Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 23
Kirkjuráðs og Biskupsstofu ffá 2003, en um er að ræða fjármálaráðgjöf til
sóknamefhda, auk þjónustu við undirbúning úthlutana úr Jöfnunarsjóði sókna. Þá hefur
Sigurgeir Skúlason, landfræðingur unnið við það að afmarka lóðir fyrir kirkjur, eins og
nánar er gerð grein fyrir hér síðar, en um samstarfsverkefni Kirkjuráðs og
Kirkjugarðaráðs er að ræða.
Leikmannastefna
Kirkjuráði barst ályktun ffá Leikmannastefiiu 2005 varðandi meðferð agavandamála í
kirkjunnar, o.fl. Úrlausn Kirkjuráðs varðandi það mál kemur ffam í tillögum í 6. máli
Kirkjuþings 2006 og vísast til umfjöllunar um það. Þá barst einnig ályktun ffá
Leikmannastefhu 2005 um að komið verð á fót starfsstöðvum kirkjunnar er þjóni stærri
landsvæðum. Hvað það varðar er vísað til umfjöllunar síðar í skýrslunni um 12. mál
Kirkjuþings 2005.
Viðrœður um prestssetur o.fl.
Biskup Islands átti viðræður við núverandi og fyrrverandi forsætisráðherra þar sem
ýmis mál er snerta kirkjuna voru rædd, m.a. staða prestssetraviðræðnanna, verkefni
stjómarskrámefndar o.fl.
Viðræður um prestssetur og ffamtíðarskipan þeirra mála hafa farið ffam á tímabilinu
milli kirkjunnar og ríkisins Samningar og tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum
liggja fyrir og em mál vegna þessa flutt hér á þinginu.
Ríkisendurskoðun
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri áttu fund með fulltrúum Ríkisendurskoðunar á
árinu. Var m.a. rætt nýtt fyrirkomulag á innheimtu ársreikninga sókna og kirkjugarða
og hugmyndir um sóknasamlög, þar sem um formlegt samstarf tveggja eða fleiri sókna
er að ræða undir sameiginlegri stjóm en Kirkjuráð hefur rætt hugmyndir þar að lútandi.
Þá var einnig rætt um rekstrarlíkan sókna á fundinum. Samþykkt var á þeim fundi að
Biskupsstofa annaðist innheimtu reikninganna hjá sóknum og sendi eintök þeirra til
Rikisendurskoðunar.
Kirkjuhús
Kirkjuráð hefúr á tímabilinu rætt hugmyndir að hugsanlegu nýju kirkjuhúsi, en
kirkjuhúsið á Laugavegi rúmar tæplega alla starfsemina núorðið. Hefur einkum verið
litið til Skólavörðuholts sem heppilegrar staðsetningar, ekki hvað síst ef unnt væri að
samnýta húsnæðið með Hallgrímssókn. Rætt hefúr verið við skipulagsyfirvöld um
málið og hugsanlegir möguleikar kannaðir.
III. Afgreiðsla mála Kirkjuþings 2005 og auka Kirkjuþings 2006
Kirkjuþing 2005 var haldið í Grensáskirkju dagana 22. - 27. október.
Samþykktar vom nýjar starfsreglur og hafa þær verið birtar í B - deild Stjómartíðinda
lögum samkvæmt og kunngerðar hlutaðeigandi. Þá samþykkti þingið ýmsar ályktanir.
Skal hér farið nánar yfir afgreiðslu þessara mála:
21