Són - 01.01.2009, Síða 68
BRAGI HALLDÓRSSON68
2) Rímur af Hervöru og Heiðreki konungi eftir Gísla Konráðsson
(1787–1877), ortar fyrir Jón Espólín sýslumann og sagnaritara
árið 1823, óprentaðar. 14 rímur. Gísli var Skagfirðingur en bjó
síðast í Flatey á Breiðafirði.
3) Hjálmarskviða eftir Hjálmar Jónsson frá Bólu (1796–1875), ort
skömmu fyrir 1836, prentuð í Reykjavík árið 1905, 2. útg. í
Ritsafni IV, Reykjavík 1949. 75 erindi. Hjálmar fæddist í Eyjafirði
en bjó lengst af í Skagafirði.
4) Eftirmæli eftir Hjálmar hugumstóra eftir Guðrúnu Þórðardóttur
(1816–1896) á Gróustöðum og Valshamri í Geiradal, ortar fyrir
árið 1852, óprentuð. 44 erindi. Guðrún var Barðstrendingur en
flutti til Vesturheims árið 1883.
5) Banaljóð Ingibjargar Ingadóttur eftir Björn Friðriksson Schram
(1843–1930), ef til vill ort 1857–58, óprentað. 48 erindi. Björn var
Húnvetningur en bjó lengstum á ýmsum bæjum í Skagafirði.
6) Rímur af Hjálmari hugumstóra eftir Hallgrím „lækni“ Jónsson
(1787–1860), ortar 1857, prentaðar á Akureyri árið 1859, 2. útg.
Reykjavík 1909. 7 rímur, alls 703 erindi. Hallgrímur var Þing-
eyingur en fluttist um tvítugt í Skagafjörð.
7) Ríma af Hjálmari og Ingibjörgu eftir Sigurð Bjarnason (1841–1865),
ort skömmu fyrir 1860, prentuð í Reykjavík 1865, 2. útg.
Reykjavík 1890, 3. útg. Winnipeg 1898, 4. útg. Wynyard 1911, 5.
útg. Reykjavík 1934. 230 erindi. Sigurður var Húnvetningur.
8) Ríma um dauða Hjálmars hugumstóra eftir Brynjólf Jónsson
(1838–1914) frá Minna-Núpi, ort árið 1860, óprentuð. 77 erindi.
Brynjólfur var Árnesingur.
9) Hjálmarskviða eftir Brynjólf Oddsson (1824–1887), ort fyrir 1869,
prentuð í Nokkrum ljóðmælum í Reykjavík árið 1869. 46 erindi.
Brynjólfur var Borgfirðingur sem stundaði lengstum bókband í
Reykjavík.
10) Bardagaríma Hjálmars og Örvar-Odds við Angantýssonu í Sámsey eftir
Gísla Brynjúlfsson (1827–1888), ort í okt.–nóv. 1869, óprentuð.
250 erindi. Gísli var Austfirðingur en bjó í Reykjavík og lengstum
í Kaupmannahöfn.
11) Ríma af Hjálmari og Ingibjörgu eftir Einar Jónsson (1845–1880), ort
árið 1870, skrifuð árið 1871, óprentuð. 158 erindi. Einar var
Borgfirðingur.
12) Hjálmar hugumstóri í fjörbrotunum eftir Tómas Guðmundsson víð-
förla (1829?–1895), óvíst hvenær ort, óprentað. 101 erindi.