Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Qupperneq 64
Helgarblað 6.–9. júní 20148 HM 2014
G
rikkir eru líklega einhver óútreiknanlegasta
knattspyrnuþjóð heims. Það er annaðhvort í
ökkla eða eyra hjá þeim. Skoruðu ekki mark
árið 1994, urðu Evrópumeistarar 2004 og
unnu einn leik á HM 2010. Grikkir eru þekktir fyrir
ótrúlega vinnusemi og agaðan varnarleik – þeir eru
ekki með þekktustu leikmennina innan sinna raða
en enginn skyldi þó vanmeta þá. Grikkir fengu á
sig 4 mörk í 10 leikjum í undanriðlunum en skoruðu
aðeins 12 mörk sem þykir ansi lítið. Þeir enduðu
með jafn mörg stig og Bosníumenn, nema lakara
markahlutfall. 2. sætið í riðlinum skilaði þeim
umspilssæti og komust þeir í lokakeppnina eftir
sigur gegn Rúmeníu. Liðið mætir Kólumbíu í sínum
fyrsta leik hinn 14. júní sem gæti reynst lykilleikur
upp á framhaldið í riðlinum. „Þetta er mjög opinn
riðill,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Fernando Santos,
við World Soccer á dögunum. „Í þessum riðli getur
allt gerst. Mögulega er Kólumbía sterkasta liðið og
líklegast til að enda á toppi riðilsins,“ bætti hann við.
Líklega hárrétt mat hjá Santos sem er reynslumikill
stjóri með langa ferilskrá. Hann hefur stýrt AEK og
Panathinaikos í Grikklandi auk þess sem hann gerði
Porto að meisturum í Portúgal 1999. Grikkir munu
sakna Kyriakos Papadopoulos, varnarmannsins
sterka hjá Scalke, en hann verður ekki með á HM í
sumar vegna meiðsla.
K
ólumbíumenn áttu ágætu gengi að fagna í
undankeppninni og urðu þegar upp var staðið í
2. sæti Suður-Ameríkuriðilsins, tveimur stigum
á eftir Argentínu. Góður og skipulagður varnar-
leikur var lykillinn að árangri liðsins. Ekki má heldur
gleyma framlagi Radamels Falcao sem skoraði þriðjung
marka Kólumbíumanna í undankeppninni, 9 af 27.
Nú eru blikur á lofti. Falcao, einn besti framherji
heims, er ekki í leikmannahópi Kólumbíumanna í loka-
keppninni. Þessi magnaði framherji meiddist illa á hné
í janúarmánuði en um tíma var jafnvel reiknað með
því að hann yrði orðinn leikfær í tæka tíð. Því miður þá
gekk endurhæfingin hægt og í byrjun vikunnar var til-
kynnt að hann yrði ekki með. Mjög slæmar fréttir fyrir
Kólumbíumenn sem hafa ekki verið upp á sitt besta
í síðustu leikjum. Varnarleikurinn, sem var svo góður
í undankeppninni, hefur verið slakur að undanförnu
eins og sást í 1-1 jafnteflinu gegn Túnis í vináttuleik í
mars og í 2-2 jafntefli gegn Senegal á dögunum.
Þrátt fyrir erfiðleika að undanförnu hafa Kól-
umbíumenn tilefni til að vera bjartsýnir. Liðið dróst í
tiltölulega þægilegan riðil, þeir þurfa ekki að ferðast
langt í leiki og þá er keppnin haldin í Suður-Ameríku
sem mun væntanlega bara koma liðinu til góða.
Margir efast um getu Kólumbíumanna til að ná langt
þar sem Falcao verður fjarverandi. Liðið býr þó yfir
nógu góðum mannskap til að komast í 16 liða úrslit, ef
ekki lengra. José Pékerman er auk þess reyndur stjóri
en hann stýrði Argentínumönnum á HM 2006 og gerði
U-20 ára lið Argentínu að heimsmeisturum í þrígang.
