Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 56
9. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þskj. 9.
og þ.m.t. að leggja starfsemina niður í núverandi mynd. Þá er þess gætt að hafa reglumar
almennar svo ffamkvæmd megi sníða að aðstæðum hveiju sinni.
Um 1. gr.
Hér er mælt svo fyrir að halda skuli uppi tónlistarfræðslu og annast um söngmál
þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing er því að kveða á um stefnumörkun á þessu sviði, með
setningu þessara starfsreglna. Byggt er á því grundvallaratriði að biskup hafi, á þeim
grundvelli, ákvörðunarvald um málefnið þ. e. inntak tóniistarffæðslunnar og söngmál
þjóðkirkjunnar.
Um 2. gr.
Sú skipan mála sem mælt er fyrir um hér, að fjárhagslegum þáttum málsins er skipað
undir kirkjuráð, er í samræmi við tilhögun almennrar firamkvæmdasýslu á sviði
kirkjumála. Því til áréttingar má vísa til 24. gr. laga um stöðu, stjóm og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og sérstaklega þó til laga um kirkjumálasjóð, sbr. 1. 138/1993.
Kirkjuráð fer sömuleiðis með íjárhags - og stjómunarlega ábyrgð á rekstri Skálholtsskóla
sbr. 1. gr. laga um Skálholtsskóla nr. 22/1993 og stýrir kristnisjóði, sbr. 1. 25/1970, og
Jöfnunarsjóði sókna, sbr. 1. 91/1987 og hefur því þá yfirsýn sem þarf til að sinna
ijárhagslegum þáttum málsins.
Um 3. gr.
Mælt er fýrir um að til að kosta starfsemi af þessu tagi megi heimta sértekjur.
Sértekjumar gætu einkum falist í gjöldum fýrir skólavist, en einnig fyrir sölu upplýsinga.
Þykir almennt séð góðir stjómsýsluhættir að heimildir til gjaldtöku séu bundnar í reglum.
Um 4. gr.
Lagt er til að starfsreglur þessar öðlist gildi 1. janúar árið 2000. Er talið rétt að miða
gildistökuna við áramót þar sem það er glögg og hentug viðmiðun m.a. vegna þess að þá
hefst nýtt reikningsár.
Afgreiðsla.
Framsögumaður allsheijamefndar sr. Sigfús J. Amason mælti fýrir áliti nefndarinnar
sem lagði til að málið yrði afgreitt með eftirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing samþykkir að vísa málinu til forseta kirkjuþings. Forseti undirbýr málið
fýrir næsta kirkjuþing í samráði við og með söngmálastjóra og skólanefnd Tónskóla
þjóðkirkjunnar.
Samþykkt með 16 atkvæðum gegn 2.
52