Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 74
Helgarblað 6.–9. júní 201418 HM 2014
Óbilandi sjálfstraust
en hæfilega kærulaus
n Aron á leið á HM með Bandaríkjunum n Ekki sjálfgefið að hann yrði atvinnumaður
S
ama dag og opnunarleikur
HM 2010 fór fram var Aron
Jóhannsson í eldlínunni í
1. deildinni á Íslandi með
Fjölnismönnum í 4–0 sigri
á ÍR. Nú, fjórum árum síðar, er þessi
23 ára leikmaður á leiðinni á sjálft
heimsmeistaramótið með banda-
ríska landsliðinu. Það er ljóst að mik-
ið vatn hefur runnið til sjávar á þess-
um fjórum árum sem liðin eru. DV
ræddi við nokkra aðila sem þekkja vel
til Arons. Honum er lýst sem hógvær-
um og rólegum strák sem lagði mikið
á sig til að verða atvinnumaður.
Alinn upp hjá Fjölni
Aron er alinn upp hjá Fjölni og spil-
aði með liðinu nánast allan sinn
yngri flokka feril. Hann lék þó eitt
sumar, árið 2005, þegar hann var
fimmtán ára, með Breiðabliki en
skipti strax aftur yfir í Fjölni um
haustið. Það er samdóma álit þeirra
sem DV ræddi við að Aron hafi búið
yfir hæfileikum til að ná langt, en það
hafi langt í frá sjálfgefið að hann yrði
atvinnumaður í knattspyrnu. Hann
hafi lagt hart að sér og uppskorið
eins og hann sáði.
Sló í gegn 2010
Aron lék sína fyrstu meistara-
flokksleiki með Fjölni í Landsbanka-
deildinni sálugu sumarið 2008.
Þá var Aron aðeins 17 ára og kom
hann við sögu í þremur leikjum það
tímabil. Sumarið 2009 féll Fjölnir úr
efstu deild en það sumar tókst Aroni
að skora 1 mark í 16 leikjum. Í 1.
deildinni sumarið 2010 fór Aron fyrst
að vekja athygli á sér fyrir alvöru.
Hann varð markakóngur deildarinn-
ar, skoraði 12 mörk í 18 leikjum, og
vakti árangur hans athygli útsendara
erlendra liða. Svo fór að danska 1.
deildarfélagið AGF klófesti Aron síð-
sumars 2010. Danska liðið tryggði
sér í kjölfarið sæti í úrvalsdeildinni
þar sem Aron fór á kostum. Fyrsta
tímabil sitt skoraði Aron sjö mörk
en tímabilið 2012/2013 var hann
óstöðvandi og skoraði 14 mörk í 18
leikjum. Í janúar 2013 var Aron svo
seldur til AZ Alkmaar þar sem hann
hefur haldið uppteknum hætti, skor-
að mörk, spilað vel og vakið athygli
enn stærri félaga.
Sjaldséð yfirvegun
„Ég hafði á orði við félaga mína utan
Fjölnis að þessi strákur væri efni-
legasti leikmaður sem ég hefði æft
með. Ég held að menn hafi trúað
því mátulega því hann virkaði ekk-
ert miklu hæfileikaríkari en margir
aðrir í fyrstu,“ segir Viðar Guðjóns-
son sem spilaði með Aroni sumarið
2010 hjá Fjölni. Viðar og Aron skor-
uðu einmitt tvö mörk hvor í leikn-
um gegn ÍR sem vísað er til í upphafi
greinarinnar. Viðar bætir við að hann
beri mjög gott skynbragð á leikinn
og hafi afskaplega næmt auga fyrir
því að gera réttu hlutina framarlega
á vellinum. „Yfirvegun sem er sjald-
séð á Íslandi,“ segir hann.
Fæðist enginn með þessa hæfileika
Kristján Einarsson, formaður
knattspyrnudeildar Fjölnis, tekur
undir með Viðari, en hann þekkir vel
til Arons. „Hann hafði alla möguleika
á að ná langt en það var ekkert sjálf-
gefið á sínum tíma að hann ætti eft-
ir að verða atvinnumaður.“ Kristján
segir að Aron hafi þó alltaf lagt gríðar-
lega hart að sér og það hafi skilað sér.
