Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Síða 60
Helgarblað 5.–8. september 201460 Fólk
Áfall
fyrir JoBro
aðdáendur
Söngvarinn Joe
Jonas og súpermódelið
Blanda Eggenschwiler
eru hætt saman en þau höfðu verið
að deita í um eitt ár. JoBro-aðdá-
endur eru ekki enn búnir að jafna sig
eftir að sveitin lagði niður laupana í
fyrrahaust þegar þessar fréttir koma
eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Skilin, búið, bless
n Ástarsambönd sem enduðu í sumar
Sumarið hefur verið áhugavert fyrir þá sem fylgjast
með lífi stjarnanna. Sambönd nokkurra af ástsælustu
stjörnupörum runnu út í sandinn þegar sólin fór að skína
og hitinn að hækka í Hollywood.
Poppdívan Britney Spears er á lausu.
Spears sparkaði David Lucado í sumar eftir að hafa komist að því
að hann hafði verið að sænga með öðrum konum. Söngkonan,
sem hafði deitað Lucado í 17 mánuði, var ekkert að fela ástæðu
sambandsslitanna þegar hún ræddi við aðdáendur sína. „Það
besta við framhjáhald hans er að núna get ég farið á fleiri fyrstu
stefnumót.“
Kántrísöngkona á lausu
Kántrísöngkonan Jewel skildi við Ty Murray eftir sex ára
hjónaband. Jewel og Ty, sem er frægur nautaknapi, höfðu
verið saman í heil sextán ár en tilkynntu að sambandinu væri
lokið í byrjun júlí. Parið á saman þriggja ára soninn Kase.
Melanie Griffith
og Antonio Banderas
Fréttir af skilnaði Melanie Griffith og Antonios
Banderas skóku heimsbyggðina í júní. „Við höfum
hugsað okkur vel og vandlega um og höfum ákveðið
að enda næstum 20 ára hjónaband á góðum vina-
nótum með virðingu fyrir hvort öðru, fjölskyldum
okkar, vinum og þessum yndislega tíma sem við
höfum átt saman.“ Melanie og Antonio eiga eina
18 ára dóttur. Þau kynntust árið 1995 við tökur á
myndinni Too Much.
Ólíklegasta parið
Samband heitasta pars sumarsins rann út
í sandinn með haustinu þegar Zac Efron og
Michelle Rodriguez hættu saman eftir tvo
mánuði. Parið þótti ólíklegt til stórræða frá
upphafi og því komu fréttir um sambands-
slit fáum á óvart. Zac og Michelle sáust fyrst
saman knúsast á ítalskri strönd í júlí og voru
síðar mynduð saman á Ibíza.
Skilin Samband leikarans
Davids Duchovny og Téu Leoni hefur
verið stormasamt frá upphafi. Þau
skildu árið 2008 en tóku saman aftur
en skildu aftur 2011. David og Téa fóru
fyrst að vera saman fyrir 17 árum en
samkvæmt heimildum The People
ákváðu þau endanlega að slíta
sambandinu núna í sumar. Þau deila
forsjá yfir börnum sínum Kyd, 12 ára,
og Madelaine, 15 ára.
J. Lo og
dansarinn
J. Lo sleit tveggja og hálfs
árs ástarsambandi sínu við
dansarann Casper Smart
á dögunum. Samkvæmt
heimildum The People hafði
parið glímt við erfiðleika í
sambandinu um nokkurra
vikna skeið en endanlega
hætt saman í júní. Þó gæti
verið að dansaranum hafi
tekist að tala stórstjörnuna
til – allavega sáust þau eiga
innilega stund á MTV-verð-
launahátíðinni í lok ágúst.
Sundur saman sundur
Stórstjarnan Jennifer Lawrence og kærasti
hennar til þriggja ára, Nick Hoult, eru hætt
saman. þau kynntust við tökur á X-Men: First
Class árið 2011 og fóru strax að rugla saman
reytum. Þau tóku stutta pásu árið 2013 en tóku
upp samband á ný þrátt fyrir að búa hvort í sínu
landinu en Nick býr á Bretlandi. Óskarsverð-
launahafinn Jennifer þykir ein sú heitasta á í
dag og hefur þegar verið bendluð við söngvar-
ann Chris Martin.
Disneypar
Leikkonan Sarah
Hyland úr Modern
Family er hætt með
kærastanum sínum til
fimm ára, Matt Prokop.
Þau kynntust þegar
þau reyndu fyrir sér fyrir
Disney- myndina High School
Musical árið 2005.
Nektarmyndirnar
munu birtast á
listasýningu
Listamaðurinn Cory Allen hefur
sent frá sér tilkynningu þess efn-
is að nektarmyndirnar af Jenni-
fer Lawrence og Kate Upton
verði bætt við svokallaða „Fear
Google“, eða „Hræðist Google“-
herferð hans og verði til sýn-
is á næstu sýningu safnsins í
Los Angeles. Myndirnar verða
óbreyttar og prentaðar í raun-
stærð á striga. „Fear Google“-
herferðin er innlegg Allen í
umræðuna um einkalíf fólks á
tækniöldinni og sýna myndir af
berskjölduðum frægum einstak-
lingum. Auk fyrrgreindra mynda
verða á sýningunni myndir af
Britney Spears eftir að hún rak-
aði af sér hárið og nektarmyndir
af Scarlett Johansson sem lekið
var á netið.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 8. september, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Karólína Lárusdóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Haustuppboð
í Gallerí Fold
Gera kvikmynd
í brúðkaups-
ferðinni
Nýgiftu hjónin Prad Pitt og Ang-
elina Jolie munu verja brúð-
kaupsferðinni sinni í vinnunni
en þau eru nú við tökur á kvik-
myndinni By the Sea í Frakk-
landi. „Við erum að taka upp
dramatíska kvikmynd um sorg og
leiðir í gegnum erfitt hjónaband,“
sagði Jolie í samtali við tímaritið
People en hún bæði skrifar og
leikstýrir myndinni. „Okkur þykir
fyndið að þetta skuli vera brúð-
kaupsferðin okkar.“ Pitt og Jolie
leika hjón sem verða kynferð-
islega gagntekin af nágrönnum
sínum. By the Sea er jafnframt
fyrsta myndin sem hjónin leika
í saman frá því þau gerðu Mr. &
Mrs. Smith.
Frumsýnir bumbuna
M
ánuði eftir að leikkonan
Milla Jovovich tilkynnti að
hún ætti von á sínu öðru
barni stillti hún sér upp
fyrir framan ljósmyndara á rauða
dreglinum á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum á fimmtudag.
Hún var klædd þröngum hvítum
kjól og tyllti annarri hönd á magann
til þess að undirstrika sístækkandi
bumbuna. Jovovich var við frum-
sýningu kvikmyndarinnar Cym-
beline en hún leikur aðalhlutverk í
myndinni ásamt Dakotu Johnson
og Ethan Hawke. Fyrir á leikkon-
an dótturina Ever Gabo Anderson
ásamt eiginmanni sínum Paul W. S.
Anderson. n
Krúttleg kúla Mánuður
er síðan leikkonan tilkynnti
að hún væri barnshafandi.
Mynd ReuteRs.