Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 60
Helgarblað 6.–9. júní 20144 HM 2014
K
róatar komust sem kunnugt er í lokakeppn-
ina með því að leggja Íslendinga að velli í um-
spili, 2-0 samanlagt. Það er óhætt að segja
að þeir hafi ekki boðið upp á neina flugelda-
sýningu gegn Íslendingum og má í raun segja að um
svonefndan iðnaðarsigur hafi verið að ræða. Króatar
eru ekki bara með vel spilandi leikmenn innan sinna
raða heldur eru þeir einnig feikilega vinnusamir og
skipulagðir eins og íslenska liðið fékk að reyna. Þó
að þeir hafi aðeins skorað tvö mörk gegn Íslandi
voru þeir með undirtökin í báðum leikjunum. Króatar
fá það erfiða verkefni að mæta heimamönnum í
Brasilíu í opnunarleik mótsins. Króatar verða án
reynsluboltans Josips Simunic sem dæmdur var í
10 leikja bann fyrir að fagna að hætti fasista eftir
sigurinn á Íslandi úti í Króatíu. Skarð fyrir skildi þar en
maður kemur í manns stað. Króatar búa yfir ágætis
breidd og spila allir lykilmenn liðsins með sterkum
félagsliðum. Reynsluboltinn Darijo Srna verður á
sínum stað í hægri bakverðinum og Luka Modric hjá
Real Madrid mun væntanlega stjórna miðjuspilinu
eins og herforingi. Gera má ráð fyrir því að Brasilíu-
menn vinni alla sína leiki í riðlinum og Króatar verði í
baráttunni um 2. sætið.
B
rasilíumenn eru gestgjafar mótsins og
þurftu af þeim sökum ekki að fara í gegnum
undankeppnina. Hvað sem því líður hefðu
Brassar líklega alltaf tryggt sér þátttökurétt
enda hafa þeir ávallt verið meðal þátttökuþjóða frá
árinu 1930. Veðbankar eru bjartsýnir á gott gengi
enda hefur liðinu gengið vel í undirbúningsleikjum
undanfarin misseri. Þannig hafa Brassar unnið 14
af síðustu 15 leikjum sínum. Liðið er vel mannað en
aldrei þessu vant hafa þó verið sett spurningarmerki
við fremstu víglínu Brasilíumanna, en hana skipa
Fred, Jó og Hulk ásamt Neymar sem líklega mun
spila fyrir aftan framherjann eða á vængnum.
Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð HM frá
upphafi en í fimm skipti frá því að keppnin var fyrst
haldin árið 1930 hafa Brasilíumenn staðið uppi
sem sigurvegarar. Pressan á liðið er mikil enda er
beinlínis ætlast til þess að Brasilíumenn vinni titilinn
á heimavelli. Ljóst er að mikið mun mæða á Neymar
sem þrátt fyrir ungan aldur hefur spilað 47 landsleiki
þar sem hann hefur skorað 30 mörk. Hann færði
sig um set frá Santos í Brasilíu til Barcelona síðasta
sumar og gekk tímabilið upp og ofan hjá Brassanum
unga. Þó að mikið muni mæða á Neymar eru fleiri í
brasilíska hópnum sem geta gert út um leiki. Má þar
nefna Hulk, Oscar og Willian sem allir eru frábærir
knattspyrnumenn.
K
amerún komst á HM með því að leggja Túnis
að velli, 4-1 samanlagt, í umspili. Liðið olli
vonbrigðum í riðlakeppninni þar sem ár-
angurinn á útivelli þótti ekki sæmandi. Þýski
reynsluboltinn Volker Finke er stjóri liðsins en hann
stýrði Freiburg meðal annars um sextán ára skeið,
árin 1991 til 2007. Fáir búast við því að Kamerún verði
í baráttu um að komast upp úr riðlinum. Í liðinu eru
þó reynsluboltar eins og Samuel Eto'o, Alex Song og
Jean Makoun í bland við unga og efnilega leikmenn
eins og miðvörðinn Joel Matip hjá Schalke.
