Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 55
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 55
UMfJöllUn
Haustið 1946 hóf rannveig nám við
lagadeild Háskóla Íslands, 42 ára gömul.
Þrátt fyrir að vera á aldur við mæður
samnemenda sinna small hún í hópinn
og myndaði vináttubönd sem héldust
ævilangt. einn samnemenda rannveigar
sagði síðar að piltarnir hefðu verið
feimnir við hana í upphafi en hún hafi
verið fljót að hrista hæverskuna úr þeim
og gert „... kröfu til þess að vera tekin
sem jafningi okkar í námi og á
gleðifundum.“ Hún skaut þeim líka ref
fyrir rass, lauk fyrri hluta prófi á einu ári
og kandídatsprófi tveimur árum síðar,
vorið 1949 en frá 1942-1948 vann hún
fyrir sér sem þingskrifari. rannveig er
fyrsta konan sem sat í stjórn Orators en
það var veturinn 1947-1948 en hún var
önnur til að ljúka embættisprófi í
lögfræði, á eftir auði auðuns sem hafði
tekið lagapróf árið 1935.6
á alþingi
rannveig hafði ekki fyrr lokið embættis-
prófi í lögfræði er hún hóf pólitískan
feril. Við alþingiskosningar árið 1949 var
hún í fyrsta sæti hjá Framsóknarflokknum
í reykjavík og þá rúmlega tvöfaldaðist
fylgi flokksins í borginni.7 Í aðdraganda
kosninganna sagði hún fjárplógsstarfsemi
stríði á hendur. Í skjóli vöruþurrðar og
ráðstafana stjórnvalda blómgaðist svartur
markaður og okurstarfsemi sem gerði
að verkum að milliliðakostnaður og
margföld álagning væri á vörum.8
rannveig sat á alþingi fyrir Fram-
sóknarflokkinn í eitt kjörtímabil en auk
þess að vera fyrsta konan til að sitja á
þingi fyrir flokkinn þá var hún fyrsti
alþingismaður Framsóknarflokksins í
reykjavík.9 Á sama tíma sat Kristín L.
Sigurðardóttir sem landskjörinn þing-
maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn en næsta
kjörtímabil á eftir, 1953-1956, sat engin
kona á alþingi.
rannveig lét sig miklu varða réttar-
stöðu kvenna, skattamál og húsnæðismál
á alþingi.10 eitt fyrsta málið sem hún
beitti sér fyrir var þingsályktunartillaga
um kjör þingskipaðrar nefndar til að
gera ýtarlega athugun á réttarstöðu og
atvinnuskilyrðum kvenna. að því loknu
ætti nefndin að gera tillögur um
breytingar á gildandi lögum sem tryggðu
konum lagalegt jafnrétti á við karla sem
og að setja ný lagaákvæði til að tryggja
konum sömu aðstöðu og körlum til að
sjá fyrir sér og sínum og njóta hæfileika
sinna í starfi.11
rannveig sóttist eftir að sitja á alþingi
í annað kjörtímabil og var aftur í fyrsta
sæti Framsóknarflokksins í reykjavík
fyrir kosningar 1953. Hún var þá eina
konan sem átti möguleika á að setjast á
alþingi og framsóknarmenn reyndu
mikið að fá konur til að kjósa þennan
eina fulltrúa sinn.12 rannveig galt þess
hins vegar að Framsóknarflokkurinn
hafði ekki sama byr og í kosningunum
1949. Þá höfðu ýmsir utanflokksmenn
stutt flokkinn en þeir flykktu sér nú um
hinn nýstofnaða Þjóðvarnarflokk sem
hafði það meginstefnumál að Ísland segði
sig úr naTÓ. Framsóknarflokkurinn fékk
2624 atkvæði í kosningunum, réttum 100
færri en Þjóðvarnarflokkurinn og þar
með var þingmannsferill rannveigar á
enda.13 Hún var aftur í kjöri fyrir
alþingiskosningar 1956 og þá í þriðja
sæti á lista alþýðuflokksins í reykjavík
en Framsóknarflokkurinn og alþýðu-
flokkurinn höfðu myndað með sér
kosningabandalag („Hræðslubandalagið“)
þar sem Framsókn bauð fram í dreifbýli
og alþýðuflokkur í þéttbýli að Seyðisfirði
undanskildum.14 rannveig náði ekki kjöri
og hætti afskiptum af stjórnmálum í
kjölfarið. Þess má geta að þegar rannveig
lést árið 1987 var hún eina konan sem
setið hafði á alþingi fyrir Fram-
sóknarflokkinn - heilum 34 árum eftir
að hún sat á þingi.15
félagsmálaþátttaka
rannveigar
rannveig vann mikið að félagsmálum
og valdist til fjölmargra trúnaðarstarfa.
Hún var dómari í Verðlagsdómi
reykjavíkur 1950-1974 og í Yfirskatta-
nefnd reykjavíkur 1957-1963. Hún var
mjög virk í ungmennafélagshreyfingunni
og sat í stjórn Ungmennafélags Íslands
um árabil. einnig var hún í stjórn
Kvenfélagasambands Íslands 1947-1963,
þar af formaður 1959-1963, formaður
Kvenstúdentafélags Íslands og Félags
háskólakvenna 1949-1957. Hún var
formaður Félags framsóknarkvenna 1953-
1966 en félagið var stofnað árið 1945 til
að efla samvinnu og kynni meðal kvenna
í Framsóknarflokknum, vinna að þeim
rannveig tók þátt í málflutningsæfingum á vegum orators þegar hún stundaði laganám.