Són - 01.01.2009, Page 157
SAMSPIL MÁLS OG BRAGS Í ÍSLENSKUM KVEÐSKAP 157
Reiðr var þá Vigþórr
adj V adv S
er hann vaknaði
C S-pr V
ok síns hamars
& O [poss.refl N]
um saknaði,
F V
skegg nam at hrista,
O V (S) I Vi
skör nam at dýia,
O V (S) I Vi
réð Iarðar burr
V S [G N]
um at þreifaz.
F (S) I Vi
Hér táknar S frumlag, V umsögn, O andlag, C tengilið, F fylliorð,
en tekið skal fram að ekki er víst að þessi tákn verði notuð í hinni
endanlegu greiningu sem gerð verður í samvinnu við PROIEL-verk-
efnið. Þegar þessar upplýsingar um setninga- og orðhlutagerð liggja
fyrir verða þær tengdar bragfræðilegum upplýsingum um hrynjandi,
stuðla og hendingar ásamt hljóðkerfislegum upplýsingum, svo sem
um atkvæðagerð og hljóðgildi.
Tilgangur verksins og dæmi um árangur
Megintilgangur þess verkefnis, sem hér er sagt frá, er að draga sam-
an upplýsingar um málleg og bragfræðileg einkenni íslensks kveð-
skapar frá ýmsum tímum og af ýmsum gerðum. Því er ætlað að bæta
skilning á samspili brags og málkerfis, en einnig má ætla að þær
upplýsingar sem nást fram geti varpað ljósi á ýmsar spurningar
varðandi aldur einstakra verka og formgerð þeirra. Til dæmis er þess
vænst að hægt verði að skýra betur en gert hefur verið hingað til
muninn á bragarháttum eins og ljóðahætti og fornyrðislagi og hvort
beri að gera ráð fyrir málahætti sem sérstökum bragarhætti eða hvort
hann telst afbrigði af fornyrðislagi.10 Sérstakan áhuga vekja vandamál
10 Sbr. Kristján Árnason (2002a og 2006a).