Ekkert Afríkulið hefur tekið oftar þátt í loka-
keppninni en Kamerún, en fáir búast við flugelda-
sýningu frá Afríkuríkinu í sumar. Eldar hafa logað
í kringum liðið; forseti knattspyrnusambandsins
situr í fangelsi vegna spillingarmála, Samuel Eto'o
hefur skotið föstum skotum að samherjum sínum og
hefur tími Finke að undanförnu að stóru leyti farið í
slökkvistarf. Liðið tapaði vinuáttuleik gegn Portúgal,
5-1, í mars síðastliðnum og útlitið er ekki sérstaklega
bjart. Raunar má geta þess að Kamerún hefur aðeins
unnið einn leik í lokakeppni HM frá árinu 1990, en
þá varð Kamerún fyrst Afríkuríkja til að komast í 8
liða úrslit HM. Það er morgunljóst að Kamerún býr
yfir mannskap til að ná góðum úrslitum og með smá
heppni gæti liðið blandað sér í baráttuna um 2. sætið
í riðlinum.
M
exíkóar hafa ávallt háleit markmið fyrir
HM. Undanfarin tuttugu ár hafa Mexíkóar
staðið sig vel í riðlakeppni lokakeppninnar,
en þegar komið hefur verið í 16 liða úrslit
hefur liðið ekki höndlað pressuna og farið heim að
fyrstu hindrun lokinni.
Sannast sagna hafa Mexíkóar oft litið betur út en
fyrir keppnina í Brasilíu. Liðið átti tiltölulega slaka
undankeppni og var liðið í talsverðu basli með að
tryggja sér sæti í lokakeppninni. Eftir umspilsleiki
gegn Nýja-Sjálandi varð þó ljóst að Mexíkóar yrðu
meðal þátttökuþjóða í keppninni. Stjórinn Miguel
Herrera þykir nokkuð sérstakur karakter og í um-
fjöllun World Soccer um mexíkóska liðið kemur fram
að hann kjósi frekar að nota leikmenn sem spila í
Mexíkó frekar en stjörnur liðsins sem spila í Evrópu.
Þannig gæti vel komið til greina að leikmenn eins og
Javier Hernandez og Giovani Dos Santos verði í auka-
hlutverkum, á bekknum, í keppninni. Þá er vert að
geta þess að Carlos Vela, einn allra besti sóknarmað-
ur Mexíkóa, gefur ekki kost á sér í landsliðið vegna
samskiptaörðugleika við mexíkóska knattspyrnu-
sambandið. Ljóst er að pressan á liðið er talsverð
enda hefur Mexíkó alltaf tekist að komast upp úr
riðlakeppni HM frá árinu 1978. Enginn skyldi útiloka
mexíkóska liðið sem mætir til leiks sem nokkuð
óskrifað blað. Liðið mun þó væntanlega berjast um
2. sæti riðilsins ásamt Króötum.
KróatíaBrasilía
KamerúnMexíkó
Þjálfari:
Niko Kovac
Aldur: 42
Þjálfari:
Volker Finke
Aldur: 66
Þjálfari:
Luiz Felipe Scolari
Aldur: 65
Þjálfari:
Miguel Herrera
Aldur: 46
Riðill A Brasilíumenn sigurstranglegir
> Fylgstu með > Fylgstu með
> Fylgstu með> Fylgstu með
> Lykilmaður Neymar > Lykilmaður Luka Modric
> Lykilmaður Samuel Eto'o> Lykilmaður Oribe Peralta
10 Gríðarleg pressa Neymar þarf að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru og vinna HM á
heimavelli.
Aldur: 22
Staða: Framherji/vængmaður
Landsleikir: 47
Mörk: 30
Félagslið: Barcelona
10 Leikstjórnandi Luka Modric var einn af betri leik-mönnum Real Madrid í vetur. Hann og Ivan Rakitic
eru frábærir leikmenn sem væntanlega verða á miðjunni í
sumar.
Aldur: 28
Staða: Miðjumaður
Landsleikir: 73
Mörk: 8
Félagslið: Real Madrid
9 Fremsti maður Samuel Eto'o þarf að eiga stórleiki á HM ætli Kamerúnar sér upp úr riðlakeppninni. Eto'o
er langmarkahæsti maður liðsins.
