Gerðir kirkjuþings - 2006, Síða 24
1. mál Kirlguþings 2005. Skýrsla Kirkjuráðs
Kirkjuráð hefur brugðist við ályktun Kirkjuþings og ábendingum (sbr. nefndarálit
allsheijamefndar stafliði a - g) sem hér greinir:
"a) Þáþakkar allsherjarnefnd góða uppbyggingu á vefkirkjunnar kirkjan.is og vekur
athygli á að þetta er einn virkasti miðill nútímans til að ná til bama og unglinga.
Nefndin telurþví aðþetta sé sá boðunarvettvangur sem síst megi vanmeta".
Kirkjuráð tekur undir þessi sjónarmið og er vefur kirkjunnar í stöðugri uppbyggingu og
þróun.
"b) Allsherjarnefnd telur mikilvægt að stjómarskrárnefnd berist formlegt erindi frá
Þjóðkirkjunni til að undirstrika mikilvægi 62. greinar stjómarskrárinnar".
Haft var samband við stjómarskrámefnd og varð úr að senda ekki erindi að svo stöddu.
”c) Allsherjamefnd telur eðlilegt að skoða stöðu þeirra safhaða sem ekki njóta
fjárstuðnings úr opinberum sjóðum, umfram sóknargjöld. Nefndin telur rétt að allir
skráðir söfnuðir njóti jafnrœðis íþessum efhum".
I tilefni þessa samþykkti Kirkjuráð eftirfarandi ályktun:
“Kirkjuráð álítur að grundvöllur sjóða kirkjunnar séu annars vegar kirkjueignir og hins
vegar viðurkenning hins opinbera á sérstökum skyldum Þjóðkirkjunnar umfram önnur
trúfélög. Þetta byggir á lögum og ekki síst kirkjujarðasamningi frá 1997.1 ljósi
umræðunnar um fjárhagslegt jafnræði og til að stuðla að sátt um stöðu trúfélaga í
landinu hvetur Kirkjuráð stjómvöld til að ljúka viðræðum um prestssetur og skoða um
leið hvort unnt sé að veita öðrum skráðum trúfélögum viðbótarframlag sambærilegt við
það sem veitt er til Kirkjumálasjóðs, að teknu tilliti til hlutverks sjóðsins”.
Alyktun þessi var send dóms- og kirkjumálaráðherra og fjármálaráðherra.
"d) Allsherjarnefhd telur að sú meginstefna sem samþykkt hefur verið um flokkun
kirkna og bænhúsa eftir varðveislu- ogþjónustugildi sé afhinu góða en vill jafnfi-amt
benda á mikilvœgi þess að kirkjan marki sér stefnu um hvað beri að gera við aflagðar
sóknarkirkjur, þar sem viðhaldþeirra er mjög íþyngjandi fyrir sóknir.
Allsherjarnefhd hvetur til að aflagðar sóknarkirkjur verði annað hvort afhelgaðar og
seldar, eða teknar ofan, finnist ekki önnur viðeigandi úrrœði".
Kirkjuráð gerir ráð fyrir að tillögur um þessi efiii verði lagðar ffarn á Kirkjuþingi 2007.
"e) Því leggur allsherjarnefnd til að kosin verði sérstök kirkjudaganefhd er vinni að
undirbúningi næstu Kirkjudaga eins og bent er á í skýrslunni. Jaýhframt leggur
allsherjamefnd til að hugað verði að því að halda Kirkjudaga á landsbyggðinni, m.a.
til stuðnings við svæðabundið kirkjustarfl'.
Kirkjuráð ákvað að fela kirkjustarfshópi Kirkjuráðs að leggja mat á Kirkjudaga 2001 og
2005 og gera tillögur til Kirkjuráðs um hvort og hvemig framhaldið skuli vera.
Kirkjustarfshópur lagði ffam skýrslu um þetta mál sem var rædd af Kirkjuráði.
Samþykkt var að senda skýrsluna út til umsagnar, til héraðsfunda, leikmannastefhu,
o.fl. og óska eftir áliti þessara aðila. Skýrsla kirkjustarfshópsins fylgir máli þessu.
22