Gerðir kirkjuþings - 2006, Síða 72
12. mál
Samkomulag íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar um prestssetur
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Karl Sigurbjömsson
Kirkjuþing 2006 samþykkir meðfylgjandi samning íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar
um prestssetur og afhendingu þeirra til Þjóðkirkjunnar.
Greinargerð:
Hér er um að ræða viðauka við samkomulag ríkis og kirkju frá 10. janúar 1997, sem
fjallaði um afhendingu kirkjujarða til ríkisins og endurgjald það sem ríkið innir af hendi
til Þjóðkirkjunnar á móti. í því samkomulagi vom prestssetrin undanskilin og kveðið á
um að síðar yrði fjallað um stöðu þeirra. Með undirritun samkomulags þess sem hér
liggur fyrir er þeirri umfjöllun lokið.
í samkomulaginu er gengið frá því hvaða prestssetrum Þjóðkirkjan heldur áffam í eigu
sinni og hvaða önnur prestssetur færast til ríkisins. Með samkomulaginu er staðfest að
þær eignir sem Prestssetrasjóður f.h. Þjóðkirkjunnar tók aftur við ffá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1994 verði áfram eign Þjóðkirkjunnar. Endurgjald ríkisins fyrir
önnur prestssetur og aðrar eignir sem ríkið eignast með samkomulagi þessu felst í því
að árlegt framlag ríkissjóðs í Kirkjumálasjóð er hækkað um 3%. Samhliða þessu falla
brott ýmsir liðir á fjárlögum þar sem veitt hefur verið fé til nokkurra verkefna
Þjóðkirkjunnar.
Samkomulag þetta grundvallast á álitsgerð kirkjueignanefhdar frá 1984, og er viðauki
við samkomulagið frá 1997 eins og fyrr segir. Auk þess byggir það á lögum um stöðu,
stjóm og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr.78/1997, V. og VI. kafla, svo og samningi
íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar frá 1998. Síðastnefndi samningurinn er nánari
útfærsla á kirkjujarðasamkomulaginu frá 1997.
Eignamál Þjóðkirkjunnar hafa verið lengi til umfjöllunar, á prestastefnum og á
kirkjuþingum, nær árlega frá 1980. Það ár skipaði kirkjumálaráðherra nefrid um málefni
sóknarpresta, embættin og prestssetrin. Hún skilaði áliti 1984 þar sem fjallað var um
prestssetursjarðir og hlunnindin. Seinni hluti álitsgerðarinnar var skrá um kirkjueignir á
íslandi frá 1597 til 1984 og unnin var af Ólafí Ásgeirssyni, þjóðskjalaverði. Þar er að
finna yfirlit um prestssetrin, ásamt með hjáleigum og nýbýlum ffá þeim.
Unnið var að samningum milli ríkis og kirkju um framtíðarskipan kirkjueignanna á
grundvelli álits hinnar ráðherraskipuðu kirkjueignanefridar. Þann 10.1.1997 var
undirritað samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar (kirkjujarðasamkomulagið)
um að "kirkjujarðir og aðrar kirkjueignir sem þeim fylgja, að frátöldum prestssetrum og
því sem þeim fylgir væru eign íslenska ríkisins" á móti þeirri skuldbindingu að íslenska
ríkið greiddi "laun presta þjóðkirkjunnar og starfsmanna biskupsembættisins"
samkvæmt nánari reglum. Fyrirheit voru gefin um að lokið yrði samningum um stöðu
70