Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 113
Svar biskups
Já, það kemur til greina. Biskup hefur vígsluvald og þær aðstæður geta verið uppi þar
sem slíkt er beinlínis nauðsynlegt. Alla jafna er það þó ekki gert. Öll störf eða embætti
þar sem um skipun er að ræða eru auglýst skv. lögum og starfsreglum. En tímabundin
störf og tilraunaverkefni til eins árs eða skemur er ekki skylt að auglýsa. Þær aðstæður
koma líka upp þar sem sjálfseignastofnanir sem vilja kalla og ráða prest til starfa hafa
augastað á ákveðnum einstaklingi og starfið er einfaldlega miðað við þá persónu og
enga aðra. Erfitt er að standa gegn slíku og ég held reyndar að það sé styrkur fýrir
kirkjuna að vera sveigjanleg í þessum efnum.
4. Fyrirspurn frá Jóni Helga Þórarinssyni
Hefur komið til umræðu á kirkjuþingi eða í kirkjuráði að setja lög eða starfsreglur um
fjármál sókna í þá veru að ef skuldastaða sóknar færi yfir ákveðin mörk af árlegum
tekjum gæti kirkjuráð skipað sérstakan fjárhaldsmann við hlið sóknamefndar til að
tryggja að tök náist á fjarhag safnaðarins, svipað því og félagsmálaráðuneytið gerir
varðandi sveitarfélög sem búa við erfiðan fjárhag?
Svar biskups
I eldri starfsreglum um sóknir var gert ráð fyrir ákveðnu ferli sem skyldi eiga sér stað ef
sókn lenti í fjárhagsörðugleikum þannig að til vandræða horfði. Boðað átti til
safnaðarfundar þar sem sóknamefnd gerði söfnuði grein fyrir stöðu mála. Prófastur
væri boðaður á þann fund. Teldi prófastur ástæðu til að styrkja fjármálastjóm
safnaðarins hafði hann heimild til að skipa tvo fulltrúa sem starfaði með fulltrúa
kirkjuráðs meðan verið væri að koma málum í réttan farveg.
Akvæði þetta öðlaðist gildi 1. janúar 2000. Síðan þá hafa nýjar starfsreglur tekið gildi
og fýrra ákvæði fellt brott.
Sóknamefiidir og hlutaðeigandi prófastar vildu helst hafa milliliðalaus samskipti við
Kirkjuráð í þessum málum en ekki fara þá leið sem starfsreglumar kváðu á um.
Kirkjuráð lagði þess vegna til að ákvæðið yrði afnumið og þessi mál leyst eftir
aðstæðum hverju sinni. Vinnsla mála var talin auðveldari með þessum hætti og meira
mið tekið af aðstæðum hverju sinni.
Fjármál sókna em oft til umfjöllunar í kirkjuráði. Starfandi er sérstakur fjármálahópur
kirkjuráðs sem starfar fýrir ráðið milli funda að ýmsum atriðum er varða fjármál
kirkjunnar og einstakra kirkjulegra aðilja. Fjármálahópurinn gerir tillögur til ráðsins um
úrlausn. Oftast er um að ræða beiðni um ábyrgðir í tengslum við skuldbreytingar og/eða
vaxtalækkanir.
Kirkjuráð vill leita allra leiða til að aðstoða og leiðbeina sóknum varðandi fjárfrekar
framkvæmdir og erfiða fjárhagsstöðu. Kirkjuráð hefur samþykkt leiðbeinandi reglur
varðandi umsóknir í Jöfiiunarsjóð sókna, stofnað hefur verið ábyrgðardeild í
Jöfiiunarsjóði sókna sem getur létt undir með sóknunum. Þá hefur kirkjuráð ráðið í
hlutastarf formann bygginga- og listanefiidar, Jóhannes Ingibjartsson,
byggingatæknifræðing, sem umsjónarmann með verklegum framkvæmdum hjá sóknum
og stofnunum kirkjunnar svo og ráðið verkefiiastjóra til að liðsinna sóknamefndum um
111