Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 70
Helgarblað 6.–9. júní 201414 HM 2014
E
itthvað þarf að ganga á svo Frakkland og
Sviss komist ekki í 16 liða úrslitin í E-riðli. Þótt
knattspyrna í Ekvador hafi tekið stórstígum
framförum á undanförnum þrjátíu árum
eiga þeir nokkuð í land til að komast í fremstu
röð. Þjálfarinn er þó hvergi banginn. „Það eru sjö
leikir í boði á HM og ég vil taka þátt í þeim sjöunda.“
Ekvador tekur nú þátt í HM í þriðja sinn og mætir til
leiks með ágætt lið. Nokkur reynsla er komin í liðið,
sem er líkamlega sterkt og býr yfir hraða og leikni á
köntunum. Þeir skoruðu aðeins 20 mörk í 16 leikjum
í undankeppninni. Liðið skapar sér færi en skortir
tilfinnanlega góðan markaskorara. Aðal framherj-
inn, Felipe Caicedo, sem lék með Manchester City
á árunum 2008 til 2011 en leikur nú í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum er bestur fram á við. Hann
skoraði sjö mörk í undankeppninni, þar af þrjú af
vítapunktinum. Fjögur mörk úr opnu spili í 16 leikjum
er ekki gott veganesti fyrir markaskorara sem er að
fara að spila á HM.
Í vörninni nýtur Ivans Hurtado ekki lengur við, en
hann var límið í vörninni í 15 ár. Öflugasti varnar-
maðurinn, Jayro Campos, hefur glímt við meiðsli og
Fricson Erazo hefur átt afleitt tímabil hjá Flamengo
– og kemur sjaldan við sögu. Rueda hefur viður-
kennt í viðtölum að varnarleikurinn sé brothættur.
Þrjú mörk í andlitið í fyrri hálfleik gegn Ástralíu á
dögunum undirstrikaði þá veikleika – þótt liðið hafi
að lokum haft 4-3 sigur.
S
viss er á HM þriðja skiptið í röð. Árið 2006 urðu
þeir fyrsta liðið til að falla úr leik án þess að fá
á sig mark.
Liðið skoraði fjögur mörk í riðlakeppninni
og komst í 16 liða úrslit þar sem þeir töpuðu í leik
gegn Úkraínu, sem fór markalaus í vítaspyrnukeppni.
Í síðustu keppni skoruðu þeir eitt mark og féllu úr
leik við fyrstu hindrun. Lærisveinar Ottmar Hitzfeld
stefna nú hærra, enda í riðli sem ætti að gera þeim
það kleift.
Svisslendingar, sem eru Íslendingum að góðu
kunnir, unnu riðilinn og komust á HM nokkuð
örugglega. Þeir eru með ungt og sóknarsinnað lið,
þótt fæstir lykilleikmennirnir séu reyndar af sviss-
neskum ættum. Um er að ræða kjarnann úr liðinu
sem varð heimsmeistari U-17 ára 2009 og komst í
úrslit Evrópumótsins U-21 árs 2011, þar sem íslenska
gullkynslóðin okkar var á meðal þátttökuþjóða.
Vandamálið í Brasilíu verður ef til vill varnarleikurinn.
Þar eru menn eins og Philippe Senderos, Johan
Djourou og Steve Von Bergen, sem allir hafa átt erfið
tímabil hjá félagsliðum sínum.
Liðið getur unnið alla á góðum degi (unnu t.d.
Brasilíu í Basel í fyrra) en misst niður unna leiki, eins
og á móti Íslendingum í riðlakeppninni, þar sem 4-1
forysta nægði liðinu ekki til sigurs. Liðinu stýrir afar
reyndur þjálfari, Ottmar Hitzfeld, sem gæti náð því
besta út úr sínum mönnum.
Þ
egar dregið var í riðla í undankeppninni bjóst
enginn við því að Honduras myndi komast á
HM. Burðarásar í liðinu voru hættir og gæðin
virtust ekki vera til staðar. En þegar leið á
keppnina varð ljóst að Hondúras gat, eins og Ísland,
komið á óvart. Liðinu tókst með sterkri liðsheild og
miklum baráttuanda í frækilegum sigri á Mexíkó, að
krækja í þriðja sætið, á eftir Kosta Ríka og Bandaríkj-
unum. Hondúras var öllum að óvörum komið á HM í
annað skiptið í röð. Segja má að þjóðhátíðarstemn-
ing hafi brotist út í landinu þegar úrslitin urðu ljós.
