Gerðir kirkjuþings - 2006, Síða 34
3. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipan
sókna, prestakalla og prófastsdæma
Biskupafundur flytur tillögu um sameiningu Þórshafharprestakalls og
Skeggjastaðaprestakalls og nefhist prestakallið Langanessprestakall. Prestssetrið verði á
Þórshöfn. Prestakallið tilheyri Þingeyjarprófastsdæmi. Þó verði Skeggjastaðasókn
áfram í Múlaprófastsdæmi. Þá er gerð tillaga um að Ljósavatnsprestakall verði lagt
niður. Lundarbrekkusókn tilheyri Skútustaðaprestakalli. Ljósavatns- og
Þóroddsstaðasóknir, tilheyri Grenjaðarstaðarprestakalli og Hálssókn tilheyri eftirleiðis
Laufássprestakalli
4. mál Kirkjuþings 2006. Skýrsla Prestssetrasjóðs ogfjárhagsáœtlun
Málið er lagt fram og flutt af Kirkjuráði.
5. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga til þingsályktunar um val, kjör og veitingu
prestsembætta
Kirkjuráð flytur mál þetta en starfshópur, sem Kirkjuráð skipaði hefur samið tillögur
um val, kjör og veitingu prestsembætta, sem fela í sér breytingar á starfsreglum um
presta nr. 735/1998 að því er varðar val á prestum. Fyrirhugað er að fá umræðu um
málið á Kirkjuþingi og kanna hvort vilji standi til þess að senda tillögumar til
kynningar hjá héraðsfundum, Prestastefhu og Leikmannastefhu. Kirkjuráð ákvað hins
vegar á fundi sínum þann 20. október að draga mál þetta til baka, vegna samnings sem
undirritaður var sama dag og Kirkjuþing þarf að fjalla um auk fleiri mála á Kirkjuþingi
er hann leiðir af sér. Abendingar hafa komið ffarn við efiú málsins, sem gefa tilefhi til
þess að það verði endurskoðað.
6. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um friðarskyldu, lausn ágreinings og
úrskurði í ágreiningsmálum
í nóvember 2005 skipaði Kirkjuráð nefnd til að endurskoða kirkjustjóm í héraði
samkvæmt 17. máli kirkjuþings 2005. Verkefiii nefiidarinnar var m.að fara sérstaklega
yfir sáttaferli í héraði í ágreiningsmálum á vettvangi kirkjunnar og setja frarn tillögur að
breyttri skipan yrði slíkt talið nauðsynlegt.
Nefndin var skipuð dr. Páli Sigurðssyni, prófessor við lagadeild H.Í., sem var formaður,
Ragnhildi Benediktsdóttur, skrifstofustjóra Biskupsstofu, sem var varaformaður og sr.
Kristjáni Bjömssyni, sóknarpresti Vestmannaeyjaprestakalls. Jafiiframt ákvað
Kirkjuráð að sr. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup Skálholtsstiftis og sr. Þorbjöm
Hlynur Amason, prófastur Borgarfjarðarprófastsdæmis, skyldu starfa með nefndinni.
Er nefiidin tók til starfa lá fyrir sú afstaða yfirstjómar kirkjunnar að lögð yrði áhersla á
að ætíð fari fram sáttaumleitan milli málsaðila áður en kemur að kæm til
úrskurðamefhdar kirkjunnar og að það sáttaferli verði vel skilgreint. Gerði nefhdin það
að einni megin forsendu sinni að sáttaferli í ágreiningsmálum, sem hér um ræðir, verði
vel skilgreint og reynt verði til þrautar að ná fram farsælli lausn ágreiningsmálanna með
sáttum, eftir því sem framast er unnt. Til enn frekari áréttingar á þessari áherslu er lögð
áhersla á almenna friðarskyldu innan kirkjunnar og utan með ákvæðum um ríka skyldu
til að leita sátta á fiumstigum máls. Eftirfarandi fjögur mál vom einnig unnin af
nefiidinni. Kirkjuráð ákvað á fundi sínum þann 20. október að draga mál þetta til baka,
32