Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 23
1. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 1.
Tillaga að starfsreglum um fjárstjórn sóknarnefnda.
Starfsreglum þessum er ætlað að setja almenn viðmið um heimildir sóknamefnda til
fjárstýringar og jafiiframt kveða á um aðstoð sem kirkjuráð getur veitt sóknum í
fj árhagserfiðleikum.
Tillaga að starfsreglum um organista.
Þessi bálkur er fyrsti sérreglubálkurinn um aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar en þá
vígðu (presta og djákna). Er fjallað um helstu atriði er varða störf og stöðu organista,
ráðningu þeirra, verksvið og afstöðu gagnvart sóknamefhd og presti (eða prestum).
Tillaga að starfsreglum um fræðslu fyrir leikmenn innan kirkjunnar.
Tillaga að starfsreglum um söngmál og tónlistarfræðslu kirlgunnar.
Tillaga að starfsreglum um fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Starfsreglur um þessi málefhi eiga það sameiginlegt að verið er að skipa
mikilvægum, sértækum málaflokkum á grundvelli hins nýja kirkjuréttar, sem sérstakar
kirkjulegar stofnanir hafa sinnt fram að þessu. Em lagðar meginlínur um að
málaflokkunum skuli sinnt af þjóðkirkjunni og jafnframt að biskup og kirkjuráð hafi
skyldur í þeim efhum á gmndvelli viðeigandi laga. Ennfremur er veitt heimild til
gjaldtöku vegna þjónustu ef því er að skipta.
Tillögur að starfsreglum um handleiðslu fyrir presta og djákna.
Hér er um veruleg nýmæli að ræða. Kirkjuþing hefur áður samþykkt að
starfshandleiðsla standi prestum og djáknum til boða. Þetta er mikilvægur hluti af
stuðningi biskups og kirkjuráðs við þessa starfsmenn þjóðkirkjunnar. í þessu felst
skilningur á krefjandi aðstæðum og jafnframt viðurkenning á mikilvægi þess að efla og
styrkja þessa starfsmenn í starfi. Nauðsynlegt er að kirkjuþing setji starfsreglur í þessum
eftium.
Aðrar tillögur.
Að auki eru lagðar fram nýjar tillögur að starfsreglum um sérþjónustupresta og
leikmannastefnu, en tillögur um þau efni á síðasta kirkjuþingi hlutu ekki afgreiðslu.
Jafnframt em lagðar ffam fimm tillögur að starfsreglum um breyting á starfsreglum
sem samþykktar vom á síðasta kirkjuþingi, en þær em:
1. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um kirkjuþing.
2. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipan sókna o.fl.
3. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir.
4. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um prófasta.
5. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um presta.
Hvað þessar tillögur varðar er aðallega um að ræða tæknilegar breytingar og
lagfæringar en ekki vemlegar efnislegar breytingar.
Nánari grein er gerð fyrir öllum málunum í athugasemdum sem þeim fylgja auk þess
sem kostnaður af samþykkt mála er áætlaður, ef talið er að hann stofnist.
Fyrirhugað var af hálfu kirkjuráðs að semja tillögur að starfsreglum um störf
kirkjuráðs en ákveðið var að vinna þær tillögur effir að álitsgerð sú, sem kirkjuþing 1998
ákvað að láta vinna um stöðu kirkjuþings og kirkjuráðs að lögum lægi fyrir. Alitsgerðin
19