Peningamál - 01.02.2003, Side 43
42 PENINGAMÁL 2003/1
Gengi krónunnar styrktist ...
Töluvert innstreymi erlends gjaldeyris og væntingar
um stórframkvæmdir á næstu árum ollu umtalsverðri
styrkingu íslensku krónunnar. Þótt ekki sé vitað
nákvæmlega um ástæður innstreymis er vitað um
stórar lánahreyfingar og einnig eru spákaupmenn
komnir aftur á stjá, þótt þeir séu varkárari en oft áður.
Frá byrjun nóvember til loka janúar styrktist íslenska
krónan um 6,6%. Vísitala gengisskráningar var skráð
121,36 í lok janúar 2003 og var það svipað gildi og
um miðjan febrúar 2001. Veiking Bandaríkjadals
gagnvart öðrum gjaldmiðlum hefur valdið því að
gengi hans fór niður fyrir 80 krónur 13. janúar sl. en
það gerðist síðast 18. ágúst 2000. Hæst var gengi
Bandaríkjadals skráð gagnvart íslensku krónunni
110,39 hinn 23. nóvember 2001. Mynd 1 sýnir þróun
vísitölu gengisskráningar frá septemberbyrjun og eru
merktir inn á hana þeir dagar þegar Seðlabankinn
hefur keypt gjaldeyri. Velta á gjaldeyrismarkaði
hefur verið mismikil, meðalveltan á dag var um 3,6
ma.kr. á tímabilinu frá 1. september til loka janúar og
er það nærri daglegri meðalveltu síðasta árs. Eins og
sést á mynd 2 hafa verið allmiklar sveiflur á við-
skiptum og ef litið er framhjá stökum kaupum Seðla-
bankans 14. janúar er ljóst að viðskipti bankans hafa
verið óveruleg sem hlutfall af veltu markaðarins.
... þrátt fyrir kaup Seðlabankans á gjaldeyri ...
Seðlabankinn hefur frá byrjun september keypt 1½
milljón Bandaríkjadala tvisvar í viku og frá
10. janúar hefur þessi sami skammtur af gjaldeyri
Fjármálamarkaðir og aðgerðir Seðlabankans1
Krónan styrktist
1. Í þessari grein eru notaðar upplýsingar sem tiltækar voru þann
31. janúar 2003.
Gengi íslensku krónunnar hefur haldið áfram að styrkjast þrátt fyrir að Seðlabanki Íslands hafi tvisvar
lækkað vexti í lok ársins 2002, auk þess sem bankinn keypti gjaldeyri á markaði, bæði reglulega og í
einum stórum skammti í janúar. Seðlabankinn hætti að greiða þóknun til viðskiptavaka á gjaldeyris-
markaði um áramót og breytti reglum um gjaldeyrismarkað til mótvægis. Vextir óverðtryggðra lána
lækkuðu eftir vaxtalækkanir Seðlabankans og verðtryggðir vextir lækkuðu einnig en minna.
Lausafjárstaða banka var rúm til áramóta en einhver þrýstingur hefur verið á laust fé frá áramótum.
Vaxtamunur við útlönd hefur minnkað á síðustu mánuðum, aðallega vegna innlendrar vaxtalækkunar.
Hlutabréfa- og skuldabréfaviðskipti í Kauphöll Íslands voru alllífleg á síðasta ári og verð hlutabréfa
hækkaði nokkuð um áramótin. Viðskipti voru einnig lífleg í janúar.
September | Október | Nóvember | Desember | Janúar |
120
122
124
126
128
130
132
134
31. des. 1991=100
Mynd 1
Vísitala gengisskráningar
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Daglegar tölur 2. september 2002 - 31. janúar 2003
(punktarnir sýna þá daga sem Seðlabankinn keypti gjaldeyri)