Peningamál - 01.02.2003, Blaðsíða 34

Peningamál - 01.02.2003, Blaðsíða 34
verður fullráðið í allar stöður. Áætlað er að það muni taka um hálft ár að ná fullum afköstum í starfsemi verksmiðjunnar. Síðla árs 2007 mun starfsemin hafa náð fullri framleiðslugetu. Áætluð framleiðslugeta hins nýja álvers er 322 þús. tonn en nærri lætur að álframleiðsla á Íslandi aukist um rúmlega 120% frá árinu 2002. Mikilvægi áls sem útflutningsvöru eykst til mikilla muna. Á árinu 2002 nam útflutningur áls um 19% af vöruútflutningi og útflutningur sjávarafurða um 62%. Álverð var tiltölulega lágt á síðasta ári og spáð er að það muni hækka nokkuð þegar líða tekur á þennan áratug. Þegar framleiðsla í álveri Alcoa verður hafin að fullu í lok árs 2007 og að gefnu óbreyttu verði 2002, mun hlutfall áls í vöruútflutn- ingi nema um 30% og sjávarafurða minna en 50%. Ef gengið er út frá því að álverð hækki eins og spár gera ráð fyrir verður hlutfall áls í útflutningi nokkru hærra undir lok þessa áratugar en að ofan greinir. Undan- farin ár hefur útflutningur áls numið rúmlega 5% af VLF. Þetta hlutfall mun hækka mjög þegar álverið í Reyðarfirði tekur að fullu til starfa. Þá má ætla að hlutfall útflutnings áls af landsframleiðslu verði komið í rúmlega 10%. 3. Efnahagsleg áhrif stóriðjuframkvæmda Í þessum kafla verður fjallað almennt um efnahags- leg áhrif álvers- og tengdra raforkuframkvæmda og er þá byggt á almennri hagrænni greiningu og alþjóð- legri reynslu. Í síðari köflum verður síðan reynt að leggja talnalegt mat á þessi áhrif með því að nota líkön af íslenska þjóðarbúinu eða einstökum hlutum þess sem Seðlabankinn ræður yfir. Þegar áhrif stóriðjuframkvæmda af þessu tagi eru metin er mikilvægt að gera greinarmun á skamm- tímaáhrifum byggingar orkuvera og álbræðslna annars vegar og langtímaáhrifum af starfrækslu þeirra hins vegar. Áhrifin á byggingartíma felast í mikilli fjárfestingu sem fjármögnuð er með erlendu fé. Umtalsverður hluti fjárfestingarinnar felst í inn- flutningi á vélum og tækjum af ýmsu tagi, en einnig verður hreint gjaldeyrisinnstreymi sem notað er til að fjármagna notkun innlendra framleiðsluþátta. Því verður mikil aukning eftirspurnar á innlendum vöru- og vinnumarkaði. Þessi áhrif eru hins vegar tíma- bundin. Á máli hagfræðinnar er því hér um tíma- bundinn eftirspurnarhnykk að ræða. Stjórn peninga- mála þarf stöðugt að glíma við eftirspurnarhnykki. Það sem gerir þennan óvenjulegan er að hann er hlut- fallslega mjög stór og er fyrirséður. Til að skilja betur eðli áhrifanna á byggingar- tímanum má benda á að áhrif stórrar erlendrar lán- töku sem notuð væri til nánast hvaða framkvæmda sem er, jafnvel þótt þær bættu engu við framleiðslu- getu þjóðarbúsins, eru í eðli sínu þau sömu. Það sem skilur hins vegar á milli eru langtímaáhrifin. Þegar álverið hefur framleiðslu er ný framleiðslugeta tekin í notkun og útflutningsframleiðsla eykst. Á máli hag- fræðinnar styrkist framboðshlið hagkerfisins og á gömlu íslensku máli fáum við búhnykk. Þetta er að vísu með þeim fyrirvara að nægilega stór hluti útflutningsteknanna falli til innlendra aðila vegna raforkusölu til álversins, vinnulauna, skatta og kaupa þess á innlendri þjónustu, til að vega á móti kostnaði við öflun þeirra. Útflutningur eykst varanlega, eða a.m.k. í marga áratugi. Sterkt langtímasamband hefur verið hér á landi á milli útflutnings- og þjóðartekna og þær ættu því að aukast samfara auknum útflutn- ingi. Þá má skilja þessi langtímaáhrif þannig að útflutningur á áli og sú orkuöflun sem til hans þarf verði framleiðnari starfsemi en sá atvinnurekstur sem kann að verða rutt úr vegi til að finna þessari starf- semi rými í hagkerfinu. Hér kann reyndar að skipta máli hvernig til tekst með hagstjórn og varðveislu stöðugleika á byggingartímanum. Því betur sem þar tekst til, því jákvæðari verða langtímaáhrifin þar sem framleiðnar útflutnings- og samkeppnisgreinar verða fyrir minna hnjaski. Í þessum viðauka verður ekkert talnalegt mat lagt á langtímaávinning þessara framkvæmda. Til að gera það að gagni þyrfti m.a. að skoða arðsemi virkjunar- framkvæmda sérstaklega. Ástæðan er sú að erlent eignarhald á álverinu en innlent á virkjuninni gerir það að verkum að langtímaávinningurinn fyrir þjóð- ina veltur m.a. á því hvernig arðsemin skiptist á milli þessara þátta. Auk þess þyrfti að meta í hvaða mæli framleiðni og raunlaun hækka sakir þess að nýju greinarnar eru framleiðnari en þær sem rutt er úr vegi. Þá hefur hér einnig áhrif hvernig staðið er að skattlagningu þessarar starfsemi og fleiri atriðum. Seðlabankinn hefur ekki á þessu stigi upplýsingar til að leggja sjálfstætt mat á þessa þætti. Það er auk þess meira í samræmi við hlutverk bankans að hann veiti því forgang að meta áhrifin á byggingartíma, enda bregst peningastefnan við þeim áhrifum en ekki hinum. Fyrirliggjandi athuganir, svo sem á arðsemi PENINGAMÁL 2003/1 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.