Þrátt fyrir að liðinu hafi tekist hið ómögulega er þar
ekki nema hálf sagan sögð. Liðið virkaði á köflum
mjög brothætt í undankeppninni og sú hefur einnig
verið raunin síðan. Suarez þjálfari er líklega með
einhvern lakasta leikmannahópinn í keppninni. Þrátt
fyrir að vera í auðveldasta riðlinum, E-riðli, liggur
við að kraftaverk þurfi til að liðið komist í 16 liða
úrslit. Maynor Figueroa, leikmaður Hull, og Wilson
Palacios, leikmaður Stoke City, bera enn höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn í liðinu. Þó má í hópnum
finna efnilega leikmenn á borð við Roger Espinoza og
Juan Carlos Garcia, leikmenn Wigan, sem hafa enn
ekki tekið þeim framförum sem til þarf til að verða
frábærir leikmenn. Reyndar er ferill bakvarðarins
Emilio Izaguirre hjá Celtic á uppleið og hann gæti
orðið góður. En Hondúras-liðið kemur reglulega á
óvart. Þeir þurfa á því að halda í Brasilíu.
F
rakkar sluppu með naumindum inn á HM
eftir að hafa tapað fyrri umspilsleiknum
gegn Úkraínu 2-0. Þeir unnu seinni leikinn
3-2. Það er augljóst á leikmannahópnum að
liðið hefur burði til að fara langt í keppninni, eins og
svo oft áður. Stundum leika Frakkar á als oddi en
þess eru dæmi að liðið verði sér til skammar með
frammistöðu sinni – eins og gerðist 2010 þegar
þeir skoruðu eitt mark og unnu ekki leik. Það er
erfitt að veðja á Frakka fyrirfram. Liðið er fullt af
bráðefnilegum og hæfileikaríkum leikmönnum sem
gætu sprungið út. Hugo Lloris er frábær í markinu,
Raphael Varane er fæddur leiðtogi í vörninni, Paul
Pogba er ógnarsterkur miðjumaður og Evrópumeist-
arinn Karim Benzema er á hátindi ferils síns. Þá eru
Franck Ribery, einn sá besti í heimi, Oliver Giroud hjá
Arsenal, Yohan Cabaye hjá PSG og reynsluboltinn
Patrice Evra ónefndir. Ef plan A gengur ekki upp er
spurning hverju Deschamps bryddar upp á. Moussa
Sissoki og Dmitri Payet eru kannski ekki mest
spennandi varamenn í heimi. Spurningin er hvernig
liðið mætir stemmt til leiks og hvort lykilmenn verði
heilir. Frakkar eru fyrirfram taldir í auðveldasta riðli
mótsins og það yrði annar skandall ef þeir kæmust
ekki í 16 liða úrslitin. Í ljósi þess hversu tæpt það
stóð að Frakkar kæmust á HM má ljóst vera að
Deschamps þjálfari má hafa sig allan við til að koma
liðinu í HM-gírinn.
EkvadorSviss
HondúrasFrakkland
Þjálfari:
Reinaldo Rueda
Aldur: 57
Þjálfari:
Luis Fernando Suarez
Aldur: 54
Þjálfari:
Ottmar Hitzfeld
Aldur: 65
Þjálfari:
Didier Deschamps
Aldur: 45
Riðill E Gera Frakkar aftur upp á bak?
> Fylgstu með > Fylgstu með
> Fylgstu með> Fylgstu með
> Lykilmaður Xherdan Shaqiri > Lykilmaður Antonio Valencia
> Lykilmaður Carlo Costly> Lykilmaður Karim Benzema
23 Orkubolti Þessi frábæri sóknarmaður, eða væng-maður, gæti sprungið út á mótinu. Ótrúlega leikinn
og fljótur. Pep Guardiola hefur sagt hann vera mikilvægasta
varnarmann Bayern München-liðsins.
Aldur: 23
Staða: Sóknarmaður
Landsleikir: 30
Mörk: 8
Félagslið: Bayern Munchen
16 Snar í snúningum Hefur verið algjör lykilmaður í liðinu á undanförnum árum. Ótrúlega fljótur leik-
maður sem getur verið frábær á góðum degi.
