Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Side 51
Helgarblað 5.–8. september 2014 Sport 51
Strákarnir í góðu Standi
Emil Hallfreðsson
Aldur: 30 ára
Landsleikir/mörk: 36/1
Þó að Emil hafi
blómstrað í ítölsku A-
deildinni með Ver-
ona gekk honum
illa að brjótast inn í
aðallið Íslands í síð-
ustu undankeppni.
Emil er gæðaleikmaður
sem gæti vel komið inn í
liðið gegn Tyrkjum.
Rúrik Gíslason
Aldur: 26 ára
Landsleikir/mörk: 31/5
Rúrik er á mála hjá FC
Kaupmannahöfn
og spilaði hann
allan leikinn í sigri
liðsins gegn Ara
Frey Skúlasyni og
félögum í OB um
síðustu helgi. Rúrik var þó
utan hóps í leikjum þar á undan.
Ólafur Ingi Skúlason
Aldur: 31 árs
Landsleikir/mörk: 18/1
Ólafur Ingi kemur
reglulega við sögu
hjá landsliðinu, nú
síðast gegn Króöt-
um í fyrri leiknum
þar sem hann lék í
stöðu hægri bakvarð-
ar. Ólafur er fastamaður
í liði Zulte-Waregem í Belgíu.
Sölvi Geir Ottesen
Aldur: 30 ára
Landsleikir/mörk: 24/0
Sölvi leikur með FC Ural í Rússlandi
þar sem hann er fasta-
maður. Búast má
við því að Ragnar
Sigurðsson og Kári
Árnason muni þó
halda sæti sínu í
byrjunarliðinu gegn
Tyrkjum.
Viðar Örn Kjartansson
Aldur: 24 ára
Landsleikir/mörk: 1/0
Óhætt er að segja
að Viðar Örn hafi
farið fram úr
vonum björtustu
sparkspekinga
á sínu fyrsta ári í
atvinnumennsku.
Hann hefur skorað 21
mark fyrir Vålerenga í Noregi í jafn
mörgum leikjum og er markahæstur í
deildinni. Það væri gaman að sjá hann
fá tækifæri á móti Tyrkjum.
Helgi Valur Daníelsson
Aldur: 33 ára
Landsleikir/mörk: 32/0
Helgi leikur með
Belenenses í
Portúgal, sem hefur
spilað þrjá deildar-
leiki. Helgi, sem er
á sínu öðru ári með
félaginu, hefur byrjað
einn þeirra og komið inn
á sem varamaður í öðrum. Hann gæti
vel komið við sögu gegn Tyrkjum, eins
og hann gerði í síðustu undankeppni.
Þessir gætu
líka spilað
Mynd KSÍ/dAnÍeL RúnARS
Gylfi Þór Sigurðsson
Aldur: 24 ára
Hæð/þyngd: 1,86/77
Staða: Miðjumaður
Landsleikir/mörk: 24/5
n Gylfi Þór gekk í raðir Swansea í sumar, eftir tvö tímabil með Totten-
ham. Óhætt er að segja að þessi magnaði leikmaður hafi fundið sig vel
með gömlum samherjum því hann hefur farið á kostum í ensku úrvals-
deildinni núna í upphafi tímabilsins, og átt lykilþátt í því að Swansea
hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína. Hann hefur raunar komið að öllum
mörkum Swansea á tímabilinu og er fullur sjálfstrausts. Frábær tíðindi
fyrir íslenska landsliðið.
Kolbeinn Sigþórsson
Aldur: 24 ára
Hæð/þyngd: 1,85/76
Staða: Framherji
Landsleikir/mörk: 23/15
n Kolbeinn skrifaði á dögunum undir nýjan samn-
ing við Ajax, þrátt fyrir að útlit hafi verið fyrir að
hann færi frá félaginu í sumar. Kolbeinn átti ekki
sérstöku gengi að fagna á síðustu leiktíð og skoraði
ekki nema 10 mörk. Hann var ekki alltaf í sinni upp-
áhaldsstöðu heldur var notaður úti á kanti. Fjórir
leikir eru búnir á þessari leiktíð og hefur Kolbeinn
byrjað þrjá þeirra. Honum hefur ekki tekist að skora
í þeim en ætti þó að vera í góðu leikformi.
Hannes Þór Halldórsson
Aldur: 30 ára
Hæð/þyngd: Ekki vitað/ekki vitað
Staða: Markvörður
Landsleikir/mörk: 21/0
n Hannes hefur tekið miklum framförum á undanförnum
árum og fyrr á þessu ári fór hann í atvinnumennsku til Noregs
eftir að hafa leikið með KR um þriggja ára skeið. Hannes
er á mála hjá Sandnes Ulf í norsku úrvalsdeildinni og hefur
hann leikið alla leiki liðsins á tímabilinu. Liðið situr á botni
deildarinnar og hefur því mikið mætt á Hannesi milli stang-
anna. Hann hefur þótt standa sig vel og spilar reglulega, sem
er mikilvægt. Ef ekkert óvænt kemur upp á verður Hannes í
markinu gegn Tyrklandi.
