Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 66
Helgarblað 6.–9. júní 201410 HM 2014
n Flestir spá Brasilíu og Spánverjum velgengni n En hvað mun koma mest á óvart og hver verður markakóngur? n Hver veldur vonbrigðum?
Spekingar spá í spilin
Hollendingar sitja eftir
Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur í Pepsi-deild karla:
n Með hverjum heldur þú? „Ítalíu.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari? „Brasilía. Þeir klára þetta á
heimavelli.“
n Hver verður markakóngur? „Lionel Messi.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum? „Holland. Þeir sitja eftir í
sínum riðli.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Japan. Þeir fara í 8-liða úrslit.“
n Hver verður besti maður mótsins? „Það verður einhver úr sigurliðinu.
Ég tippa á Thiago Silva.“
Bikarinn fer til Suður-Ameríku
Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolti.net:
n Með hverjum heldur þú? „Ég styð Spánverja eins og alltaf. Tek fram að
ég er ekki „glory hunter“ sem hoppaði á lestina eftir að þeir fóru að vinna
stórmót. Þeir hafa verið mínir menn frá því að ég var níu ára.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari? „Því miður mun sigurgöngu Spán-
verja ljúka í sumar. Bikarinn verður eftir í Suður-Ameríku. Lionel Messi klárar
þetta með Argentínumönnum.“
n Hver verður markakóngur? „Messi á eftir að bæta upp fyrir „lélegt“
tímabil á sinn mælikvarða hjá Barcelona. Leiðir Argentínu til sigurs og
stimplar sig inn sem sá besti í sögunni.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum? „England er klassískt
svar, er ekki viss um að þeir fari upp úr riðlinum. Held samt að Hollendingarnir
verði í basli og valdi mestum vonbrigðum.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Margir tala um Belgana hér en ég
held að för þeirra endi í 16 liða úrslitunum. Ég ætla að tippa á að Bosnía-
Hersegóvína komi skemmtilega á óvart með Edin Dzeko í broddi fylkingar.
Fara áfram í 8 liða úrslit á fyrsta heimsmeistaramóti sínu.“
n Hver verður besti maður mótsins? „Messi tekur þann titil. Þetta er
sumarið hans.“
Kólumbía spútnik
Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
fjölmiðla- og leikkona:
n Með hverjum heldur þú? „Síðari ár hef ég haldið með
Spáni og það hefur auðvitað ekkert að gera með það hve
fagrir leikmennirnir eru.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari? „Spánn #biluð-
plata.“
n Hver verður markakóngur? „Týpíska svarið er Ronaldo.
En út af því að hann er óbærilegur með öllu ætla ég að
halda því fram að þetta verði árið hans meistara Messi.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum?
„Hollendingar valda mér alltaf persónulega mjög miklum
vonbrigðum, sem og England. Býst ekki við að það breytist
í bráð.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Spútnik-liðið
Kólumbía landar bronsinu. Mark my words.“
n Hver verður besti maður mótsins? „Sergio Ramos.
Sagðirðu ekki annars fallegasti?“
Belgar munu bregðast
Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður:
n Með hverjum heldur þú?
„Ég held alltaf með Englendingum.
Ég geri mér grein fyrir því að það er
sjúklega plebbalegt en þannig er ég bara. Til vara: Hollendingar.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari?
„Brasilía eða Argentína. Heimavöllurinn, þannig séð, mun skipta máli.“
n Hver verður markakóngur?
„Thomas Muller.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum? „Belgar. Af því að það
búast allir við svo rosalega miklu. Og svo munu Frakkar gera upp á bak eins
og svo oft áður.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Vinir mínir í Kólumbíu. Til vara
lið frá Afríku, Gana eða Nígería.“
n Hver verður besti maður mótsins?
„Ronaldo. Af því að hann er bestur í fótbolta. Í heimi.“
Neymar verður í sambastuði
Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is:
n Með hverjum heldur þú? „Það eru alltaf þrjú ljón á skyrtunni hjá minni
þegar að stórmót í fótbolta fer af stað. England fer ekki langt en ég myndi segja
að ég væri ansi harður stuðningsmaður Englands.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari? „Ef ég væri spilafíkill þá myndi ég
hólka seðlunum mínum á Þýskaland. Ótrúlegur leikmannahópur sem hefur ekki
staðið undir væntingum á síðustu stórmótum. Þýska stálið tekur þetta í ár.“
n Hver verður markakóngur? „Neymar tekur þetta, mun bera upp Brasilíu á
heimavelli og verður í sambastuði. Ég þoli hann ekki sem leikmann en það er
erfitt að neita því að hann hefur gæðin.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum? „Ég ætla að tippa á að
Ítalía fari ekki upp úr riðlinum sínum. England og Úrúgvæ fara áfram úr þeim
riðli og sykursætu strákarnir frá Ítalíu fara heim með sárt ennið. Ekki ólíklegt
að Balotelli verði til vandræða.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Nú ætla ég ekki að láta skynsemina
ráða og ætla að tippa á að England komi á óvart, mikið magn af ungum og
efnilegum piltum þar. Þeir gætu alveg farið langt því pressan á þá ensku hefur
sjaldan verið minni.“
n Hver verður besti maður mótsins? „Ég tel að Þýskaland vinni og þá hlýtur
sá besti að koma úr þeirra röðum, atkvæði mitt fyrir mót fær Thomas Muller.
Virkar eins og hann geti ekkert í fótbolta en seiglan í honum er ótrúleg.“
Vonbrigði Englendinga
Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals
í Pepsi-deild kvenna:
n Með hverjum heldur þú? Ég hef alltaf haldið með
Englandi en Spánn hefur líka verið mitt lið að undanförnu.“
n Hvaða þjóð verður heimsmeistari? „Ég held það verði
Brasilía.“
n Hver verður markakóngur? „Ég held að það verði
einhver Brassi, líklega Neymar.“
n Hvaða þjóð mun valda mestum vonbrigðum?
„Ég hugsa að það gæti orðið England – svona eins og
vanalega.“
n Hvaða þjóð mun koma mest á óvart? „Það er dálítið
erfitt að segja. Ég held að Portúgal muni samt fara langt.“
n Hver verður besti maður mótsins? „Það verður
einhver úr brasilíska liðinu. Segjum bara Neymar.“