Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Síða 62
Helgarblað 6.–9. júní 20146 HM 2014
L
ærisveinar nýja stjórans hjá Manchester
Untied, Luis Van Gaal, byrja keppnina á
svipuðum nótum og þeir luku þeirri síðustu; í
mikilli prófraun gegn ógnarsterkum Spánverj-
um. Þessi fyrsti leikur mun ef til vill segja nokkuð
um framhaldið hjá Hollendingum. Hafa þeir á að
skipa nógu sterku liði til að komast í úrslitaleikinn?
Líklega eiga fæstir von á því. Ef þeir vinna veikari
andstæðinga, og tapa fyrir Spáni, mæta þeir líklega
heimamönnum í Brasilíu í 16 liða úrslitum.Van Gaal
hefur látið hafa eftir sér að allavega tíu lið séu
betur skipuð. „Líkurnar á að komast í undanúrslit
eru svona 20 prósent,“ segir hann. Van Gaal veit
hvað hann syngur. Nokkur endurnýjun hefur átt sér
stað í liðinu og reynslulitlir leikmenn eru aftarlega á
vellinum; leikmenn sem spila í hollensku deildinni.
Á miðjunni gæti fjarvera Kevin Strootman orðið
Hollendingum erfið. Þegar horft er framar á völlinn
er spurning hvort meiðslapésarnir Robin Van Persie
og Arjen Robben hafi orkuna sem til þarf, eftir langt
og strangt tímabil. En ef einhver getur stýrt liðinu
til góðra verka er það hinn reynslumikli Van Gaal.
Liðið vann jú níu af tíu leikjum undir hans stjórn í
undankeppninni. Fáir hafa náð viðlíka árangri, og
njóta meiri virðingar, en einmitt Van Gaal. Það væri
sannarlega afrek ef honum tækist að koma liðinu í
undanúrslit. Hollenskir stuðningsmenn eru uggandi
og það er ljóst að brugðið getur til beggja vona hjá
þeim appelsínugulklæddu á HM í Brasilíu. Kannski
verður spurningunum svarað strax í fyrsta leik.
A
ldrei þessu vant unnu heims- og tvöfaldir
Evrópumeistarar, Spánverjar, ekki alla
leikina í undankeppninni. Fyrir síðustu tvö
stórmót, HM 2010 og EM 2012, höfðu þeir
spilað 18 leiki og unnið þá alla. Að þessu sinni var
leiðin torfærari. Um tíma var ekki útséð með að
þeir myndu vinna riðilinn. Þeim tókst þó að leggja
Frakkland í lokaleik riðilsins og sleppa þannig við
útsláttinn. Spánverjar mæta, sem ríkjandi heims- og
Evrópumeistarar, sigurstranglegir til Brasilíu. Það
verður þeim þó síður en svo auðvelt að vinna tvö
heimsmeistaramót í röð; einhvern tímann tekur
sigurgangan enda. Fyrsti leikurinn verður krefjandi
prófraun; leikur gegn Hollendingum, sem þeir unnu
í úrslitaleiknum fyrir fjórum árum. Þeir mæta einnig
Chile og Ástralíu. Leikurinn gegn Hollandi gæti ráðið
úrslitum um það hvor þjóðin mætir gestgjöfum
Brasilíu í 16 liða úrslitum. Svo er það spurning um
leikformið. Hinn magnaði Xavi er orðinn 34 ára og
hefur ekki vegnað vel með Barcelona á tímabilinu.
Fyrirliðinn í markinu, Iker Casillas, hefur ekki spilað
einn einasta deildarleik í vetur þótt hann hafi spilað
vel í bikarnum og Meistaradeildinni. Minnt skal á að
Victor Valdes er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Hægri bakvarðarstaðan er einnig spurningarmerki,
því Alvaro Arbeloa er meiddur. Þá er annar varnar-
maður, Gerard Pique, nýstiginn upp úr meiðslum.
Framar á vellinum munu Spánverjar binda vonir við
að hinn magnaði Deigo Costa verði á skotskónum.
