Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 95
22. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 22.
stjómkerfl þjóðkirkjunnar lögum samkvæmt, að geta veitt fé - eða viðbótarfé - til
verkefnisins og geti sinnt því hlutverki að annast um þá ytri umgjörð sem nauðsyn kann
að reka til að lögð sé til. Hér er ekki verið að taka afstöðu að öðru leyti til margvíslegra
grundvallaratriða og spuminga sem vaknað geta um starfsemi af þessi tagi heldur er verið
að finna viðfangsefninu stað í nýju stjómkerfi kirkjunnar og skapa því trygga umgjörð og
gmndvöll. Þá er þess gætt að hafa reglumar almennar svo ffamkvæmd megi sníða að
aðstæðum hveiju sinni.
Um 1. gr.
Mælt er fyrir um að á vegum íslensku þjóðkirkjunnar skuli veitt handleiðsla fyrir
presta og djákna þjóðkirkjunnar. Reynslan hefur sýnt að brýn þörf er fyrir starfsemi af
þessum toga og margir hafa leitað eftir handleiðslu sem Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
hefur boðið upp á. Er svo komið að fjölmargir bíða eftir að komast að en fjárskortur hefur
staðið þjónustunni fýrir þrifum að nokkm leyti.
Um 2. gr.
Sú skipan mála sem mælt er fyrir um hér, að fjárhagslegum þáttum málsins er skipað
undir kirkjuráð, er í samræmi við tilhögun almennrar ffamkvæmdasýslu á sviði
kirkjumála. Því til áréttingar má vísa til 24. gr. laga um stöðu, stjóm og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og sérstaklega þó laga um kirkjumálasjóð, sbr. 1. 138/1993.
Kirkjuráð fer sömuleiðis með fjárhags - og stjómunarlega ábyrgð á rekstri Skálholtsskóla
sbr. 1. gr. laga um Skálholtsskóla nr. 22/1993 og stýrir kristnisjóði, sbr. 1. 25/1970, og
Jöfnunarsjóði sókna, sbr. 1. 91/1987 og hefur því þá yfirsýn sem þarf til að sinna
fjárhagslegum þáttum málsins.
Um 3. gr.
Mælt er fýrir um að til að kosta starfsemi og þjónustu af þessu tagi megi heimta
sértekjur. Sértekjumar myndu einkum felast í þjónustugjöldum af þeim sem þiggja
þjónustuna. Almennt er það svo að vinnuveitandi greiðir handleiðslu fyrir starfsmenn
sína. Þykja almennt séð góðir stjómsýsluhættir að heimildir til gjaldtöku séu bundnar í
reglum.
Um 4. gr.
Lagt er til að starfsreglur þessar öðlist gildi 1. janúar árið 2000. Er talið rétt að miða
gildistökuna við áramót þar sem það er glögg og hentug viðmiðun m.a. vegna þess að þá
hefst nýtt reikningsár.
Afgreiðsla.
Framsögumaður allsherjamefhdar sr. Sigfús J. Amason mælti fýrir áliti nefhdarinnar
sem lagði til að málið yrði afgreitt með eftirfarandi
90