Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 44
5. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 5.
Sameining Bólstaðarhlíðar - og Þingeyraklaustursprestakalla öðlist gildi við starfslok
núverandi sóknarprests í Bólstaðarhlíðarprestakalli.
Sameining Mælifells - og Glaumbæjarprestakalla öðlist gildi við starfslok núverandi
sóknarprests í Mælifellsprestakalli.
Athugasemdir við drög þessi.
Samkvæmt 19. gr. laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997,
skal biskupafundur gera tillögur um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma til
kirkjuþings, sbr. 50. gr. sömu laga. Á kirkjuþingi er jafnframt lagt fram sérstakt þingmál
um framtíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma og er þar að finna greinargerð og
rökstuðning fyrir grunnhugmyndum um skipan þessara mála (14. mál). Þessar tillögur
byggja á þeim grunnhugmyndum sem þar em settar fram og vísast til þeirra almennt.
Þetta mál er tvíþætt:
Annars vegar er um að ræða tillögur nú sem hafa fengið umfjöllun á kirkjuþingi
1998, hlutaðeigandi héraðsfundum í framhaldi af því og þar sem svo hagar til að ekki er
sitjandi prestur í því prestakalli sem sameina á öðm. Biskupafundur leggur til að þær
verði samþykktar frá og með næstu áramótum.
Hins vegar er um að ræða tillögur að breytingum sem þykja þess eðlis að kirkjuþing
verði að fjalla um þær strax vegna smæðar þjónustueininganna - prestakallanna og
prófastsdæmanna - og vísa til hlutaðeigandi héraðsfunda og aðalsafhaðarfunda á næsta
ári. Tillögumar verði svo teknar til endanlegrar ákvörðunar á kirkjuþingi árið 2000.
Lagt er til að kirkjuþing fjalli um þær og afgreiði með þessum hætti eða öðrum sem
kirkjuþing telur hentari og biskupafundur hafi þannig bakland eða stuðning kirkjuþings til
að kynna tillögumar í héraði.
Um einstakar tillögur
Lagt er til að Eiða - og Desjarmýrarprestaköll verði sameinuð. Sökum fámennis í
Desjarmýrarprestakalli þykir ekki nauðsynlegt lengur að leggja til heilt embætti prests til
að þjóna Bakkagerðissókn, svo og prestssetur. Hins vegar verði prestinum sköpuð þar
viðunandi starfsaðstaða. Tiltölulega auðvelt er að þjóna sókninni frá Eiðum, sem er næsta
prestakall, en þar er einnig kirkjumiðstöð Austurlands og er því hagkvæmt og eðlilegt að
prestur þar þjóni henni einnig ef óskað er. Em það einnig rök fyrir því að prestssetrið
verði staðsett þar. Fjallað hefur verið um tillögumar á aukahéraðsfundi
Múlaprófastsdæmis og fylgir samþykkt fundarins um þessi efni máli þessu. Þá hefur
sömuleiðis verið fjallað um málið á safnaðarfundi í Bakkagerðissókn með vígslubiskupi,
prófasti o. fl. og varð úr að tryggja þjónustuna á grundvelli þjónustu frá Eiðaprestakalli
með því að sjá til þess að sóknarprestur hafi þá starfsaðstöðu sem nauðsynleg er. Hefur
biskup séð til þess að það verði gert og verður vitaskuld svo áffam verði sameining
prestakallana samþykkt á kirkjuþingi 1999.
Lagt er til að Skaftafellsprófastsdæmi verði sameinað Rangárvallaprófastsdæmi er
nefnist effirleiðis Rangárvalla - og Skaftafellsprófastsdæmi. Hið sameinaða prófastsdæmi
verður öflugri starfseining en nú er.
Lagt er til að Stafafellssókn og Hafnarsókn sem báðar tilheyra Bjamanessprestakalli
sameinist og að hin sameinaða sókn nefnist Hafúarsókn. Breytingartillaga þessi er gerð á
grundvelli samþykkta aðalsafnaðarfúnda hlutaðeigandi safúaða og samþykktar
héraðsfúndar prófastsdæmisins 28. ágúst 1999.
40