Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 46
5. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 5.
sóknarkirkjunni. Mikilvægt er að þar verði haldið uppi fjölþættri þjónustu og
reglubundnu helgihaldi.
Lagt er til að Búðasókn sem nú tilheyrir Ingjaldshólsprestakalli tilheyri eftirleiðis
Staðastaðarprestakalli. Breytingartillaga þessi er gerð á grundvelli eindregins vilja
sóknarbama, samþykktar aðalsafnaðarfunda, umfjöllunar héraðsfundar 5. september 1999
og með skírskotun til þeirra raka er greinir í bréfi prófasts til biskups Islands, dags. 6. s.
m.
Lagt er til að Barðastrandarprófastsdæmi sameinist ísafjarðarprófastsdæmi og nefhist
hið nýja prófastsdæmi Vestfjarðaprófastsdœmi. Tillagan leiðir til þess að Vestfirðir fá eitt
sameiginlegt öflugt prófastsdæmi í stað þriggja prófastsdæma áður
(Húnavatnsprófastsdæmi þó einungis að hluta).
Þá falli Ámes - og Hólmavíkurprestaköll (sem lagt er til að sameinist) undir hið nýja
prófastsdæmi einnig. Þessi breyting - ef samþykkt verður - leiðir til þess að til verður
töluvert öflugara prófastsdæmi á Vestfjörðum, heldur en nú er. Til að taka af allan vafa er
lagt til að Vestfjarðaprófastsdæmi falli undir umdæmi vígslubiskups í Skálholti, enda tvö
prestaköll, sem nú tilheyra umdæmi vígslubiskups á Hólum, færð í umdæmi
vígslubiskups í Skálholti. Ljóst er að þessi tillaga þarf samþykki tveggja kirkjuþinga, sbr.
2. ml. 3. mgr. 18. gr. laganr. 78/1997.
Lagt er til að Tálknafjarðarprestakall verði sameinað Bíldudalsprestakalli. Sökum
fámennis í báðum prestaköllunum þykir ekki nauðsynlegt lengur að leggja til tvö embætti
presta til að þjóna þeim báðum, svo og tvö prestssetur. Prestssetrið verði á Bíldudal. Þar
er fýrir hendi kirkja, safnaðarheimili og gott prestssetur.
Lagt er til að Vatnsfjarðarprestakall verði sameinað Staðarprestakalli. Sökum
fámennis í báðum prestaköllunum þykir ekki nauðsynlegt lengur að leggja til tvö embætti
presta til að þjóna þeim báðum, svo og tvö prestssetur. Prestssetrið verði á Suðureyri við
Súgandafjörð eins og verið hefur. Súðavíkursókn í ísafjarðarprestakalli verði jafnffamt
hluti af Staðarprestakalli. Fyrir liggur erindi ffá hreppsnefnd Súðavíkurhrepps sem felur í
sér áskorun til kirkjustjómarinnar um athugun á því hvort prestssetur Staðarprestakalls
eigi að vera staðsett í Súðavík. Erindið er fram komið effir að allir kirkjustjómaraðilar
hafa fjallað um málið heima í héraði. í ljósi þess þykir biskupafundi rétt að samþykktar
tillögur heimamanna um nýja skipan sókna og prestakalla í prófastsdæminu samkvæmt
ffamaskráðu verði teknar til endanlegrar afgreiðslu á kirkjuþingi nú. Erindi
Súðavíkurhrepps verði tekið til athugunar á næsta ári og öllum réttum
kirkjustjómaraðilum falið að fjalla um málið. Melgraseyrar - og Nauteyrarsóknir, sem
tilheyrt hafa Vatnsfjarðarprestakalli tilheyri effirleiðis Hólmavíkurprestakalli, enda sækja
íbúar sóknanna þjónustu til Hólmavíkur og em í sama sveitarfélagi. Unaðsdalssókn sem
tilheyrt hefur Vatnsfj arðarprestakalli tilheyri eftirleiðis ísafjarðarprestakalli. Tillögur
biskupafundar em í samræmi við samþykktir héraðsfundar ísafjarðarprófastsdæmis um
málefni þetta. Tillögur þessar fela í sér aðlögun að gerbreyttum aðstæðum hvað varðar
búsetu og samgöngur við ísafjarðardjúp og milli Djúpsins og Stranda.
Lagt er til að Ámesprestakall verði sameinað Hólmavíkurprestakalli. Sökum
fámennis í Ámesprestakalli þykir ekki nauðsynlegt lengur að leggja til heilt embætti
prests til að þjóna sóknum prestakallsins, svo og prestssetur. Prestssetrið verði á
Hólmavík eins og verið hefur. Verður að telja það eðlilegasta og hagkvæmasta kostinn
miðað við allar aðstæður.
42