Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 63
12. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 12.
að semja við vinnuveitanda um starfsskyldur, sem ekki eru í samræmi við 3. mgr. 2. gr.,
nema biskup heimili.
4. gr.
Sérstaklega tilkvödd hæfisnefnd veitir umsögn um þá sem sækja um starf
sérþj ónustuprests.
Nefndin er skipuð þremur mönnum og þremur til vara. Vinnuveitandi skipar einn og
er sá jafnframt formaður. Biskup skipar einn. Vinnuveitandi og biskup hafa samráð um
skipun þriðja nefndarmannsins og skal þess gætt að hann komi úr röðum fagsamtaka á
viðkomandi starfssviði.
Hæfisnefndin metur hæfni allra umsækjenda til að gegna starfi sérþjónustuprests.
Skal hæfisnefnd m.a. líta til menntunar þeirra, starfsaldurs, starfsreynslu og starfsferils.
Sé áskilin sérstök þekking eða reynsla eða starf er að öðru leyti mjög sérhæff, skal meta
umsækjendur effir því hvemig þeir uppfylla þau sérstöku skilyrði. Hæfisnefnd aflar þeirra
gagna og upplýsinga sem hún telur að öðru leyti þörf og gerir skriflega umsögn um hæfni
allra umsækjenda, þ.m.t hvort þeir teljist hæfir til starfans. Nefndin skal raða
umsækjendum eftir hæfni þeirra. Telji nefndin einhveija umsækjendur jafnhæfa skal
þeim umsækjendum skipað jafnfætis. Ef umsækjandi er einn skal nefndin eigi að síður
gefa umsögn um hann samkvæmt framanskráðu. Hæfisnefnd setur sér nánari vinnureglur.
5. gr.
Vinnuveitandi ákveður hver ráðinn skuli til starfans, en getur óskað ráðgjafar biskups
í því sambandi. Vinnuveitandi tilkynnir biskupi hver ráðinn hafi verið.
6. gr.
Oski vinnuveitandi að breyta ráðningarsamningi skal sú breyting háð samþykki
biskups, ef hún getur varðað að einhveiju leyti starfssvið starfsmanns sem prests
þjóðkirkjunnar, sbr. 2. gr. Skal getið um þetta skilyrði í ráðningarsamningi.
Oski biskup að breyta erindisbréfi skal sú breyting háð samþykki vinnuveitanda ef
hún hefur áhrif á starf prests með þeim hætti að hagsmunum vinnuveitanda sé raskað.
7. gr.
Brjóti starfsmaður gegn ákvæðum erindisbréfs biskups skal biskup beita lögmæltum
úrræðum.
Biskup getur afturkallað erindisbréf með þeim áhrifum að hlutaðeigandi starfsmaður
telst ekki lengur til presta þjóðkirkjunnar. Um slíka affurköllun gilda sömu skilyrði og
reglur og þegar manni er veitt lausn frá prestsembætti, eins og við getur átt.
Biskup skal jafnan kynna vinnuveitanda ætlaðar ávirðingar og hafa samráð við hann,
áður en gripið er til aðgerða samkvæmt framanskráðu.
Telji vinnuveitandi nauðsyn krefja að segja starfsmanni upp vegna tiltekinna
ávirðinga starfsmannsins skal kynna biskupi fyrirhugaða uppsögn og hafa samráð við
hann.
8. gr.
Erindisbréf telst sjálfkrafa fallið niður við lok ráðningarsambands prests og
vinnuveitanda og telst hlutaðeigandi starfsmaður eftir það ekki lengur þjónandi prestur
þjóðkirkjunnar.
59