Á
stralíumenn eru ekki sérstaklega bjartsýnir
fyrir HM, enda eru þeir í sérstaklega erfiðum
riðli. Væntingar standa til þess að frammi-
staðan verði góð – frekar en að gerð sé krafa
um að liðið nái miklum árangri. Mikil kynslóðaskipti
hafa átt sér stað í liðinu að undanförnu, eftir að
sætið á HM var tryggt. Gömlu stjörnurnar, „gullkyn-
slóðin“, voru orðnar of gamlar og of hægar. Nýju
blóði hefur verið hleypt að og Postecoglou hefur leitt
þau umskipti. Ný lið eru dæmd til að gera mistök,
eins og gerðist þegar liðið mætti Ekvador í mars.
Liðið leiddi 3-0 í hálfleik en tapaði leiknum 4-3. Það
verður þó seint sagt að Ástralíumenn séu slakir. Leik-
menn eins og Tom Rogic hjá Celtic og Mathew Leckie
eru afar spennandi ungir leikmenn og liðið getur
orðið mjög gott þegar fram líða stundir. Í dag vinnur
það með þeim að pressan er engin. Enginn væntir
þess að liðið nái í stig, heldur búi sig undir framtíðina.
Veikleikar liðsins eru einfaldlega þeir að þeir hafa
ekki leikmönnum á að skipa sem geta staðist leik-
mönnum hinna liðanna í riðlinum snúning. Gæðin eru
ekki til staðar og þá er ekki gæfulegt að mæta Chile,
Spánverjum og Hollendingum.
C
hile er lið sem spilar ótrúlega góða
knattspyrnu,“ sagði Joachim Löw, landsliðs-
þjálfari Þýskalands, eftir nauman sigur gegn
Suður-Ameríkumönnunum í mars. Landslið
Chile leggur allt kapp á sóknarleikinn og fyrir vikið
stórskemmtilegt lið á að horfa. Þeir leika á háu
tempói og pressa út um allan völl. Leikmennirnir eru
fullir sjálfstrausts eftir gott gengi undanfarin miss-
eri. Liðið, sem lofaði góðu á HM 2010 er núna orðið
gott. Arturo Vidal, miðvallarleikmaður Juventus,
kæmist líklega í hvaða lið sem er og Alex Sanchez
hjá Barcelona er brögðóttur framherji. Sumir vilja
meina að Chile verði það lið á HM í Brasilíu sem mun
koma mest á óvart. Vörnin gæti aftur á móti reynst
Akkilesarhællinn. Þar hafa orðið brestir, sérstaklega
þegar kemur að föstum leikatriðum og háum fyrir-
gjöfum. Ekki bætir úr skák að varnarmaðurinn stæði-
legi, Marcos Gonzalez, er án liðs og hefur ekki spilað
að undanförnu. Það er reyndar líka óljóst hver mun
leiða sóknarleikinn. Humberto Suazo verður líklega
ekki að fullu leikfær og þá er spurning hver hleypur í
það skarð. Alexis Sanchez hjá Barcelona og Eduardo
Vargas hjá Napoli eru báðir hæfleikaríkir en hvorki
stórir né sterkir. Sá veikleiki birtist einmitt gegn
Þjóðverjum, þar sem Chile-menn hefðu getað skorað
sex mörk. Ljóst er að Chile verður að vinna Ástralíu í
fyrsta leik, til að eiga séns á 16 liða úrslitum.
HollandSpánn
ÁstralíaChile
Þjálfari:
Luis Van Gaal
Aldur: 62
Þjálfari:
Ange Postecoglou
Aldur: 48
Þjálfari:
Vicente Del Bosque
Aldur: 63
Þjálfari:
Jorge Sampaoli
Aldur: 54
Riðill B Endurtekning á úrslitaleiknum 2010
> Fylgstu með > Fylgstu með
> Fylgstu með> Fylgstu með
> Lykilmaður Andrés Iniesta > Lykilmaður Arjen Robben
> Lykilmaður Tim Cahill> Lykilmaður Arturo Vidal
6 Prímusmótor Iniesta var valinn besti leikmaðurinn á HM 2010. Spánn þarf á því að halda að hann haldi
dampi.
Aldur: 30
Staða: Miðjumaður
Landsleikir: 94
Mörk: 11
Félagslið: Barcelona
11 Magnaður á góðum degi Hann getur hins vegar verið sinn versti óvinur og með hugann við allt annað.
Ef Robben verður í stuði vegnar Hollendingum vel.
