Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 28
1. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 1.
Sérstakt mál liggur fyrir Kirkjuþingi varðandi Landsfund kirkjunnar árið 2000 og
vísast til þess.
Haldin verður alþjóðaráðstefoa hér í samvinnu við ffamtíðarstofiiun og mun
ríkisvaldið vera fjárhagslegur bakhjarl. Þar koma saman ýmsir guðfræðingar og
vísindamenn til að ræða trú og vísindi undir yfirskriftinni “Framtíðartrú”. Dr. Sigurður
Ámi vann að undirbúningi málsins. Unnið er að margsvíslegum undirbúningi vegna
hátíðar á Þingvöllum.
Á kirkjuþingi sl. haust var lögð ffam íjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir 2 milljónum
króna til þessa verkefnis á þessu ári. Kirkjuráð samþykkti að ráða sr. Bemharð
Guðmundsson til þessara sérverkefna tímabundið til 2ja ára.
Valþjófsstaður-Fljótsdalsvirkjun.
Töluverð umræða hefur verið vegna áforma um virkjun á Fljótsdal. Kirkjan á
verulegra hagsmuna að gæta vegna prestssetursjarðarinnar Valþjófsstaðar. Kirkjuráð telur
brýnt að réttur þjóðkirkjunnar í málinu sé virtur í hvívema.
Málefni Löngumýrar.
Kirkjuráð hefur fjallað um málefni Löngumýrar og ffamtíð staðarins, sem hefur verið
í all nokkurri óvissu eftir hið skyndilega ffáfall Margrétar Jónsdóttur. Er áformaður
fundur kirkjuráðs á Löngumýri að kirkjuþingi loknu, þar sem rætt verður við
Löngumýrarnefnd og lögð drög að stefnumörkun um uppbyggingu og rekstur þessa
dýrmæta staðar.
Kyrrðardagar og Maríusetur.
Kyrrðardagar hafa verið haldnir á Löngumýri og í Skálholti. Ljóst er að kirkjan hefur
hér miklu hlutverki að gegna á öld streitu og óróa. Stofnaður hefur verið sérstakur
Kyrrðardagasjóður til styrktar kyrrðardagahaldi á þessum helgisetrum kirkjunnar. Það er
íslandsvinurinn dr. Michael Fell sem er stofnandi sjóðsins og felur stjóm hans biskupi
Islands og vígslubiskupum. Með þessu sýnir hann hug sinn til íslensku þjóðkirkjunnar og
möguleika hennar að verða aflvaki andlegrar endumýjunar með íslenskri þjóð.
Kirkjuráði barst erindi ffá hópi rúmlega 70 kvenna sem kynntu ráðinu hugmyndir að
stofmm Maríuseturs. Setrið verði miðstöð fýrir konur. Þangað geti konur frá öllum
þjóðum farið til dvalar, til að hugsa, vinna, kenna og læra hver af annarri eins og fram
kemur í erindinu. Veittur hefur verið styrkur til starfseminnar.
Skálholt.
Starfssemi í Skálholti er sívaxandi og sífellt eykst sá fjöldi fólks sem þangað kemur.
Miklar framkvæmdir hafa verið við hlöð og bílastæði og er það allt hið prýðilegasta.
Fyrir liggja ffamkvæmdir við löngu tímabærar endurbætur á orgeli dómkirkjunnar. Brýnt
er að hafist verði handa við fomleifagröft í Skálholti, til að unnt verði að rannsaka
byggðasöguna á þeim fomhelga sögustað, miðstöð þjóðar og kirkju um aldir.
Málefni Skálholtsskóla.
Kirkjuráð hefur fjallað um málefni skólans og þarfir og möguleika á aukningu
gistirýmis og fúndaaðstöðu/ sýningaaðstöðu. Ljóst er að hér er þörf fjárfrekra aðgerða
sem brýnt er að skoða vandlega. Vísað er í meðfylgjandi skýrslu um Skálholtsskóla.
24