Aldur: 33
Staða: Framherji
Landsleikir: 112
Mörk: 55
Félagslið: Chelsea
19 Markaskorari Oribe Peralta er aðalframherji Mexíkóa og framar í goggunarröðinni en Javier
Hernandez hjá Manchester United.
Aldur: 30
Staða: Framherji
Landsleikir: 30
Mörk: 16
Félagslið: Club América
Bernard
Yngstur í hópnum hjá
Brasilíu, 21 árs. Eldfljótur
vængmaður sem spilar
með Shakthar Donetsk
í Úkraínu. Gæti fengið
tækifæri til að láta ljós
sitt skína.
Mateo Kovacic
Tvítugur miðjumaður sem
spilar með Inter. Gríðar-
lega hæfileikaríkur og
með mikinn sprengikraft.
Strákur sem hefur alla
burði til að verða einn
besti miðjumaður heims.
Joel Matip
Varnarmaður sem spilar
með Schalke í Þýska-
landi. Mjög öflugur í
loftinu og les leikinn vel.
Nái hann sér á strik gæti
Kamerúnum verið allir
vegir færir.
Carlos Pena
Öflugur miðjumaður
sem getur líka spilað á
vængjunum. Fljótur og
útsjónarsamur leikmað-
ur sem gefur yfirleitt
mjög góðar fyrirgjafir.
Leikmaður sem gæti
farið til Evrópu eftir HM.
Byrjunarlið 4-2-3-1
Á bekknum Markmenn: Jefferson,
Victor Varnarmenn: Dante, Maxwell, Henrique,
Maicon Miðjumenn: Fernandinho, Paulinho,
Hernanes, Willian, Bernard Sóknarmenn: Jô
1
10
6 3 4
Marcelo
16
Ramires
2
Daniel
Alves
17
Luis Gustavo
Julio
Cesar
David
Luiz
7
Hulk
11
Oscar Neymar
9
Fred
Thiago
Silva
Byrjunarlið 4-4-1-1
Á bekknum Markmenn: Daniel Subasic,
Oliver Zelenika Varnarmenn: Danijel Pranjic, Dejan
Lovren, Sime Vrsaljko Miðjumenn: Ognjen
Vukojevic, Marcelona Brozovic, Ivan Mocinic, Sammir,
Sóknarmenn: Eduardo, Nikica Jelavic, Ante Rabic
1
4
21 5 13
Domagoj
Vida
7
Ivan
Rakitic
11
Darijo
Srna
5
Luka
Modric
Stipe
Pletikosa
Gordon
Schildenfeld
16
Ivica
Olic
20
Mateo
Kovacic
Ivan
Perisic
9
Mario
Mandzukic
Vedran
Corluka
Byrjunarlið 5-3-2
Á bekknum Markmenn: José Corona,
Guillhermo Ochoa Varnarmenn: Francisco
Rodriguez, Rafael Marquez, Andrés Guardado, Paul
Guilar Miðjumenn: Marco Fabían, Isaác Brizuela,
Javier AquinoSóknarmenn: Artur Sobiech, Pawel
Brozek
1
21
16 5 15
Miquel
Ponce
3
Carlos
Salcido
7
> Miquel
Layún
23
Jose
Vazquez
Alfredo
Talavera
Hector
Moreno
14
Javier
Hernandez
6
Hector
Herrera
Carlos
Pena
19
Oribe
Peralta
Diego
Reyes
Byrjunarlið 4-3-3
Á bekknum Markmenn: Sammy
N'Djock, Loic Feudjou Varnarmenn: Aurélien
Chedjou, Benoit Assou-Ekotto, Dany Nounkeu, Allan
Nyom Miðjumenn: Jean Makoun, Landry N'Guémo,
Edgar Salli Sóknarmenn: Pierre Webó, Vincent
Aboubakar, Fabrice Olinga
1
13
12 21 3
Henri
Bedimo
18
Eyong
Enoh
24
Cedric
Djeugoue
6
Alex
Song
Charles
Itandje
Nicolas
N'Koulou
17
Stephan
M'bia
9
Samuel
Eto'o
Maxim
Choupo-
Moting
8
Benjamin
Moukandjo
Joel
Matip