Gerðir kirkjuþings - 2006, Blaðsíða 53
Kxistín Mjöll Kristinsdóttir, innanhússarkitekt, er eftirlitsmaður prestssetra og sér um
viðhaldsframkvæmdir ásamt því að annast eftirlit reikninga og hluta af bókhaldsvinnu
fyrir sjóðinn. Frá 1. jan. 2003 hefur Kristín verið í 80% starfi fyrir Prestssetrasjóð, en í
20% starfi fyrir Kirkjumálasjóð og Kristnisjóð.
Prestssetrasjóður er með samning við Biskupsstofu um skjalavörslu, bókhald og
fjárvörslu, svo og aðstöðu fyrir skrifstofu hans á 4. hæð Kirkjuhússins að Laugavegi.
Stjóm og starfsmenn sjóðsins hafa á þessu starfsári, sem fyrr, haft með höndum fjölþætt
en hefðbundin verkefni.
Fjárhagur
Arsreikningur 2005 með áritun Ríkisendurskoðunar sýnir tekjuafgang að upphæð 45,0
millj. kr. og óráðstafað eigið fé er rúmar 185 millj. kr. Munar þar mestu um óreglulegar
tekjur, sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun upp á tæpar 31 millj kr.
Þar er um að ræða eignamámsbætur ffá Landsneti vegna Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd
og veiðiarðs frá prestssetursjörðinni að Hofi í Vopnafirði og sölu prestsbústaðanna í
Búðardal og Skagaströnd. Þess ber að geta að umráðamenn prestssetursjarðanna að
Hofi og Saurbæ hafa krafist bótanna og veiðiarðsins. Stjóm sjóðsins telur að þessar
fjárhæðir eigi að renna í fymingarsjóð prestssetranna til viðhalds og endurbóta á þeim.
Ekki er víst að þessir Ijármunir skili sér í sjóðinn fyrr en með dómsúrskurði og því varla
hægt að ráðstafa þeim á meðan.
Yfirdráttarskuld Prestssetrasjóðs hjá SPRON var breytt í langtímalán fyrir um þremur
ámm, sem nú er greitt reglulega af. í ffamhaldi af því var haldið áfram að semja um
lækkun vaxta á öllum lánum sjóðsins hjá bönkum og sparisjóðum. Vaxtagjöld og
verðbætur sem sjóðurinn greiðir hafa því lækkað árlega á undanfomum ámm og ætla
má að svo verði áfram enda lækki skuldastaða hans eða haldist óbreytt.
Vextir á öllum langtímalánum sjóðsins hafa nú verið lækkaðir til samræmis við það
sem lægst gerist á sambærilegum húsnæðislánum. Hefur þessi vinna því enn skilað sér í
lækkun á fjármagnsgjöldum milli ára, eða sem nemur tæpum 1,7 millj. kr. milli áranna
2004 og 2005. Prestssetrasjóður hefur ekki lengur heimild til yfirdráttar á
bankareikningi sínum og því er nauðsynlegt að eiga nokkurt fé inni á reikningi til að
mæta skyndilegum viðgerðum og viðhaldi, sem ekki eru á framkvæmdaáætlun sjóðsins.
Langtímaskuldir Prestssetrasjóðs eru nú rúmar 143 millj. kr. og hafa þær hækkað
lítillega milli ára þar sem Prestssetrasjóður yfirtók m.a. nokkur lán vegna ffamkvæmda
presta á prestssetursjörðum.
I lok ársins 2005 var samanlagt brunabótamat fasteigna í eigu/umsjón Prestssetrasjóðs
um 2.735 millj. kr. Sé borið saman við brunabótamat eigna hans er veðhlutfall
langtímalána um 5,2% af samanlögðu brunabótamati. Til ffóðleiks má geta þess að
söluandvirði margra prestssetra er margfalt brunabótamat þeirra fasteigna sem þar eru.
Telja verður því, að þrátt fyrir að skuldir sjóðsins séu töluverðar, þá sé skuldastaða
Prestssetrasjóðs góð miðað við hinar miklu eignir hans. Samanlagt fasteignamat eigna
Prestssetrasjóðs í loks árs 2005 var 996 millj. kr. og hafði hækkað um 12% milli ára.
51