Aldur: 30
Staða: Vængmaður
Landsleikir: 73
Mörk: 22
Félagslið: Bayern München
4 Þekktastur Langöflugasti leikmaður Ástrala. Reynslumikill og hættulegur í föstum leikatriðum
enda eitraður í loftinu, þrátt fyrir að vera ekki hávaxinn.
Aldur: 34
Staða: Sóknarmaður
Landsleikir: 68
Mörk: 32
Félagslið: New York Red Bulls
8 Marksækinn Frábær alhliða leikmaður sem mun bera leik sinna manna uppi. Ógnarsterkur og afar
marksækinn, af miðjumanni að vera.
Aldur: 27
Staða: Miðjumaður
Landsleikir: 53
Mörk: 8
Félagslið: Juventus
Diego Costa
Hefur verið frábær með
Atletico í vetur og er
líklegur til að verða í
byrjunarliðinu, á kostnað
eldri og reyndari manna.
Spurningin er hvort hann
verði orðinn leikhæfur.
Bruno Martins
Þykir einn efnilegasti
leikmaður Evrópu.
Örvfættur miðvörður
frá Feyenoord sem
getur einnig leyst stöðu
bakvarðar.
Tomas Rogic
Efnilegasti leikmaðurinn
sem fram hefur komið í
Ástralíu í mörg ár. Hann
hefur átt í meiðslum og
er enn svolítið óslípaður,
en gæti orðið frábær á
miðjunni.
Alexis Sanchez
Þessi leikmaður
Barcelona er frábær
sóknarmaður með af-
burða knatttækni. Hann
býr yfir miklum hraða.
Byrjunarlið 4-4-1-1
Á bekknum Markmenn: Pepe Reina,
David de Gea Varnarmenn: Raúl Albiol, Javi
Martinez, Juanfran Miðjumenn: Xabi Alonso, Juan
Mata, Koke, Santi Cazorla, David Silva Sóknar-
menn: Diego Costa, David Villa
1
6
2 15 3
Jordi
Alba
8
Xavi
22
Cesar
Azpilicueta
16
Sergio
Busquets
Iker Casillas
Gerard
Pique
11
Pedro
Rodriguez
10
Cesc
Fabregas
Andres
Iniesta
9
Fernando
Torres
Sergio
Ramos
Byrjunarlið 4-2-3-1
Á bekknum Markmenn: Michel Vorm,
Tim Krul Varnarmenn: Ron Vlaar, Paul Verhaegh,
Joel Veltman, Terence Kongolo Miðjumenn: Jordy
Clasie, Leroy Fer, Georginio Wijnaldum Sóknar-
menn: Dirk Kuyt, Jeremain Lens, Klaas-Jan
Huntelaar
1
21
5 4 3
Daley
Blind
6
Nigel de
Jong
7
Daryl
Janmaat
8
Jonathan
de Guzman
Jasper
Cillesen
Stefan de
Vrij
11
Arjen
Robben
10
Wesley
SneijderMemphis Depay
9
Robin van
Persie
B. Martins
indi
Byrjunarlið 5-3-2
Á bekknum Markmenn: Christopher
Toselli, Johnny Herrera Varnarmenn: Eugenio Mena,
Jose Rojas Miðjumenn: Francisco Silva, Carlos
Carmona, Jorge Valdívia, José Fuenzalida, Marcelo
Diaz Sóknarmenn: Mauricio Pinilla, Fábian Orellana
1
11
15
26 18
Jean
Beausejour
8
Arturo
Vidal
17
Gary
Medel
4
Mauricio
Isla
Claudio
Bravo
Gonzalo
Jara
7
Alexis
Sanchez
16
Felipe
Gutierrez
Eduardo
Vargas
20
Charles
Aránguiz
Miliko
Albornoz
Byrjunarlið 4-3-2-1
Á bekknum Markmenn:Mitchell
Langerak, Eugene Galekovic Varnarmenn: Matthew
Spiranovic, Bailey Wright Miðjumenn: Oliver
Bozanic, Ben Halloran, James Holland, Matt McKay,
Dario Vidosic, Massimo Luongo, Mark Breschiano
Sóknarmenn: Methew Leckie, Adam Taggart
1
11
3 19 22
Jason
Davidson
14
James
Troisi
2
Ivan
Franjic
15
Mile
Jedinak
Matthew
Ryan
Alex
Wilkinson
5
Mark
Milligan
7
Metthew
Leckie
Tommy
Oar
4
Tim
Cahill
Ryan
McGowan