Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 4
4 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
frÁ AfMælisnefnd
frá afmælisNefNd
LögmannabLaðið er að þessu sinni
tileinkað 100 ára afmæli Lögmannafélags
Íslands þann 11. desember 2011. markar
útgáfa blaðsins starfslok sérstakrar
afmælisnefndar sem hefur verið að
störfum allt árið í tilefni af þessum
merku tímamótum félagsins.
afmælisnefndin skipulagði sérstakt
málþing sem haldið var þann 7. október
2011 undir yfirskriftinni ,,réttarríkið á
viðsjárverðum tímum“, en það efni þótti
viðeigandi nú um stundir. Frummælendur
á málþinginu, sem stjórnað var af
gunnari Jónssyni hrl., voru þau Skúli
magnússon ritari við eFTa dómstólinn,
Carolyn b. Lamm, fyrrverandi forseti
american bar association og evangelos
Tsouroulis annar varaforseti CCbe, auk
þess sem formenn allra norrænu
lögmannafélaganna þau brynjar
níelsson, berit reiss-andersen, mika
ilveskero, Sören Jenstrup og Tomas
nilson, sátu í pallborði. Þótti málþingið
takast sérstaklega vel, en um efni þess
er fjallað hér í blaðinu. að málþinginu
loknu var efnt til veglegrar móttöku á
vegum Lögmannafélagsins í tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu Hörpu. móttakan var
vel sótt, en hátt í 600 manns lögðu þá
leið sína í Hörpu og fögnuðu afmæli
félagsins.
afmælisnefndin stendur einnig að
útgáfu þessa Lögmannablaðs. Útgáfan
er afar vegleg, en í henni birtist fjöldi
ljósmynda og sagna úr starfi bæði
Lögmannafélagsins og félagsmanna
þess. Hefur víða verið leitað fanga og
lögmenn góðfúslega orðið við beiðni
afmælisnefndar um birtingu mynda úr
einkasöfnum þeirra. auk þess var leitað
í smiðju nokkurra lögmanna og dómara
til þess að fá sögur úr störfum lögmanna
í áranna rás. er blaðið því vonandi góð
heimild um mikilvæga atburði í sögu
félagsins auk þess sem smærri atburðir,
sem kryddað hafa tilveru lögmanna í
gegnum tíðina, fá að fljóta með.
Óhjákvæmilegt er að þakka eyrúnu
ingadóttur og ingimar ingasyni sérstak-
lega fyrir mikið og óeigingjarnt starf
þeirra í tengslum við allt framangreint.
Án þeirra hefði vinna afmælisnefndarinnar
verið eins og málflutningur án dómara.
Þá er öllum þeim þakkað sem hönd
hafa lagt á plóg við skipulagningu
ofangreindra viðburða.
afmælisnefndin þakkar fyrir sig,
árnar félagi sínu heilla og óskar
félagsmönnum gleðilegra jóla.
LÖGMANNSÞJÓNUSTA
SÍÐAN 1907
logos@logos. is
www.logos. is
42 New Broad Street
London EC2M 1 JD
England
+44 (0) 207 920 3020
+44 (0) 207 920 3099
Efstaleiti 5
103 Reykjavík
Iceland
5 400 300
5 400 301
Lautrupsgade 7, 4th floor
2100 Copenhagen
Denmark
+ 45 70 229 224
+ 45 70 274 279
afmælisnefnd lmfí ásamt starfsmönnum félagsins. f.v. ingimar ingason, viðar lúðvíksson, guðrún Björg Birgisdóttir, Helgi
jóhannesson, ása Ólafsdóttir, árni vilhjálmsson, eyrún ingadóttir og gunnar jónsson.