Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Side 42
Helgarblað 5.–8. september 201442 Skrýtið Sakamál
Legokubbar
leystu gátuna
Lögreglan í Utah í Bandaríkjunum
notaði legokubba til að ráða fram
úr 23 ára morðgátu. Það var árið
1991 að Lucille Johnson var myrt
á heimili hennar. Á meðal þeirra
sönnunargagna sem lögregla lagði
hald á voru legokubbar.
Á þeim tíma tókst lögreglu ekki
að ráða fram úr því hvort og þá
hvernig legokubbarnir kæmu við
sögu í glæpnum. Nú hafa þess-
ir sömu kubbar orðið til þess að
ákæra hefur verið gefin út á hend-
ur John Sansing, manninum sem
grunaður er um að hafa myrt
Johnson.
„Það liggur fyrir að Sansing
notaði barefli til að ráða Lucille
bana,“ segir Jim Winder, fulltrúi
lögreglunnar í Salt Lake-sýslu. Svo
virðist vera sem fimm ára sonur
hans hafi verið viðstaddur glæp-
inn og leikið sér með umrædda
legokubba á stofugólfinu á heimili
Johnson því fingraför hans fund-
ust á þeim.
Að þetta breyti einhverju um
framtíð Sansings þykir ólíklegt,
enda bíður hann þess að verða
tekinn af lífi vegna morðs sem
hann var dæmdur fyrir í Arizona
og þá er hann grunaður í öðrum
óleystum morðmálum.
Að sögn lögreglu þekkti John-
son ekki Sansing en svo virðist
sem hún hafi engu að síður hleypt
honum inn á heimili hennar.
Prestur drap
14 ára stúlku
Jose Molina, 31 árs prestur í
Mexíkó, hefur verið ákærður fyrir
að hafa orðið fjórtán ára stúlku
að bana. Að sögn breska blaðsins
Mirror hafði presturinn átt í kyn-
ferðislegu sambandi við stúlkuna
í um tvö ár.
Hann er sagður hafa misst
stjórn á sér þegar stúlkan tjáði
honum að hún ætlaði að enda
sambandið eftir að hafa orðið
ástfangin af unglingspilti. Að sögn
lögreglu hefur Molina játað að
hafa orðið stúlkunni að bana eftir
að hafa neitað því í fyrstu.
Auk þess að vera ákærður fyr-
ir manndráp á Molina einnig yfir
höfði sér dóm fyrir að hafa ítrekað
haft mök við stúlkuna. Verði hann
fundinn sekur gæti hann átt yfir
höfði sér fimmtíu ára fangelsi.
Skaut risaeðlu
Alex Stone, 16 ára nemanda
í Summerville í Suður-Kar-
ólínu, var falið það verkefni
af kennara sínum að skrifa
áhugaverða stöðuuppfærslu
um líf sitt á Facebook. Ekki
stóð á pilti: „Ég drap risaeðlu
nágrannans. Ég notaði byssu
til verksins,“ skrifaði hann.
Uppfærslan var svo áhugaverð
að hún vakti athygli skólayfir-
valda og lögreglu, sem hand-
tók piltinn og framkvæmdi
árangurslausa og ítarlega leit
að byssunni. Móður drengs-
ins blöskraði sú niðurstaða að
Alex var vísað frá skóla í viku.
Risaeðlur væru löngu útdauð-
ar og drengurinn hefði ekki
aldur til að eiga byssu.
Pyntingar og morð
n Judith var 15 ára þegar hún kynntist Alvin n Saman fetuðu þau glæpastigu
A
lvin Howard Neelley
yngri fæddist í Georg-
íu í Bandaríkjunum 1953
og stundaði bílþjófnaði á
sínum yngri árum. Hann
skildi við fyrri eiginkonu sína eft-
ir að hann hitti Judith Ann Adams
í kringum 1980. Þá var Alvin 26 ára
og Judith 15 ára.
Judith þessi fæddist í Tennessee
árið 1964. faðir hennar var áfeng-
issjúklingur og safnaðist til feðra
sinna þegar Judith var níu ára. Eftir
að kynni tókust með Judith og Alvin
fetaði hún ásamt honum stigu
glæpa sem teygðu anga sína um
nánast gervöll Bandaríkin. Glæp-
ir skötuhjúanna voru að mestu í
formi vopnaðra rána, en þau voru
síðar dæmd fyrir tvö morð.
