Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 64
Helgarblað 5.–8. september 2014
69. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Allir í bátana!
Ekki fyrir
lopavettlinga
n Airwaves-hátíðin verður haldin
í október í haust við mikla gleði
margra og komast oftast færri
áhorfendur á þá hátíð en vilja.
Því hafa svokallaðir „off-venue“
tónleikar notið mikilla vinsælda
síðastliðin ár, en þá spila hljóm-
sveitir á stöðum sem ekki eru á
opinberri dagskrá hátíðarinnar
fyrir gesti og gangandi. Tónlistar-
maðurinn Pétur Ben gerir málinu
skil á Facebook en þar sagði hann
marga verslunareigendur halda að
þeir geti fengið frábæra listamenn
til að spila frítt fyrir sig á svoköll-
uðum „off-venue“ tónleikum. „Á
meðan þeir selja lopavettlinga.
Við þurfum að setja standardinn.
Við spilum frítt á styrktartónleik-
um eins og eru fyrir Frosta núna á
sunnudaginn í Háskólabíó en ekki
fyrir lopavettlinga. Pís át.“
Gengur
menntaveginn
n Hjörtur Hjartarson, fréttamað-
ur á Stöð 2, hóf nú í haust meist-
aranám í blaða- og fréttamennsku
við Háskóla Íslands. Hann birti
mynd af sér á Facebook-síðu sinni
í vikunni þar sem hann stóð á há-
skólalóðinni og í bakgrunni sást
glitta í Aðalbyggingu Háskólans.
Var hann þó helst til alvarlegur á
myndinni og einn Facebook-vinur
hans hafði orð á því að hann hefði
mátt brosa í tilefni fyrsta skóla-
dagsins. Hjörtur svaraði því til að
hann hefði teflt á tæpasta vaði
með því að taka selfie fyrir framan
Háskólann og því hefði ekki verið
innistæða fyrir brosi. Það er ljóst
að mikil fróðleiksfýsn einkennir
fréttamenn Stöðv-
ar 2, en Magn-
ús Hlynur
Hreiðars-
son, kollegi
Hjartar,
hóf einmitt
nám í fjöl-
miðlafræði
við Háskólann
á Akureyri
nú í haust.
Ánægður með
París norðursins
n „Frábær mynd og ég hvet alla
til að fjölmenna,“ segir Gunnar
Lárus Hjálmarsson, betur þekkt-
ur sem Dr. Gunni, sem skellti sér á
frumsýningu á París norðursins á
miðvikudagskvöld. Dr. Gunni fjall-
ar stuttlega um frumsýninguna á
bloggsíðu sinni og kveðst sérstak-
lega ánægður með frammistöðu
Helga Björns, segir hann stela sen-
unni enda í sínu
stærsta bíóhlut-
verki til þessa.
„Þetta er ekki
beint ha ha
fyndin mynd
heldur lúmsk
fyndin og mað-
ur er síkumrandi
inn í sig.“
Gæði fara aldrei úr tísku
Hitastýrð
blöndunartæki
Stílhrein og
vönduð
L
andssöfnun Rauða krossins,
„Göngum til góðs“, er hafin en
næstu daga ganga sjálfboða-
liðar Rauða krossins milli húsa
um land allt með rauða söfn-
unarbauka í hönd.
Markús Már Efraím er einn þeirra
sjálfboðaliða sem tekur þátt í starfinu.
Hann hefur starfað fyrir Rauða kross-
inn í að verða sex ár og hóf þátttöku
sína í verkefni á vegum samtakanna
með hælisleitendum. Hann segir auð-
velt að finna tíma til að sinna þeim
meðfram vinnu og fjölskyldu.
„Fólk getur stýrt því mikið sjálft.
Verkefnin sem eru í boði eru svo fjöl-
breytt. Þetta er svo einstaklingsbund-
ið og getur krafist bara nokkurra
klukkutíma á nokkurra vikna fresti,“
segir Markús.
Hann er í stjórn Hafnarfjarðar-
deildarinnar og mun standa vaktina í
Hafnarfirði sem söfnunarstjóri og að-
stoða sjálfboðaliðana. „Við fórum fyr-
ir tveimur árum, fjölskyldan, með árs-
gamlan son okkar með okkur. Þetta
þarf ekki að vera langur göngutúr,“
segir Markús og hvetur fólk til að taka
þátt. Flestar deildir munu ganga á
laugardag, en þó hófu nokkrir sjálf-
boðaliðar störf á fimmtudag.
Í ár verður safnað fyrir innan-
landsverkefnum Rauða krossins sem
eru afar fjölbreytt. Sérstök áhersla
verður lögð á að efla neyðarvarnir
og áfallahjálp og bendir Markús Már
á mikilvægi þess í ljósi þeirra jarð-
hræringa sem eru nú viðvarandi. Þá
á að styrkja og efla verkefnin Heim-
sóknarvinir, þar sem sjálfboða-
liðar Rauða krossins veita um 900
einstaklingum félagsskap vikulega
og Frú Ragnheiði, sem er sérútbúinn
sjúkrabíll sem veitir útigangsfólki, fíkl-
um og heimilislausum nauðsynlega
heilsuvernd. Allar nánari upplýsngar
um söfnunina má finna á vef Rauða
krossins. n astasigrun@dv.is
Fá sér göngutúr með rauðan bauk
Rauði krossinn gengur til góðs og setur kraft í innanlandsverkefni
Gengu til góðs Fjölskylda Markúsar gekk
til góðs árið 2012. Mynd InGóLfur JúLíusson