Aldur: 28
Staða: Vængmaður
Landsleikir: 69
Mörk: 8
Félagslið: Manchester United
13 Skæður Costly leikur með Real España í heima-landinu og er skæður og fjölhæfur framherji sem
getur skorað úr þröngum færum.
Aldur: 31
Staða: Framherji
Landsleikir: 68
Mörk: 30
Félagslið: Real España
10 Í toppformi Myndar eina bestu þrenningu heims með Ronaldo og Gareth Bale hjá Real Madrid. Er í
toppformi og fullur sjálfstrausts.
Aldur: 26
Staða: Framherji
Landsleikir: 65
Mörk: 19
Félagslið: Real Madrid
Josip Drmic
Hefur skotist inn í liðið
eftir frábært tímabil fyr-
ir Nurnberg í Þýskalandi,
þar sem hann skoraði 17
mörk. Getur leikið hvar
sem er framarlega á
vellinum.
Jefferson Montero
Leikur í Mexíkó en hefur
leikið fyrir Betis og Levante
á Spáni. Ógnarfljótur leik-
maður, sem leikur á vinstri
kanti og getur með hraða
sínum splundrað upp vörn
andstæðinganna.
Jerry Bengtson
Spennandi framherji
sem spilar í MLS-
deildinni. Getur skotið
með báðum fótum og er
sterkur í loftinu.
Paul Pogba
Þessi 21 árs gamli
leikmaður Juventus er
að verða heimsklassa
miðjumaður. Allt í senn
kraftmikill, leikinn og
skapandi leikmaður.
Byrjunarlið 4-5-1
Á bekknum Markmenn: Yann Sommer,
Roman Burki Varnarmenn: Reto Ziegler, Philppe
Senderos, Michael Lang, Johan Djourou Miðjumenn:
Tranquillo Barnetta, Blerim Dzemaili, Gelson
Fernandes Sóknarmenn: Haris Seferovic, Mario
Gavranovic, Admir Mehmedi
1
14
13 5 22
Ricardo
Rodriguez
8
Gökhan
Inler
2
Stephan
Lichtsteiner
10
Granit
Xhaka
Diego
Benaglio
Fabian
Schar
11
Valon
Behrami
23
Xherdan
Shaqiri
Valentin
Stocker
19
>Josip
Drmic
Steve
von Bergen
Byrjunarlið 4-5-1
Á bekknum Markmenn: Stephane
Ruffier, Mickael Landreau Varnarmenn: Mathieu
Debuchy, Raphael Varane, Eliaquim Mangala, Lucas
Digne Miðjumenn: Antoine Griezmann, Rio Mavuba,
Moussa Sissoko, Clément Grenier Sóknarmenn: Loic
Remy
1
10
14 13 15
Patrice
Evra
18
Blaise
Matuidi
15
Bacary
Sagna
5
Yohan
Cabaye
Hugo
Lloris
Laurent
Koscielny
16
Paul
Pogba
7
Mathieu
Valbuena
Franck
Ribery
9
Karim
Benzema
Mahmadou
Sakho
Byrjunarlið 4-2-2-2
Á bekknum Markmenn: Adrián Bone,
Alexander Domínguez Varnarmenn: Óscar Bagui,
Gabriel Achilier Miðjumenn: Renato Ibarra,
Christian Noboa, Joao Rojas, Michael Arroyo, Luis
Saritama, Fidel Martínez, Carlos Gruezo Sóknar-
menn: Enner Valencia
1
10
10 3 2
Walter
Ayoví
18
Edison
Mendez
4
Juan
Paredes
14
Segundo
Castillo
Maximo
Banguera
Jorge
Guagua
16
Antonio
Valencia
11
Felipe
Caicedo
Jefferson
Montero
17
Jaime
Ayoví
Fricson
Erazo
Byrjunarlið 4-2-3-1
Á bekknum Markmenn: Luis López,
Donis Escober Varnarmenn: Osman Chavez, Juan
Montes, Juan Garcia, Brayan Beckeles Miðjumenn:
Mario Martinez, Edder Delgado, Óscar Garcia, Luis
Garrido, Jorge Claros, Marvin Chavez Sóknarmenn:
Rony Martinez, Jerry Palacios
1
10
7 3 15
Emilio
Izaguirre
8
Wilson
Palacios
21
Bryan
Beckeles
20
Jorge
Claros
Noel
Valladares
Victor
Bernandez
17
Andy Najar
11
Jerry
BengtsonRoger Espinoza
9
Carlo
Costly
Maynor
Figueroa