Skotárás og mólotovkokkteill
Hinn 11. september, 1982, varð Ken
Dooley, starfsmaður æskulýðs-
stöðvar, fyrir því að skotárás var gerð
á heimili hans og daginn eftir lenti
kollega hans, Linda Adair, í svipaðri
uppákomu, en mólotovkokkteil var
kastað að heimili hennar.
Í kjölfar árásanna var hringt í Ken
og Lindu og kona fullyrti að hún
hefði verið misnotuð kynferðislega
á æskulýðsmiðstöðinni. Hvork Ken
né Linda gátu borið kennsl á rödd
konunnar sem hringdi.
Þrettán ára fórnarlamb
Alvin og Judith rændu þrettán ára
stúlku, Lisu Ann Millican, í Cedar-
town í Georgíu hinn 25. september,
1982.
Þau fóru með stúlkuna á mótel
í Tennessee og héldu henni þar
fanginni og meðan á prísundinni
stóð misþyrmdu þau bæði stúlk-
unni kynferðislega. Hinn 28. sama
mánaðar skaut Judith Lisu Ann
til bana og síðan fleygðu þau líki
hennar í Little River-gil í Fort Payne
í Alabama. Judith hringdi síðan
sjálf í lögreglu og lét vita hvar lík
Lisu Ann væri að finna.
Lifði af
Ekki leið á löngu þar til Alvin og
Judith fundu ný fórnarlömb. Fyr-
ir valinu varð ungt, trúlofað par
frá Rome í Georgíu, John Hancock
og Janice Chatman. Þeim var rænt
4. október og var John umsvifa-
laust skotinn en farið með Janice á
mótelherbergi Alvins og Judith.
Þar sætti Janice hvort tveggja
pyntingum og kynferðislegu of-
beldi áður en hún var myrt. En
John hafði fyrir slembilukku lifað af
og var fær um að benda lögreglu á
ódæðisfólkið.
Alvin samdi
Judith var handtekin 9. október,
1982, og Alvin var hnepptur í varð-
hald nokkrum dögum síðar. Árás-
irnar á Ken Dooley og Lindu Adair
voru eignaðar Judith.
Til að komast hjá dauðarefsingu
játaði Alvin sig sekan um morð og
alvarlega líkamsárás í Georgíu, en
ekki var réttað yfir honum vegna
morðsins á Lisu Ann Millican.
Réttarhöldin yfir Judith hófust
7. mars, 1983, og sex vikum síðar
var hún sakfelld fyrir morðið á Lisu
Ann.
Mælt með lífstíðardómi
Kviðdómur mælti með lífstíðar-
dómi yfir Judith, en dómari var
annarrar skoðunar og dæmdi
Judith, sem var þegar þarna var
komið sögu þriggja barna móðir,
til dauða. Eftir að hún fékk dauða-
dóminn lýsti Judith sig seka um
morðið á Janice Chatman.
Alvin afplánaði sinn dóm í
Bostick-fangelsinu frá 1983 þar til
hann skildi við í nóvember 2005.
Judith naut þess vafasama
heiðurs að vera yngsta konan sem
hlotið hafði dauðadóm í Bandaríkj-
unum og beið örlaganna á dauða-
deild Julia Tutwiler-kvennafangels-
isins.
Judith áfrýjar
Í mars 1987 áfrýjaði Judith dómn-
um en hafði ekki erindi sem erf-
iði og 1989 staðfesti Hæstiréttur
Bandaríkjanna dauðadóminn.
Skapadægur Judith voru handan
hornsins í janúar, 1999, þegar Fob
James, ríkisstjóri Alabama, mildaði
dóminn yfir henni og breytti í lífs-
tíðarfangelsi.
Ákvörðun hans var umdeild en
hann réttlætti hana með því að vísa
til þess vilja kviðdóms, árið 1983,
að Judith hlyti lífstíðardóm. Judith
afplánar dóm sinn í Julia Tutwiler-
kvennafangelsinu. n
Brosmild varmenni Alvin og Judith voru ekki öll þar sem þau voru séð.
Á bak við lás
og slá Dauða-
dómur yfir Judith
var mildaður og
honum breytt í
lífstíðarfangelsi.