur frá 12–18. Þar verða
eflaust margir gullmolar í boði
enda þær þekktar fyrir smekkleg-
heit. Vinir Elmu Lísu kalla hana
til að mynda FataLísu vegna mik-
ils fataáhuga hennar.
Á
miðvikudaginn var eitt ár síð-
an fjölmiðlamaðurinn og
fyrrverandi landsliðsmað-
urinn í knattspyrnu, Her-
mann Gunnarsson, féll frá. Til að
heiðra minningu Hemma lét Tólfan,
stuðningsmannafélag íslenska
knattspyrnulandsliðsins reisa sér-
stakan minningarvegg á Ölveri.
„Hemmi var okkar helsta tólfa,“
segir Friðgeir Bergsteinsson einn
af stjórnarmönnum Tólfunnar.
„Við vildum reisa vegginn á dánar-
degi Hemma til að heiðra minn-
ingu hans.“ Friðgeir segir Ölver hafa
orðið fyrir valinu þar sem staður-
inn sé „heimavöllur“ Tólfunnar. „Við
hittumst þar fyrir alla landsleiki,“
segir Friðgeir og undirstrikar að allir
séu velkomnir í Tólfuna. „Hvort sem
það eru karlar eða konur. Bara mæta
á Över fyrir leiki og skemmta sér vel.“
Tólfan var stofnuð árið 2007 en
Friðgeir segir hlutina hafa gerst
hratt í fyrra. „Þá fór þetta fyrst á al-
mennilegt flug,“ en áhuginn á ís-
lenska landsliðinu jókst mikið með
frábæru gengi í undankeppni HM
sem fer fram í Brasilíu eftir fáeina
daga. „Þetta rífur upp stemninguna
á leikjum og er bara jákvætt.“ Frið-
geir segir meðlimi Tólfunnar leggja
mikið upp úr skemmtilegum söngv-
um og því liggi menn við skriftir fyrir
leik. „Það er von á tilkynningu frá
okkur á næstu dögum sem á eftir að
vekja töluverða athygli. Þannig að
það borgar sig að fylgjast með,“ segir
Friðgeir að lokum og bendir á Face-
book-síðu Tólfunnar. n
Heiðra minningu Hemma
Tólfan reisti minningarvegg til heiðurs Hemma Gunn
Kátir Tólfumenn Óskar Freyr, Friðgeir, Styrmir og Kristinn Hallur.
Pabbi var eins og
fermingarstelpa
n Hitti George Best á Akureyrarvelli n Er grjótharður Þórsari
É
g er uppalinn Þórsari og ég
man að mér fannst þetta ekk-
ert sérstaklega spennandi,“
segir Rakel Þorbergsdóttir,
fréttastjóri RÚV, en hún hitti
knattspyrnugoðsögnina George
Best á Akureyrarvelli í ágúst 1982.
Rakel var ellefu ára en Best lék þá
sýningarleik með KA á móti stjörn-
um prýddu liði Manchester United.
„Ég man hins vegar að pabba fannst
þetta einstaklega merkilegt. Það
skríkti nánast í honum og hann var
eins og flissandi skólastelpa,“ segir
Rakel og hlær en hún segir föður
sinn, Þorberg Ólafsson heitinn, hafa
verið einn dyggasta stuðningsmann
Manchester United á Íslandi og þótt
víðar væri leitað.
Best vinalegur og kurteis
„Fyrir pabba var þetta eitthvað alveg
magnað en ég kveikti eiginlega ekki
á því fyrr en mörgum árum seinna
í raun hversu merkilegt augnablik
þetta var. Þá dró pabbi fram myndina
af okkur og lýsti þessu sem einu
merkilegasta atviki lífs síns.“ Skyldi
engan undra enda er Best jafnan
talinn í hópi bestu knattspyrnu-
manna sögunnar og eflaust draum-
ur allra stuðningsmanna United að
hitta hann í eigin persónu. Hann var
þó einnig þekktur fyrir villt líferni
utan vallar en Best lést langt fyrir ald-
ur fram árið 2005. Þá aðeins 59 ára.
Rakel segir að George Best hafi ver-
ið einstaklega vinalegur og kurteis.
„Hann var bara virkilega almenni-
legur náungi og eftir á að hyggja þá
þykir mér auðvitað mjög vænt um
þetta augnablik. Ég hef nú ekki hitt
margar stjörnur á lífsleiðinni, eigin-
lega bara sárafáar. En Best er án ef sá
allra flottasti,“ segir Rakel.
Fylgist vel með boltanum
Rakel er eins og áður kom fram
Þórsari en hún segir lífið hafa snúist
um fótbolta á sínu heimili. „Maður
var nánast ekki viðræðuhæfur inn-
an fjölskyldunni ef maður var ekki í
fótbolta. Það var fótbolti á sumrin og
fylgst með enska á veturna. Það æfðu
nánast allir og héldu annaðhvort
með Liverpool eða Manchester
United.“ Rakel fylgist vel með ís-
lenska boltanum og sérstaklega eftir
að hennar lið komst aftur í efstu
deild. „Ég fylgist nokkuð vel með en
ég get ekki sagt að ég finni fyrir sama
áhuga hjá öðrum konum hérna á
fréttadeildinni. Ég er svolítið ein í
þessu.“ Rakel segist enn sprikla í fót-
bolta af og til. „Já, maður hlunkast
einu sinni í viku í einhverjum kerl-
ingabolta,“ segir fréttastjórinn í létt-
um tón.
Spánn og England á HM
HM í knattspyrnu er að bresta á í
næstu viku og ætlar Rakel að fylgj-
ast vel með keppninni. „Eins og
svo margir aðrir Íslendingar sem
hafa fylgst lengi með enska boltan-
um þá hefur maður alltaf ákveðn-
ar taugar til enska landsliðsins. En
gengi þeirra hefur verið fremur
slappt svo að ósjálfrátt fer mað-
ur að fylgjast með öðrum liðum.“
Rakel segir það spænska heilla sig
hvað mest. „Ég fylgist töluvert með
spænska boltanum líka og síðan hef-
ur spænska liðinu gengið frábærlega
undanfarið. Auk þess að spila einn
skemmtilegasta boltann.“ n
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Rakel og Best Rakel segir Best hafa
verið einstaklega almennilegan og lausan
við alla stjörnustæla. Mynd RaKEl ÞoRBERGSdóTTiR
Rakel Þorbergsdóttir
Er gjótharður Þórsari og
fannst ekkert merkilegt
að hitta karl sem hafði
nýlokið leik með KA.
„Það
skríkti
nánast í honum
og hann var eins
og flissandi
skólastelpa