Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 25
1. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 1.
Úrlausn mála kirkjuþings 1998.
Kirkjuþing 1998 fól kirkjuráði margvísleg verkefni. Skal hér getið um hvemig þeim
hefur verið fylgt eftir.
Breyttar úthlutunarreglur úr sjóðum kirkjunnar.
Kirkjuþing samþykkti að fara þess á leit að breytt yrði úthlutunarreglum, sbr. 2. og 3.
mál kirkjuþings 1998. Samin voru drög að breytingum á reglugerð Jöfnunarsjóðs sókna
og lögð fyrir dóms - og kirkjumálaráðuneytið sem lagði sína blessun yfir svo sem sjá má í
reglugerð nr. 81/1999 í viðauka við "Kirkjumál - Lög og reglur" sem gefin var út fyrr á
árinu.
í samræmi við þá reglugerð hefiir verið auglýst eftir umsóknum til Jöfnunarsjóðs
sókna og þeim ætlað að berast próföstum fyrir 15. þessa mánaðar. Úthlutun verður lokið í
desembermánuði n.k.
Kirkjuráð vill stefna að því að sami háttur verði hafður á varðandi úthlutun úr öðmm
sjóðum kirkjunnar. Ekki er þörf laga - eða reglugerðarbreytinga til þess heldur er það
ffamkvæmdaratriði.
Líknar - ogviðlagasjóður kirkjunnar. Fræðslu-, kynningar- og útgáfusjóður.
Kirkjuþing samþykkti hugmyndir biskups fyrir sitt leyti að stofnaður yrði Líknar - og
viðlagasjóður kirkjunnar, sbr. 2. og 3. mál kirkjuþings. Hefur þegar verið samin
skipulagsskrá fyrir hinn nýja sjóð og innköllun gefin út í Lögbirtingablaði. Samráð hefur
verið haft við dóms - og kirkjumálaráðuneytið en það fer með málefhi sjóða og stofnana
sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Ríkisendurskoðun veitti leiðbeiningar um
málsmeðferð. Þá hefur einnig verið samin skipulagsskrá fyrir fræðslu-, kynningar- og
útgáfusjóð kirkjunnar.
Vegakirkju
Kirkjuþing ítrekaði 16. mál kirkjuþings 1997 um vegakirkjur og var því beint til
kirkjuráðs að kanna hvemig hægt væri að skipuleggja starfið milli prófastsdæma ekki
síður en innan þeirra. Málið er hjá fræðslu- og þjónustudeild þjóðkirkjunnar.
Ymis atriði er varða jjárhagsumsýslu kirkjunnar:
Tillögumar, sem komu ffá fjárhagsnefhd í 3. máli kirkjuþings vom ræddar í
kirkjuráði. Kirkjuráð samþykkti tillögur um verklag við úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna
1999. Þar kemur m.a. ffam:
1. Uthlutað sé til allt að þriggja ára.
2. Boðaðar verði hertar reglur varðandi kröfur til formsatriða umsókna og
fjárhagslegra burða safnaða til þess að ráðast í framkvæmdir.
3. Það hafi forgang næstu þrjú ár að Ijúka verkefnum sem byrjað hefur verið
á og leysa fortíðarvanda umfram nýjar framkvæmdir.
4. Utborgun styrks verði skilyrt í sumum tilvikum, t.d. þannig að meðmæli
bygginga- og listanefndar þurfi að hafa fengist.
Tillögur að úthlutunum ættu að vera undirbúnar af sérstökum starfshóp um fjármál
sem kirkjuráð ákvað að setja á laggimar. Biskup hefur þegar skipað þennan starfshóp. í
honum em kirkjuráðsmaðurinn Guðmundur Magnússon, sem er fulltrúi kirkjuráðs í
hópnum, biskupsritari og fjármálastjóri og skrifstofústjóri biskupsstofú.
21