Gerðir kirkjuþings - 1992, Síða 168
1992
23. Kirkjuþing
17. mál
T I L L A G A
til þingsályktunar um framkvæmd ákvæða í 3. gr.
laga nr. 62/1990 um skipan prestakalla og prófastsdæma
og um starfsmenn þjóðkirkju Islands.
Flm. Dr. Bjöm Bjömsson, Hólmfríður Pétursdóttir, sr. Hreinn Hjartarson,
Jóhann Bjömsson, sr. Jón Bjarman og sr. Karl Sigurbjömsson.
Frsm. sr. Jón Bjarman
Kirkjuþing 1992 ályktar að skora á ríkisstjómina, með tilvísun til 62. greinar
stjómarskrár lýðveldisins, að framfylgja ákvæðum 3. gr. laga nr. 62 frá 1990, þar sem
kveðið er á um heimild til íjölgunar vígðra starfsmanna kirkjunnar í fjölmennum
sóknum og prestaköllum.
Greinargerð
Enn vantar vemlega á, að ákvæðum 3. greinar laga nr. 62 frá 1990, um skipan
prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Islands, sé framfylgt. A það
jafnt við um ráðningu prests til aðstoðar sóknarpresti í prestakalh, þar sem íbúafjöldi
þess fer yfír 4000, og um skiptingu prestakalls þegar íbúafjöldi þess fer yfir 8000. Skal
þó á það bent, að ákvæði eldri laga, þ.e. lög nr. 35/1970, vom skýrari og ótvíræðari (sjá
síðustu málsgrein 1. gr. þeirra laga og 3. gr. þeirra). Enn lengra gengu þó tillögur
starfsháttanefndar frá 1977, en þannig segir í áhti þeirrar nefndar, bls. 96:
"Fjöldi ríkislaunaðra starfsmanna þjóðkirkjunnar miðast við fólksfjölda í
landinu. Kirkjan heldur núverandi fjölda starfsmanna sinna. Síðan bætist
henni nýr starfsmaður hvert sinn, sem þjóðinni fjölgar um 3000 manns.
Biskup Islands og kirkjuráð ákveður nánar, hvar nýir starfsmenn em settir
til starfa".
Á samdráttartímum eins og þeim sem nú ganga yfir þjóðina, ber brýna nauðsyn th að
standa á verði og áminna stjómvöld um hvaða skyldur þau hafa við þjóðkirkjuna.
Fylgigögn
Tölulegar upplýsingar um íbúafjölda í prestaköhum Reykjavíkur prófastsdæma.
163