Peningamál - 01.02.2003, Side 11

Peningamál - 01.02.2003, Side 11
Engar afgerandi vísbendingar eru um framvind- una næstu misseri. Slaki í einkaneyslu í viðskipta- löndunum gæti grafið undan verðinu, en minnkandi framboð vegið á móti. Almennt er þó ekki talið að niðurskurður aflaheimilda hjá Evrópusambandinu muni hafa umtalsverð áhrif á fiskverð, nema þá helst á ferskum fiski.8 Jafnvel er talið óvíst hvort áhrifin, ef einhver, verði til hækkunar eða lækkunar. Ekki er heldur talið að aukið fiskeldi muni hafa umtalsverð áhrif á fiskverð á næstunni.9 Hins vegar er hugsan- legt að veruleg hækkun hrávöruverðs á heimsmark- aði, t.d. landbúnaðarvöru, sé jákvæð fyrir verðlag íslenskra sjávarafurða, einkum mjöls og lýsis. Álverð er enn lágt, en hefur hækkað nokkuð frá því í haust. Að undanförnu hefur tonnið kostað meira en 1.400 Bandaríkjadali, sem aðeins gerðist tvívegis á sl. ári. Botnfiskaflinn í nóvember og desember sl. var heldur slakari en á sama tíma árið áður og var svip- aður eða slakari en árið 2001 flesta mánuði frá sl. vori. Um vorið var aflinn hins vegar mun meiri en árið áður vegna truflana af völdum verkfallsátaka vorið 2001. Fyrir utan desember 2002, sem var tölu- vert betri en desember 2001, var uppsjávaraflinn einnig slakari síðari hluta ársins, en mjög mikill afli fyrri hluta ársins olli því að aflinn á árinu öllu varð 9% meiri. Að því er önnur ytri skilyrði þjóðarbúsins snertir er útlitið að sumu leyti neikvætt. Ófriðarblikur og átök hafa leitt til hækkunar olíuverðs, sem fyrr segir. Frá janúar 2002 til jafnlengdar í ár hækkaði olíu- og bensínverð um ríflega 70%. Verðið á olíu- og bensíni var í lok janúar 2003 tæpum þriðjungi hærra en að meðaltali sl. ár. Framvirkir samningar benda til þess að búist sé við að olíuverð haldist hátt fyrsta fjórðung þessa árs en lækki því næst um rúmlega fjórðung, en bensínverð lækki ekki að marki fyrr en á þriðja fjórðungi ársins. Verð annarrar hrávöru hefur einnig hækkað töluvert að undanförnu úr lægð undanfarinna ára og gæti leitt til hækkunar á verði aðfanga til iðn- aðar, en óvíst er um áhrif þess á samkeppnisstöðu. Á heildina litið voru ytri skilyrði þjóðarbúsins nokkru slakari seinni hluta sl. árs. Aflabrögð voru heldur lak- ari, útflutningsverðlag dalaði á heildina litið og olíu- verð hækkaði töluvert undir lok ársins. Eftir að hafa dalað nokkuð sl. sumar, var útflutn- ingur nokkuð mikill í september og október. Þessi þróun á rót sína að rekja til fyrrgreindra sveiflna í aflabrögðum. Fyrstu ellefu mánuði sl. árs jókst vöru- útflutningur um 8% að magni, þar af jókst útflutn- ingur sjávarafurða um tæplega 6%. Þjónustu- útflutningur á þriðja ársfjórðungi 2002 var hins vegar um 4% minni á föstu gengi en á sama tíma árið 2001. Veikari útflutningur á þriðja fjórðungi sl. árs leiddi til samdráttar í landsframleiðslu Vegna þess hve ytri skilyrði þjóðarbúsins voru góð á árinu 2001 og fyrri hluta sl. árs hélt landsframleiðsla áfram að vaxa, þrátt fyrir verulegan samdrátt þjóðar- útgjalda. Á þriðja fjórðungi sl. árs var útflutningur í heild hins vegar litlu meiri en ári áður, sem leiddi til þess að landsframleiðslan á ársfjórðungnum dróst saman um 1½% frá fyrra ári. Á sama tíma dró úr samdrætti einkaneyslu, en samdráttur fjármuna- myndunar jókst. Lægð í útflutningi á þriðja fjórðungi ársins má rekja til sveiflna í aflabrögðum annars vegar og sam- dráttar í útflutningi þjónustu hins vegar. Raungengi fór einnig hækkandi en hefur tæpast átt verulegan hlut að máli, enda er raungengið tiltölulega nálægt meðalstöðu síðustu tíu ára. Hækkun raungengis miðað við hlutfallslegt verðlag frá þriðja fjórðungi 2001 til jafnlengdar 2002 var 9,3% og síðan hefur raungengið hækkað enn frekar, eða um 3½%.10 Hækkun raungengis er farin að skila sér í minni framlegð útflutnings- og samkeppnisfyrirtækja. Framlegð sjávarútvegsfyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands lækkaði úr 28% í 21% milli ára. Þetta er þó enn mjög góð framlegð og áætlanir fjár- málafyrirtækja gera ráð fyrir svipaðri framlegð á þessu ári, sem nægir fyllilega til að halda uppi öflug- um útflutningi ef afli verður nægur. Nokkuð liggur fyrir af gögnum sem nota má til að ráða í framvinduna í þjóðarbúskapnum á síðasta 10 PENINGAMÁL 2003/1 8. Ýmsir telja að niðurskurður aflaheimilda muni hafa neikvæð áhrif á markaðinn, þar sem neytendur kynnu að álíta að allur fiskur væri í útrýmingarhættu. 9. Ekki er talið að samkeppni frá eldisfiski, sem fyrst og fremst er lax, leiði til verðlækkunar á villtum fiski til skemmri tíma litið, því að staðkvæmd milli eldistegunda og t.d. þorsks eða ýsu er ekki talin mikil. Aukist framboð eldisþorsks og annarra botnfisktegunda úr eldi, eins og horfur eru á, má hins vegar fastlega búast við aukinni verðsamkeppni. Talið er að þorskeldi muni gefa allt að 700 þús. tonn árlega eftir u.þ.b. 10-15 ár. 10. Raungengi miðað við hlutfallsleg laun hækkaði um rúm 11% frá þriðja ársfjórðungi 2001 til fyrsta fjórðungs þessa árs.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.