Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 32
2. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 2.
Fjárhagsáætlun kristnisjóðs fyrir árið 2000.
Fjárhagsáætlun jöfnunarsjóðs sókna 2000.
Fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2000.
Fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2000 v/kirkjuþings.
Lagt fram af biskupi f.h. kirkjuráðs.
Afgreiðsla.
Framsögumaður fjárhagsnefndar Helgi K. Hjálmsson mælti fyrir effirfarandi
greinargerð og ályktun.
Greinargerð.
Reikningar kristnisjóðs, Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs fyrir árið 1998 voru
yfirfamir og ekkert fundið athugavert. Á fundi fjárhagsnefndar kom Sigríður Dögg
Geirsdóttir, fjármálastjóri og lagði fram eftirfarandi fjárhagsáætlanir:
1. Kirkjumálasjóður, rekstraráætlun og greiðsluáætlun.
2. Kirkjumálasjóður, kirkjuþing.
3. Kristnisjóður, rekstraráætlun, greiðsluáætlun og rekstaryfirlit.
4. Jöfnunarsjóður sókna, rekstraráætlun og greiðsluáætlun.
5. „Fjármál íslensku þjóðkirkjunnar”, þar sem ffam koma rauntölur ársins 1998, áætlun
ársins 1999 og frumvarp vegna ársins 2000.
Tekin var fyrir og rædd skýrsla Ríkisendurskoðunar, „Endurskoðun Kirkjustofnana
árið 1998”. Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri svaraði spumingum nefndarmanna
varðandi athugasemdir sem ffam komu í skýrslunni. í niðurstöðu skýrslurmar stendur:
„Bókhald embætta og sjóða var almennt vel fært og frágangur skjala í góðu lagi.”
Ennffemur er bent á að umsvif Ijármála hjá Biskupsstofu hafa aukist jafht og þétt milli
ára og leggur Ríkisendurskoðun til að Biskupsstofa skoði kosti þess að fjárfesta í
bókhaldskerfi sem gefi fjármálastjóra enn betri yfirsýn yfir ijármálin og
fj ármálastýringu.
Þrátt fyrir að úr hafi verið bætt að hluta athugasemdum er snúa að skráningu vinnutíma
og fjarvista þá er Ríkisendurskoðun ekki fyllilega sátt við ffamgang úrbóta af hálfu
biskupsembættisins.
Ríkisendurskoðun vekur athygli á auknum vanskilum hjá kirkjubyggingarsjóði.
Fjárhagsnefnd leggur ríka áherslu á að farið sé að óskum Ríkisendurskoðunar varðandi
athugasemdir.
Lagðir voru fram eftirtaldir reikningar:
1. Biskupsstofa. Ýmsir vörslusjóðir. Ársreikningur 1998. í vörslu Biskupsstofu eru 45
sjóðir sem henni hafa verið afhentir til vörslu og ráðstöfunar í samræmi við tilgang
gefenda sem nánar er lýst í skipulagsskrám eða gjafabréfum. Fyrir 14 sjóði er staðfest
skipulagsskrá og hvemig tekjum skuli ráðstafað. Þessir sjóðir hafa hver um sig kjöma
endurskoðendur en Ríkisendurskoðun hefur eftirlit með því að ráðstöfun tekna og
úthlutanir séu í samræmi við skipulagsskrá. Hinir 31 sjóðimir hafa verið afhentir
28