Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Qupperneq 59
Helgarblað 6.–9. júní 2014 HM 2014 3
Þetta þarftu að vita
n Forvitnilegar staðreyndir um HM í Brasilíu n Furðurlegar kröfur og vegleg verðlaun
8 sigurvegarar taka þátt
Átta þjóðir sem unnið hafa heimsmeistaratitilinn taka þátt í
keppninni í sumar. Þetta eru, auk heimamanna, Spánverjar, Ítalir,
Þjóðverjar, Úrúgvæar, Argentínumenn, Englendingar og Frakkar.
Við erum eitt Fyrir allar heimsmeistara-
keppnir frá árinu 1962 hefur verið gert sérstakt HM-lag. Að
þessu sinni kom það í hlut Jennifer Lopez, Pitbull og Claudiu
Leitte að gera HM-lagið. Nafnið á laginu er We Are One, eða
Við erum eitt. Þess má geta að árið 2010 var opinbera HM-lag-
ið DAre (La La La) sungið af Shakiru, en hún er í dag kærasta
Gerards Pique, varnarmanns heimsmeistara Spánar.
Nuddpottur í öll
herbergi Sum liðin á HM
gera miklar kröfur til aðbúnaðar á
hótelum meðan á keppni stendur. Úr-
úgvæar krefjast þess að hljóðlát loft-
ræsting sé í hverju herbergi, Portúgalir
að tölvur séu í öllum herbergjum og
Alsíringar að eintak af kóraninum verði
í öllum herbergjum. Þá vilja Japanir
nuddpott og Ekvadorar að bananar
– frá Ekvador að sjálfsögðu – verði í
herbergjum leikmanna sinna.
Alvöru tuðra! Boltinn sem verður notaður í
lokakeppni HM heitir Brazuca og er hannaður af Adidas. Brazuca
er fyrsti boltinn í sögu lokakeppni HM sem nefndur er af almenn-
ingi. Blásið var til atkvæðagreiðslu á veraldarvefnum og voru þrír
valmöguleikar í boði: Brazuca, Bossa Nova og Carnavalesca. Orðið
er notað í Brasilíu til að lýsa þjóðarstolti Brasilíumanna. Boltinn er
vandlega hannaður og á hann að ná meiri hraða þegar spyrnt er í
hann en dæmigerðir fótboltar – frábært fyrir Cristiano Ronaldo.
Vegleg verðlaun Sigurliðið á HM
mun ekki bara fá glæsilegan bikar í verðlaun. Sú þjóð sem
stendur uppi sem sigurvegari á mótinu fær 35 milljónir dala,
fjóra milljarða króna, í verðlaun en 2. sætið fær 25 milljónir
dala, 2,8 milljarða. Allar þátttökuþjóðir fá auk þess greitt
sérstaklega fyrir þátttöku sína.
Eini nýliðinn Bosnía-Hersegóvína er eina þjóðin sem verður með á HM í sumar sem
aldrei hefur tekið þátt áður. Þó að þeir séu nýliðar bíða margir óþreyjufullir eftir því að berja liðið augum
og telja margir að það geti náð langt í keppninni í sumar.
Drónar tryggja öryggi Mikið verð-
ur lagt upp úr öryggisgæslu meðan á keppni stendur í sumar.
Nútímatækni verður nýtt til hins ítrasta og munu mannlausar
flugvélar, eða svokallaðir drónar, fylgjast með því að allt fari
friðsamlega fram meðan á leikjum keppninnar stendur.
Margir vildu
miða Rúmlega sex millj-
ónir beiðna um miða á HM voru
lagðar fram en aðeins þrjár
milljónir miða verða í boði fyrir
aðdáendur sem vilja berja liðin
augum í leikjum keppninnar.
Miðaverð er mjög mismunandi
og fer raunar eftir því hvort
þú ert frá Brasilíu eða utan
Brasilíu. Ódýrustu miðarnir fyrir
heimamenn í riðlakeppninni
kostuðu 11 evrur, 1.700 krónur,
en 69 evrur fyrir aðra, 10.600
krónur. Það er ekki fyrir hvern
sem er að sjá úrslitaleikinn;
ódýrustu miðarnir þar voru á
335 evrur, 51 þúsund krónur en
dýrustu miðarnir á 755 evrur, 117
þúsund krónur. Það þarf vart að
taka fram að það er fyrir löngu
orðið uppselt á keppnina.
Lukkudýrið
er beltisdýr
Lukkudýrið á HM að þessu
sinni er beltisdýrið Fuleco.
Dýrið dregur nafn sitt
af Futebol (fótbolti) og
Ecologia (vistfræði). Fuleco
er af ákveðinni tegund
beltisdýra sem er í útrým-
ingarhættu. Blái liturinn á
höfði þess táknar frjósemi,
himininn og hafið.
Dýrasta HM sögunnar
Það er ljóst að engu verður til sparað að gera keppnina í
Brasilíu sem glæsilegasta. Keppnin í ár verður sú dýrasta
í sögunni – jafnvel þótt tekið hafi verið tillit til verðlags.
Nýir vellir voru smíðaðir og þá var heilu hverfunum
breytt til að aðgengi að völlum yrði gott. Þá skar lögregla
upp herör gegn glæpum. Talið er að kostnaðurinn við
keppnina nemi 14–16 milljörðum Bandaríkjala, eða 1.600
til 1.800 milljörðum króna.
Úrslitaleikur á alvöruvelli
Úrslitaleikur keppninnar fer fram hinn 13. júlí á hinum
sögufræga Maracana-leikvangi í Ríó. Úrslitaleikurinn á HM
1950 fór fram á vellinum þar sem voru samankomnir 200 þús-
und áhorfendur. Öllu færri munu sjá úrslitaleikinn á Maracana
í ár, enda hefur völlurinn gengið í gegnum talsverðar
breytingar á undanförnum árum. Hann tekur núna 79 þúsund
áhorfendur í sæti. Auk úrslitaleiksins fara sex leikir fram á
vellinum, þar á meðal einn leikur í 8 liða úrslitum keppninnar.