Aron Einar Gunnarsson
Aldur: 25 ára
Hæð/þyngd: 1,77/70
Staða: Miðjumaður
Landsleikir/mörk: 43/1
n Aron Einar Gunnarsson er fyrirliði íslenska liðsins og
gríðarlega mikilvægur tengiliður milli varnar og sóknar. Aron
leikur sem kunnugt er með Cardiff sem féll úr ensku úrvals-
deildinni síðastliðið vor og leikur þar af leiðandi í Champ-
ionship-deildinni. Aron hefur komið við sögu í fyrstu fjórum
leikjum Cardiff á tímabilinu, þar af hefur hann þrisvar verið
í byrjunarliðinu. Aron Einar ætti því að vera í ágætis standi
fyrir leikinn gegn Tyrkjum og ef hann er heill þá verður hann í
byrjunarliðinu. Það er ekki flóknara en það.
frá síðustu undankeppni n Byrjum á heimaleik gegn Tyrkjum á þriðjudag
… að Tyrkir eru í 32. sæti á styrk-
leikalista Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins. Íslenska liðið er
hins vegar í 46. sæti.
… að Tyrkir hafa
leikið sjö leiki á
þessu ári, allt
vináttuleiki.
Þeir hafa unnið
sex þeirra, þar á
meðal gegn Svíþjóð, Írlandi og
Danmörku en eini tapleikurinn
kom gegn Bandaríkjunum þann 1.
júní síðastliðinn.
… að Tyrkir leika
heimaleiki sína
í undankeppn-
inni á Ataturk-
leikvanginum í
Istanbul. Völlurinn
tekur 76 þúsund manns í sæti.
Leikvangurinn var byggður árið
1999 í viðleitni Tyrkja til að fá
Ólympíuleikana til Istanbul sum-
arið 2008. Eins og flestir vita voru
leikarnir haldnir í Peking.
… að 20 af 24 leikmönnum sem
Fatih Terim valdi í hópinn fyrir
leikinn gegn Íslandi spila með
liðum í Tyrklandi.
Aðeins Arda
Turan (Atletico
Madrid), Ömer
Toprak (Bayer
Leverkusen)
Hakan Calhanoglu
(Bayer Leverkusen) og Meclut
Edinc (Saint Etienne) spila utan
heimalandsins.
… hins vegar spila einungis fjórir
í íslenska hópnum með liðum
á Íslandi. Þetta eru þeir Ingvar
Jónsson (Stjarnan) Gunnleifur
Gunnleifsson (Breiðablik) Haukur
Heiðar Hauksson (KR) og Þórarinn
Ingi Valdimarsson (ÍBV).
… að yngsti leikmaðurinn í hópi
Tyrkja fyrir leikina gegn Íslending-
um er hægri bakvörðurinn Ozan
Tufan. Tufan er fædd-
ur í mars 1995 og
varð því 19 ára fyrr
á árinu. Hann leik-
ur með Bursaspor í
heimalandinu.
… að elsti leikmaðurinn í hópi
Tyrkja er einnig sá
leikjahæsti, Emre
Belözoglu. Emre
er fæddur 7.
september 1980
og verður því 34
ára á sunnudag.
… að elsti leikmaðurinn í íslenska
hópnum er Gunnleifur
Gunnleifsson.
Gunnleifur er
fæddur árið 1975
og verður því
fertugur á næsta
ári.
… að yngsti leikmaðurinn í ís-
lenska hópnum er
Jón Daði Böðvars-
son leikmaður
Viking í Noregi.
Jón Daði er fædd-
ur árið 1993.
… að þó Íslandi hafi haft yfir-
höndina gegn Tyrkjum í innbyrðis
viðureignum liðanna er saman-
lögð markatala einungis 13–9 Ís-
landi í vil. Það sem útskýrir þetta
er 5–0 tap Íslands í Tyrklandi í
undankeppni fyrir EM 1996. Leik-
urinn fór fram 12. október 1994.
… að Tyrkir hafa hæst komist í 5.
sæti á styrkleikalista Alþjóða-
knattspyrnusambandsins. Það
gerðist í júní 2004 og voru þá
leikmenn á borð við Nihat Kahveci
í liðinu. Athygli vekur að þrátt fyrir
þetta komust Tyrkir ekki á EM
2004 eftir að hafa tapað í umspili
gegn Lettum. Lægst voru þeir
aftur á móti í október 1993 þegar
þeir voru í 67. sæti á styrkleika-
listanum.
… að Ísland hefur hæst komist í 37.
sæti á styrkleikalista FIFA en það
gerðist í september 1994. Lægst
var Ísland hins vegar í júní 2012
þegar við sátum í 131. sæti á lista
FIFA. Í dag er Ísland í 46. sæti.
Vissir þú …