J
apanir eru alltaf til alls líklegir en þurfa á öllu
sínu besta að halda til að komast í 16 liða
úrslit. Liðið komst nokkuð sannfærandi á HM
með sigri í sínum riðli í undankeppninni. Liðið
vann góða sigra í lok síðasta árs á Hollendingum og
Belgum í vináttuleikjum og lagði svo Nýja-Sjáland,
4-2, í mars síðastliðnum. Liðið skorar yfirleitt fullt
af mörkum en höfuðverkurinn er varnarleikurinn
þar sem Zaccheroni þarf að stoppa í göt. Japanska
þjóðin er hóflega bjartsýn, að sögn World Soccer, og
veit ekki alveg við hverju á að búast í sumar. Margir
í japanska hópnum spila í Japan að undanskildum
helstu stjörnum liðsins. Liðið ætti að eiga ágæta
möguleika á að komast upp úr riðlinum. Japanir hafa
þó átt í basli gegn þjóðum frá Suður-Ameríku að
undanförnu – þeir hafa tapað illa gegn Brasilíu og
Úrúgvæ á síðustu tólf mánuðum. Árangurinn gegn
Afríkuþjóðum er þó öllu betri. Eins og sannaðist gegn
Belgum og Hollendingum virðist það henta Japönum
ágætlega að spila gegn Evrópuþjóðum. Zaccheroni
er reynslubolti sem komið hefur víða við. Hann þekkir
japanska liðið vel enda hefur hann verið við stjórn-
völinn frá 2010. Þá hefur hann stýrt 13 liðum á Ítalíu
og vann ítölsku deildina með Milan árið 1999. Það er
ljóst að brugðið getur til beggja vona hjá Japan. Liðið
mun þó væntanlega vonast til að jafna árangur sinn
frá HM 2010 þegar liðið komst í 16 liða úrslit.
F
ílabeinsstrendingar verða með á HM í þriðja
skiptið í röð. Í síðustu tveimur keppnum hafa
þeir dregist í erfiða riðla en nú er annað upp á
teningnum. Liðið á fína möguleika á að kom-
ast í 16 liða úrslit. Fílabeinsströndin komst á HM með
því að leggja Senegal að velli í umspili, 4-2 saman-
lagt. Lykilmenn liðsins eru reynsluboltar og má þar
helst nefna Didier Drogba, Kolo Toure og Yaya Toure.
Þessir leikmenn munu þurfa að bera liðið á herðum
sér enda hefur endurnýjunin í leikmannahópi liðsins
ekki verið sérstaklega mikil á undanförnum árum.
Gullkynslóðin er að verða eldri og yngri leikmenn
virðast ekki í stakk búnir til að taka við keflinu, ekki
strax alla vega. Það má því í raun segja að núna sé
kærkomið tækifæri fyrir Fílabeinsströndina að ná
góðum árangri á HM. Þeir leikmenn sem væntanlega
munu skipa byrjunarliðið þekkja hver annan vel
og hafa margir náð góðum árangri með félagslið-
um sínum. Landsliðsþjálfarinn er Frakkinn Sabri
Lamouchi sem er tiltölulega reynslulítill þjálfari.
Hann átti þó góðan feril sem leikmaður og varð til að
mynda franskur bikarmeistari með Auxerre og Frakk-
landsmeistari með Monaco. Það er ljóst að allt getur
gerst hjá liðinu á HM í sumar. Liðið hefur ekki riðið
feitum hesti frá Afríkukeppninni undanfarin ár og
virðist hiksta þegar mikið liggur við. Nái liðið að stilla
saman strengi sína og láta pressuna ekki ná taki á
sér gæti Fílabeinsströndin gert fína hluti á mótinu.
GrikklandKólumbía
JapanFílabeins-
ströndin
Þjálfari:
Fernando Santos
Aldur: 59
Þjálfari:
Alberto Zaccheroni
Aldur: 61
Þjálfari:
José Pékerman
Aldur: 64
Þjálfari:
Sabri Lamouchi
Aldur: 42
Riðill C Hvað gera Kólumbíumenn án Falcao?
> Fylgstu með > Fylgstu með
> Fylgstu með> Fylgstu með
> Lykilmaður Jackson Martinez > Lykilmaður Kostas Mitroglou
> Lykilmaður Keisuke Honda> Lykilmaður Yaya Toure
21 Stórt skarð að fylla Það mun væntanlega koma í hlut Jackson Martinez að fylla í skarð
Falcao. Martinez er stór og stæðilegur framherji sem hefur
skorað 60 mörk í 91 leik með Porto.
Aldur: 27
Staða: Framherji
Landsleikir: 26
Mörk: 8
Félagslið: Porto
9 Markahrókur Kostas Mitroglou átti í basli hjá Ful-ham eftir áramót og spilaði lítið. Hann hefur æft vel að
undanförnu og þarf að vera í sínu besta formi á HM í sumar.
Aldur: 26
Staða: Framherji
Landsleikir: 28
Mörk: 8
Félagslið: Fulham
4 Spilar á Ítalíu Honda er alltaf upp á sitt besta með Japönum. Samvinna hans, Shinji Kagawa og Shinji
Okazaki er jafnan frábær.
