Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 84
því er að skipta.
4. Söluandvirði prestssetra.
5. Aðrar tekjur.
III. Kafli.
Prestssetur
7. gr. Prestur er vörslumaður prestsseturs og ber ábyrgð á því ásamt Prestssetrasjóði.
8. gr. Hvert lögboðið prestssetur er sérstök rekstrareining samkvæmt starfsreglum
þessum. Hveiju lögboðnu prestssetri tilheyrir rekstrarsjóður/fymingarsjóður er
varðveitist í Prestssetrasjóði og sjóðsstjóm stýrir. Úr rekstrarsjóði greiðist kostnaður
vegna prestsseturs, svo sem vegna nýframkvæmda, endurbóta og annar tilfallandi
kostnaður við prestssetrið, annar en sá sem prestur greiðir. í rekstrarsjóð greiðast
hreinar tekjur af hlunnindum viðkomandi prestsseturs, sem samkomulag er gert um,
húsaleiga og aðrar tekjur.
9. gr. Prestur hefur öll lögmæt og eðlileg afiiot prestsseturs, meðan hann gegnir
prestsembætti. Prestur hefur umsjón með og nýtur arðs af prestssetri samkvæmt
samkomulagi við Prestssetrasjóð. Prestur getur eigi ráðstafað prestssetri eða réttindum
sem því tengjast, þannig að það bindi Prestssetrasjóð og/eða þannig að ráðstöfun gildi
lengur en hann gegnir embætti sínu, án samþykkis stjómar Prestssetrasjóðs og annarra
lögmæltra aðilja hveiju sinni. Prestur getur ekki, án samþykkis stjómar Prestssetrasjóðs,
óeðlilega ráðstöfun prestsseturs, miðað við eðlileg og hefðbundin not þess. Alla
samninga, sem fela í sér varanlega skerðingu eða breytingu á prestssetri, ásýnd þess -
eða viðbætur við prestssetrið - gerir stjóm Prestssetrasjóðs, svo og löggeminga vegna
réttinda sem undanskilin kunna að vera afhotarétti prests.
Eignir og réttindi sem fylgja prestssetrum, en prestur óskar eftir að undanskilja
afnotarétti sínum eða þau sem tilgreind em með ákveðnum hætti að séu ekki inni í
grunni til leigu, em í höndum stjómar Prestssetrasjóðs.
10. gr. Prestur hefur umsjón með og kostar minniháttar lagfæringar og á prestssetri skv.
ákvæðum húsleigu- og ábúðarlaga.
11. gr. Stjóm Prestssetrasjóðs ákveður hvemig umbúnaður á prestssetri er, vegna
ferðaþjónustu, fomminja, náttúmminja og annars þess háttar, sem lýtur að ytri ásýnd
prestssetranna, að því leyti sem lög og samningar mæla ekki á annan veg um. Sé
prestssetur leigt öðrum en presti, semur stjóm sjóðsins um leigukjör við hlutaðeigandi.
Presti er heimilt, með samþykki stjómar Prestssetrasjóðs, að leigja prestssetur þriðja
manni um skamma hríð, svo sem t.d. meðan prestur er fjarverandi í námsleyfi. Skal þá
litið svo á að prestur beri fulla ábyrgð á prestssetrinu, eins og hann sæti það með
venjulegum hætti.
12. gr. Ef prestssetur er ekki setið af presti, vegna þess að prestakall er prestslaust eða
vegna ákvörðunar biskups um slíka ráðstöfun sbr. ákvæði 42. gr. laga nr. 78/1997, fer
Prestssetrasjóður með öll réttindi og skyldur sem prestssetrið varða. Stjóm
Prestssetrasjóðs ákveður hvernig prestssetrinu skuli ráðstafað og/eða um það sinnt. Þess
82