„Þeir sem ná svona langt leggja meira
á sig en aðrir. Það fæðist enginn með
þessa hæfileika.“ Ásmundur Arnars-
son, þjálfari Fylkis, þjálfaði Aron
þegar hann var að stíga sín fyrstu
skref í meistaraflokki með félaginu.
Ásmundur segir að það hafi snemma
orðið ljóst að Aron hefði möguleika á
að ná langt en það hafi verið hans að
vinna úr þeim möguleikum. „Hann
tók rétta stefnu veturinn 2009/2010
og eftir það varð ekki aftur snúið.
Hann hefur tekið miklum framförum
síðan hann fór í atvinnumennsku og
haldið áfram að taka framförum. Það
var ekkert endilega augljóst að hann
myndi slá í gegn í Danmörku því
hann átti eftir heilmikla vinnu.“
„Sjálfsöruggur strákur“
Aroni er lýst sem hógværum dreng
sem auðvelt sé að eiga samskipti við.
Hann hafi þó tröllatrú á hæfileikum
sínum án þess þó að vera hrokafull-
ur „Hann er sjálfsöruggur strákur
sem hefur trú á því að hann sé betri
í fótbolta en aðrir. Hann hefur náð
að láta það vinna með sér og tekist á
við þær áskoranir sem falla honum í
skaut með réttu hugarfari. Hann er
fínn í hópi og alltaf stutt í brosið hjá
honum,“ segir Viðar. Kristján tekur
undir þetta. „Hann er hógvær strák-
ur og það er mjög gott að eiga sam-
skipti við hann.“ Ásmundur segir að
Aron sé mikill húmoristi og alltaf líf
og fjör í kringum hann. „Svo hefur
hann óbilandi sjálfstraust og er hæfi-
lega kærulaus sem er ágætis blanda.“
Ótrúlegar kröfur KSÍ
Sú ákvörðun Arons að spila fyrir
bandaríska landsliðiðið vakti mikla
athygli á sínum tíma. Aron fæddist í
bænum Mobile í Alabama í Banda-
ríkjunum þann 10. nóvember 1990
og hafði af þeim sökum möguleika
á að spila með bandaríska liðinu.
Mikið fjaðrafok varð sumarið 2013
þegar Aron ákvað að gefa kost á sér
í bandaríska liðið frekar en það ís-
lenska. Knattspyrnusamband Ís-
lands sá ástæðu til að senda frá sér
sérstaka yfirlýsingu vegna málsins
þar sem fram kom að Aron ætti að
leika fyrir Ísland, hann hafi hlotið
„knattspyrnulegt uppeldi innan vé-
banda KSÍ“ og leikið með U21 árs
landsliði Íslands. Aron lét kröfur
KSÍ sem vind um eyru þjóta og stóð
fastur á sinni ákvörðun. Hann sér
væntanlega ekki eftir því enda á leið
á heimsmeistaramótið í knattspyrnu,
fyrstur Íslendinga.
Væntanlega á bekknum
Aron hefur nú þegar leikið átta lands-
leiki fyrir Bandaríkin og skorað tvö
mörk. Hann hefur ekki verið í byrj-
unarliðinu í síðustu vináttuleikjum
Bandaríkjanna fyrir mótið og má því
búast við því að hann byrji mótið á
varamannabekknum. „Aron mun
mjög líklega spila á mótinu. Að öllum
líkindum mun hann ekki byrja fyrsta
leikinn. En hann er sá sem Bandaríkja-
menn munu leita til ef hressa þarf upp
á sóknarleikinn,“ segir Viðar. Kristján
segist vona að Aron fái tækifæri til að
láta ljós sitt skína. „Það er bara þannig
með þessa íslensku stráka að þegar
kemur ný áskorun þá stíga þeir upp.
Ég vona að hann fái einhverjar mín-
útur, skori tvö til þrjú mörk og verð svo
seldur fyrir fúlgur fjár,“ segir Kristján
að lokum og hlær. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is „Þeir sem ná
svona langt
leggja meira á sig en
aðrir. Það fæðist enginn
með þessa hæfileika.
Vann vel úr sínu Ásmundur Arnarsson segir
að Aron hafi haldið rétt á spilunum og haldið
áfram að taka framförum. Það var samt ekki
augljóst að hann myndi slá í gegn erlendis.
Marki fagnað Aron fagnar
hér sínu öðru landsliðsmarki
með Bandaríkjunum. Þegar
HM 2010 fór fram spilaði
hann í 1. deildinni á Íslandi.