Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 129

Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 129
dyrum að opna formlega, eins og ég sagði við setningu kirkjuþings, heimasíðu kirkjunnar og hún er hugsuð sem samskiptanet alls starfsfólks kirkjunnar um leið og lögð verði drög að því— og sú vinna er þegar í gangi — að gera allsheijargagnagrunn um kirkjuna á lengra tímabili. Fyrst í stað verður heimasíðan og Kirkjuvefurinn tiltölulega einfaldur upplýsingamiðill og samskiptamiðill. Síðan þurfum við að þróa leið til þess að gera hann að öflugri gagnrunni og upplýsingabanka. Ég held að við höfum afar góða fýrirmynd í þessu, þ.e. vef Alþingis sem margir þekkja. Það er mjög auðvelt að komast þaðan inn á brautir til ýmissa átta og ná þar ýmsum upplýsingum og gögnum. Svo þurfum við að hugsa fýrir því, og það er næsta vers, hvemig við nýtum netið sem boðmiðil, til boðunar og til ffæðslu, ekki bara um stofnunina heldur um inntakið. Það er gífurlega mikilvægt og spennandi verkefni sem bíður okkar að takast á við, ekki kannski fýrir áramót en svona upp úr því. Fyrirspurn frá Ólafi Eggertssyni. Eru til leiðbeinandi kurteisisreglur sem hafðar skulu í heiðri í kirkjunum? Sé svo hafa þær þá verið kynntar sem skyldi? En ef engar slíkar reglur eru skráðar eða til, eru þá uppi áform biskups eða kirkjuráðs um að bæta úr þeirri vöntun? Svar biskups. Ég þakka þessa spumingu. Ég held að ég geti svarað því í stuttu máli að engar slíkar reglur em til sérstaklega um kirkju nema eins og fyrirspyijandi benti á, almennar kurteisisvenjur, almennar venjur um virðingu og lotningu fyrir því sem heilagt er. Hitt er annað mál, og ég get alveg tekið undir það sem Olafur segir, að við ættum að huga að því hvort við eigum setja slíkar reglur. Við erum með reglur um umgengni við íslenska fánann t.d. Við höfum gengið út ffá því að hvert mannsbam viti það sem segir um kirkjuna: „Hér er guðshús. Hér er hlið himinsins. Sannarlega er drottinn á þessum stað.‘‘ Það er ekkert víst að svo sé nú og við horfumst í augu við að virðingarleysið veður uppi og við höfum jafhvel, eins og Ólafur benti á, upplifað það á hátíðum í helgidómum þar sem allt var í spariklæðum, að inn veður sveit sjónvarpstökumanna og fféttamanna með húfur á hausnum ofan í augu og úlpuklæddir, vaðandi upp að altari og virðist vera sem hafhir yfir allar venjulegar kurteisisvenjur því enginn mundi ryðjast með þeim hætti iim í brúðkaupsveislu t.d. Við þurfum að horfast í augu við að við lifum á tímum þar sem hefðir eru gjaman vanvirtar og vaðið er yfir mörkin og þar þurfum við að hamla á móti. Hugsanlega gerum við það með reglum. Umffam allt gerum við það með uppeldi og fordæmi og þar þurfum við að berjast á mörgum vígstöðvum til þess að koma virðingu fyrir hinu heilaga, fýrir helgidóminum og fyrir helgum athöfhum, á ffamfæri og inn í meðvitund fólks. Þetta er sístætt verkefhi eins og allt uppeldi og mótun menningarinnar. Við skulum huga að þessu með umgengnisreglumar, ljósar og skorinorðar, sem hugsanlega gætu hangið uppi í kirkjunni undir þessu mottói: Staðurinn sem þú stendur á er heilög jörð og honum hæfir ekkert nema lotning og virðing. 124
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.