Gerðir kirkjuþings - 2006, Qupperneq 49
Kristnisjóður
Framlag í Kristnisjóð hækkar í samræmi við launahækkanir presta og samsvarar 15
árslaunum presta í fámennustu prestaköllunum. Hækkunin milli áranna 2006 og 2007
nemur um 12,2 m.kr. í fjárlagaffumvarpi. Þessi mikli munur skýrist af því að ekki
náðist að setja hækkun inn í fjárlög 2006 vegna launahækkana presta. Gert er ráð fyrir
um 7 m.kr. fjárveitingu á íjáraukalögum 2006. Á árinu 2007 er gert ráð fyrir að tekjur
sjóðsins að fjárhæð 82,8 m.kr. flytjist í Kirkjumálasjóð þar sem veitt verða framlög til
starfsemi kirkjunnar. Þessi tilfærsla var gerð í fyrsta skipti árið 2006 og er mikil
einföldun á umsýslu Kirkjuráðs.
Nefndarálit
Fjárhagsnefnd fór yfir ársreikninga og fjárhagsáætlanir Þjóðkirkjunnar, stofhanir hennar
og sjóði. Fjárhagsnefiid þakkar skýra ffamsetningu reikninga, áætlana og yfirgripsmikil
yfirlit og skýringar á öllum rekstri sem undir Þjóðkirkjuna heyra. Nefndin fór einnig
yfir endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar, en í skýrslunni er fjallað um
ársreikninga embætta, sjóða, stofnana og fýrirtækja Þjóðkirkjunnar. Nefndin hafði
einnig til umfjöllunar lykiltölur unnar úr ársreikningum sókna 2005, yfirlit unnið úr
ársreikningum héraðssjóða fýrir árið 2005 og skýrslu um úthlutanir styrkja úr
Jöfiiunarsjóði sókna á árunum 1990 - 2006 og tillögur um úthlutun árið 2007.
Nefhdin fékk á sinn fund Jón Helga Þórarinsson, formann stjómar Tónskóla
Þjóðkirkjunnar, og Bjöm Steinar Sólbergsson skólastjóra, Kristin Ólason, nýráðinn
rektor Skálholtsskóla, Þórstein Ragnarsson, forstjóra Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, og prófessor Hjalta Hugason, Sigurð Þórðarson
ríkisendurskoðanda og Svein Arason, skrifstofustjóra. Framangreindir aðilar veittu
nefndinni gagnlegar upplýsingar.
Varðandi fjármál Þjóðkirkjunnar vill fjárhagsnefnd draga ffam eftirfarandi atriði:
1. Fjárlaganefiid fagnar farsælum lyktum samningaviðræðna um prestssetrin.
2. Kirkjuráð beiti sér fyrir því að sóknum sem ekki hafa staðið skil á ársreikningum til
Biskupsstofu svo árum skiptir verði veitt aðstoð við að koma reikningsskilamálum
sínum í viðunandi horf. Jafnffamt verði kannað hvort ekki sé þörf á að sameina
einhveijar þær litlu sóknir sem hér um ræðir.
3. Kirkjuráð er hvatt til þess að koma á laggimar launaskrifstofu við biskupsembættið
sem annist launagreiðslur presta, starfsmanna og stofnanna Þjóðkirkjunnar í samræmi
við Stefiiu og starfsáherslur Þjóðkirkjunnar 2004-2010.
4. Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að við aukið svigrúm Kirkjumálasjóðs á
næstu ámm verði rýmri fjárráð nýtt m.a. til þess að fjölga prestsembættum þar sem
þeirra helst er þörf og efla kynningarstarf á vegum Þjóðkirkjunnar.
47