Aldur: 27
Staða: Sóknarsinnaður miðjumaður
Landsleikir: 53
Mörk: 20
Félagslið: AC Milan
19 Skorar og skorar Toure var frábær fyrir Man-chester City í vetur og skoraði 24 mörk í það heila.
Hann verður algjör lykilmaður hjá Fílabeinsströndinni í
sumar.
Aldur: 31
Staða: Miðjumaður
Landsleikir: 82
Mörk: 16
Félagslið: Manchester City
James Rodriguez
Skruggufljótur væng-
maður sem var seldur til
Monaco fyrir stórfé síð-
asta sumar. Leikmaður
sem mikið mun mæða á
í sóknarleik Kólumbíu-
manna í sumar.
Sokratis P.
Ógnarsterkur miðvörður
sem spilar með Borussia
Dortmund í Þýskalandi.
Ótrúlega útsjónarsamur
og baráttuglaður leik-
maður sem mun pottþétt
byrja alla leiki Grikkja.
Yoichiro Kakitani
Þessi 24 ára framherji
hefur átt góðu gengi að
fagna á stuttum lands-
liðsferli sínum. Skorað 4
mörk í 9 landsleikjum og
gæti byrjað fremstur á
vellinum í sumar.
Serge Aurier
Ungur varnarmaður
sem átti frábært tímabil
með Toulouse í vetur.
Góður varnarmaður en
ekki síðri þegar hann
keyrir upp kantinn til að
taka þátt í sókninni.
Byrjunarlið 4-3-3
Á bekknum Markmenn: Camilo Vargas,
Faryd Mondragón Varnarmenn: Cristián Zapata,
Santiago Arias, Carlos Valdez, Éder Balanta
Miðjumenn: Juan Cuadrado, Aldo Ramirez, Victor
Ibarbo, Alexander Mejía Sóknarmenn: Teófilo
Gutierrez, Adrian Ramos
1
17
7 3 23
Pablo
Armero
15
Fredy
Guarín
18
Camilo
Zuniga
5
Carlos
Sanchez
David
Ospina
Carlos
Valdez
10
James
Rodriguez
7
Abel
Aguilar
Carlos
Bacca
21
Jackson
Martinez
Mario
Yepes
Byrjunarlið 4-3-2-1
Á bekknum Markmenn: Panagiotis
Glykos, Stefanos Kapino Varnarmenn: Giannis
Maniatis, Giorgos Tzavellas, Vangelis Moras, Loukas
Vyntra Miðjumenn: Panagiotis Kone, Giorgos
Karagounis, Giannis Fetfatzidis, Andreas Samaris,
Panagiotis Tachtsidis Sóknarmenn: Theofanis Gekas
1
7
20 19 4
Jose
Holebas
21
Kostas
Katsouranis
17
Vassilis
Torosidis
6
Alexandros
Tziolis
Orestis
Karneziz
Kostas
Manolas
2
Giorgos
Karagounis
14
Dmitris
Salpangidis
Georgios
Samaras
9
Kostas
Mitroglou
Sokratis
Byrjunarlið 4-4-2
Á bekknum Markmenn: Sylvain
Gbohouo, Saouba Mandé Varnarmenn: Didier
Zokora, Arthur Boka, Ousmane Viera, Constant
Djakpa, Jean Akpa-Akpro Miðjumenn: Didier Ya
Konan, Serey Die, Mathis Bolly, Ismael Diomande
Sóknarmenn: Wilfried Bony, Giovanni Sio
1
10
14 19 15
Ismael
Diomande
19
Yaya Toure
20
Serge
Aurier
5
Cheick
Tiote
Boubacar
Barry
Souleymane
Bama
16
Max
Gradel
8
Salomon
Kalou
Gervinho
11
Didier
Drogba
Kolo
Toure
Byrjunarlið 4-2-3-1
Á bekknum Markmenn: Shusaku
Nishikawa, Shuichi Gonda Varnarmenn: Gotoku
Sakai, Yuto Nagatomo, Masahiko Inoha, Hiroki Sakai
Miðjumenn: Yasuhito Endo, Makoto Hasebe
Sóknarmenn: Hiroshi Kiyotake, Yoshito Ökubo,
Yuya Ösako, Manabu Saito
1
10
15 6 22
Yasuyuki
Konno
16
Hotaru
Yamaguchi
2
Atsuto
Uchida
14
Toshihiro
Aoyama
Eiji
Kawashima
Maya
Yoshida
9
Shinji
Okazaki
7
Keisuke
HondaShinji Kagawa
11
Yoichiro
Kakitani
Masato
Morishige