Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 111
30. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 30.
ST ARFSREGLUR
prestssetrasjóðs.
Staða prestsseturs.
1. gr.
Hvert lögboðið prestssetur er hluti af embætti prestsins. Prestur er vörslumaður
prestsseturs og ber ábyrgð á því ásamt prestssetrasjóði, eins og nánar greinir í reglum
þessum.
2. gr.
Hvert lögboðið prestssetur er sérstök og sjálfstæð rekstrareining samkvæmt reglum
þessum.
Hverju lögboðnu prestssetri tilheyrir fymingarsjóður er varðveitist í prestssetrasjóði
og sjóðsstjóm stýrir. Úr fymingarsjóði hvers prestsseturs greiðist kostnaður vegna
prestssetursins, svo sem vegna nýframkvæmda og endurbóta, svo og annar tilfallandi
kostnaður við prestssetrið, annar en sá sem prestur greiðir. Kostnaður við úttekt á
prestssetri greiðist úr fýmingarsjóði þess, nema annan veg sé mælt í reglum þessum, sbr.
9. gr. Hrökkvi innistæða á fýmingarsjóði prestsseturs ekki til greiðslu kostnaðar, leggur
prestssetrasjóður fram það sem á vantar, að svo miklu leyti sem ekki koma til framlög frá
öðrum svo sem sókn eða sóknum hlutaðeigandi prestakalls.
Um afnota- og ráðstöfunarrétt prests á prestssetri.
3. gr.
Prestur hefur öll lögmæt og eðlileg afnot prestsseturs, meðan hann gegnir
prestsembætti. Prestur hirðir arð af prestssetri og hlunnindum sem því kunna að fýlgja
nema sérstaklega sé undanskilið með lögum, samningi, eða með öðrum lögmætum hætti.
Prestur getur eigi ráðstafað prestssetri eða réttindum sem því tengjast, þannig að bindi
prestssetrasjóð og/eða þannig að ráðstöfun gildi lengur en hann gegnir embætti sínu, án
samþykkis stjómar prestssetrasjóðs og annarra lögmæltra aðilja hverju sinni. Prestur getur
heldur ekki, án samþykkis stjómar prestssetrasjóðs, gert löggeminga sem fela í sér
óeðlilega ráðstöfun prestsseturs, miðað við eðlileg og hefðbundin not þess.
Alla löggeminga, sem fela í sér varanlega skerðingu eða breytingu á prestssetri,
ásýnd þess — eða viðbætur við prestssetrið — gerir stjóm prestssetrasjóðs, svo og
löggeminga vegna réttinda sem undanskilin kunna að vera afhotarétti prests.
Um smávægilegar lagfæringar og úrbætur á prestssetrum.
4. gr.
Prestur ábyrgist og kostar minniháttar lagfæringar og úrbætur sem verður þörf á á
prestssetri vegna venjulegrar notkunar á því.
Ef slíkra framkvæmda verður þörf vegna laklegs ástands prestsseturs, sem presti
verður ekki gefm sök á, eða þeirra er oftar þörf en eðlilegt má telja, miðað við aðstæður
allar, má þó undanskilja prest ábyrgð og kostnaði á því.
Stjórn prestssetrasjóðs og prestur geta samið amian veg, ef ástand prestsseturs eða
fýrirhugaðar framkvæmdir gera framkvæmdir samkvæmt 1. mgr. óþarfar eða
ónauðsynlegar.
106