Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 70
11. mál
Frumvarp til Iaga um breyting á lögum um kirkjugarða,
greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993
Flutt af dóms- og kirkjumálaráðherra
Frsm. Hjalti Zóphóníasson
Kirkjuþing lýsir í megindráttum stuðningi við frumvarp til laga til breytinga á lögum
um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr.36 4. maí 1993, sem dóms- og
kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að leggja fram á Alþingi. Kirkjuþing telur flestar
breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir tímabærar og þarfar.
Kirkjuþing kemur á framfæri þeirri skoðtrn að líkhús skuli vera rekin af kirkjugörðum
og heilbrigðisstofhununum og virkt effirlit verði með slíkri starfsemi í samræmi við
reglugerð sem brýnt er að ráðherra setji sem fýrst.
Kirkjuþing leggur til að ffumvarp til laga um breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun
og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993 verði að lögum með eftirfarandi breytingum:
1. mgr. 4. gr frumvarpsins falli niður.
Við 2. mgr. 4 gr. fiumvarpsins bætist:
Þó skal heimilt að veita einstökum trúfélögum leyfi til að búa lík til greftrunar innan
sinna vébanda samkvæmt eigin hefðum enda samræmist það lögum og góðum siðum.
2. mgr. 9. gr. frumvarpsins orðist svo:
Þar sem þörf krefur skal afrnarka sérstaka reiti fýrir mismunandi trúarbrögð og einnig
óvígðan reit.
2. mgr. 14. gr. frumvarpsins orðist svo:
Við bætist ný 12. gr., með tveimur mgr. svohljóðandi:
Með útför í lögum þessum er átt við helgiathöfn, sem lýtur hefð og siðum trúfélags og
prestur eða forstöðumaður trúfélags ffamkvæmir, eða borgaraleg athöfn sem
aðstandendur annast. Skal farið að vilja hins látna, hafi hann náð 18 ára aldri, um það
hvort útforin eigi að vera innan vébanda trúfélags eða borgaraleg, en liggi ekki vilji
hans fýrir skal tekið tillit til óska aðstandenda.
Ekki er skylt að hafa útfararathöfii áður en lík er borið til grafar.
4. mgr. 14. gr. ffumvarpsins falli niður.
15. gr. frumvarpsins orðist svo:
Við bætist ný 13. gr. er hljóði svo:
A eftir útför tekur annað hvort við greftrun þar sem kista með hinum látna er borin til
grafar og jarðsett í kirkjugarði eða grafreit eða bálfor. Við bálför er kista með hinum
látna brennd og aska hins látna sett í duftker, sem jarðsett er í kirkjugarði eða graffeit,
68