Gerðir kirkjuþings - 1999, Side 22
1. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 1.
Skýrsla kirkjuráðs.
Flutt af biskupi.
Inngangur.
Nýtt kirkjuráð var kjörið á síðastliðnu kirkjuþingi. Hefur það haldið 13 fundi frá
lokum kirkjuþings. Á yfirstandandi ári voru 10 fundir, einn tveggja daga í Reykholti
dagana 29.-30. apríl. Störf kirkjuráðs hafa enn á þessu ári borið þess merki að þjóðkirkjan
gengur í gegnum mikla endurskipulagningu í samræmi við nýtt lagaumhverfi.
Kjörinn forseti kirkjuþings, Jón Helgason, fýlgdist með ffamgangi mála kirkjuþings,
og nú kom í fýrsta sinn í hlut forseta kirkjuþings að undirbúa kirkjuþing í samráði við
kirkjuráð og kalla það saman. Kirkjuráð þakkar Jóni Helgasyni, forseta kirkjuþings traust
og gott samstarf, hann hefur fýlgst með málum af samviskusemi, alúð og atorku. Staða
forseta er um margt óljós samkvæmt kirkjulögunum og því mikilvægt að móta gott
vinnulag og skilvirkt. Kirkjuráð þakkar einnig starfsfólki biskupsstofu fýrir frábær störf
og samskipti.
Tveir fýrrum kirkjuþingsmenn kvöddu þennan heim á umliðnu ári. Séra Jónas
Gíslason, vígslubiskup, lést hinn 18. nóvember 1998 á 72. aldursári. Hann var kjörirm á
kirkjuþing 1976 og í kirkjuráð 1982 og sat þar allt til þess hann var kjörinn vígslubiskup
Skálholtsstiftis árið 1989. Séra Jónas var eldhugi og atorkumaður, og trúvottur
ógleymanlegur. Eiginkona hans, ffú Amffíður Ammundsdóttir, lést hinn 14. maí sl. Frú
Margrét K. Jónsdóttir varð bráðkvödd á heimili sínu, Löngumýri, hinn 23. apríl. Hún var
kjörin á Kirkjuþing 1990 og tvisvar endurkjörin. Hún var varaforseti kirkjuþings og
varamaður í Kirkjuráði, traustur, hollur, mikils metinn samverkamaður. Starfið á
Löngumýri bar hún örmum með umhyggju og fómfýsi, hlýju og glaðsinni, sem við
minnumst öll og þökkum.
Við vottum þessum systkinum virðingu og heilshugar þökk og ástvinum þeirra
samhug með því að rísa úr sætum.
Nýjar starfsreglur sem lagðar eru fram á kirkjuþingi 1999.
Kirkjuráð mun leggja ffam á kirkjuþingi 1999, tillögur að sjö nýjum bálkum
starfsreglna til viðbótar við þá 16 bálka sem lagðir vom ffam á síðasta kirkjuþingi. Rétt
þykir að kalla bálkana tillögur að starfsreglum ffemur en drög eins og gert var á síðasta
kirkjuþingi. Nýju bálkamir em:
Tillaga að starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembœtta og vegna prófastsstarfa.
Hér er um að ræða nýjar reglur sem grundvallast á samningi ríkis og kirkju ffá 4.
september 1998 og breytingu á lögum um embættiskostnað ffá síðasta ári, en samkvæmt
henni skal biskupsstofa greiða rekstrarkostnað samkvæmt reglum sem kirkjuþing setur
um greiðslu kostnaðarins. Reglumar fela í sér hækkun á greiðslu embættiskostnaðar enda
nýir rekstrarliðir komnir til s.s. vegna tölvuvæðingar. Þá er um vemlega einföldun er að
ræða frá fýrri skipan. Er almennt gert ráð fýrir að sömu reglur gildi að meginstefnu til um
öll prestsembætti auk þess rekstrarkostnaðar sem leggst á vegna prófastsstarfa.
18