Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 126
fara að rekja hér af því að þeir komu ekki ffam í fyrirspuminni. En þessari skyldu
að afla upplýsinga hefur verið sinnt að þessu leyti. Um það er mér kunnugt. Ég
hef gert það, reynt að verða við þeirri skyldu og orðið við þeirri skyldu með þessu
móti sem ég var að lýsa fýrir ykkur. Hvort valnefndarmenn að öðru leyti hafa gert
það hef ég ekki spurt þá um og valnefndin hefur ekki komið saman til þess að
ákveða hvort hún afli sér upplýsinga.
Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson.
Ég þakka fyrir þessar upplýsingar. Ég hef komið með hugmynd sem ég tel að við
ættum að fýlgja eftir og það er gera vandað umsóknareyðublað fýrir alla umsækjendur
þannig að umsækjendur um prestsembætti fylli allir út sama eyðublað, eða eins eyðublað
þar sem sömu upplýsinga er óskað. Ég held að það verði til þess að tryggja vandaðri
vinnubrögð af hálfu umsækjendanna og valnefndanna líka. Það gefur þeim þá góða mynd
af þeim þáttum sem helst ættu að koma fram í sambandi við slíka umsókn og meðferð á
henni.
3. Hvemig hefur tekist til með skipan valnefnda með tilliti til jafnréttisáætlunar
kirkjunnar? Hafa þær alls staðar verið skipaðar og þess gætt að kjósa einnig varamenn
sem er nauðsynlegt ef til vanhæfis skyldi koma?
Þessar spumingar em sömuleiðis bomar fram að tilhlutan fólks sem hefur haff
áhyggjur af þessum efnum.
Greinargerð.
Það má rökstyðja það að kynjahlutfall í valnefndum ætti að vera konum í hag þar sem
vígslubiskupar og prófastar em flestir karlkyns. Sömuleiðis er það til mikils vansa ef
kjósa þarf valnefndarmenn í aðdraganda prestsvals.
Svar biskups.
Því er til að svara að í upphafi ársins að var sent út bréf til allra sóknamefnda þar sem
bent var á hinar nýju starfsreglur og þær skyldur sem hvíldu á sóknamefndum um að
halda aðalsafnaðarfund sem fýrst og að kjósa skyldi valnefnd. Biskupsstofa hefur
upplýsingar um að þessu hafi verið sinnt, þ.e. að valnefndir hafi verið kjömar í 11
prestaköllum af 113. Hvort þetta þýði að það hafi ekki verið gert í öðrum prestaköllum en
þessum, það bara veit ég ekki. Við höfum bara ekki fengið upplýsingar um það.
I þessum tilvikum hefur það verið gjaman þannig að aðsteðjandi prestsval hefur ýtt á
eftir þessu. En auðvitað þarf að gæta þess að valnefndir séu alls staðar kjömar hvort sem
prestsval liggur fýrir eða ekki. Einnig var bent á þær skyldur sem jafnréttisáætlun
kirkjunnar lagði sóknamefndum á herðar í þessum efnum. Og niðurstaðan sem við höfum
um þessar 11 valnefndir er þessi, ég ætla að lesa þetta upp héma að gamni:
í Akureyrarprestakalli, Eyjafjarðarprófastsdæmi em aðalmenn í valnefnd tveir karlar
og þrjár konur og Biskupsstofu hefur ekki verið tilkynnt um varamenn.
í Bjamamesprestakalli, Skaftafellsprófastsdæmi em aðalmenn tveir karlar og þrjár
konur og varamenn þrír karlar og tvær konur.
í Bólstaðarhlíðarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi em aðalmenn tveir karlar og
þrjár konur og til vara tvær konur og þrír karlar.
í Eiðaprestakalli í Múlaprófastsdæmi em aðalmenn tveir karlar og þrjár konur og
varamenn sömuleiðis þijár konur og tveir karlar.
121