Peningamál - 01.02.2003, Side 69

Peningamál - 01.02.2003, Side 69
68 PENINGAMÁL 2003/1 því hvort þau voru framkvæmd fyrir eða eftir víkkun vikmarka árið 2000 og afnám þeirra 2001. Sem dæmi má nefna eru áhrif tiltölulega lítilla inngripa sem ná t.d. einungis yfir einn dag og eru framkvæmd fyrir víkkun vikmarka árið 2000 β00 en áhrif sambærilegra inngripa eftir að gengi krónunnar fór á flot β00+β01+β02. Með sama hætti eru áhrif inngripa sem vara í þrjá daga sam- fleytt og nema stærri upphæð en meðalupphæð inn- gripa eftir að gengi krónunnar fór á flot β00+β01+β02 +β1+β2. Ef inngripin ná að styrkja gengi krónunnar eða draga úr veikingu hennar ætti samtala stikanna í hverju tilfelli fyrir sig að vera jákvæð. Að lokum er gefinn möguleiki á því að víkkun vikmarka árið 2000 og afnám þeirra 2001 hafi haft bein áhrif á gengis- vísitöluna, þótt ekki sé líklegt að slík áhrif séu fyrir hendi. Sömuleiðis er gefinn möguleiki á því að gengis- breytingar séu að meðaltali frábrugðnar fyrsta við- skiptadag eftir frídaga. Seinni jafnan lýsir ákvörðun gengisflökts krón- unnar sem látið er ráðast af sömu þáttum og breytingar gengisvísitölunnar sjálfrar. EGARCH-líkanið gefur möguleika á því að gengisstyrking og -veiking hafi mismunandi áhrif á flökt gengisvísitölunnar. Ef γ2 > 0 eykur gengislækkun flökt gengisvísitölunnar meira en gengishækkun. Þetta gæti t.d. endurspeglað trú mark- aðsaðila á því að Seðlabankanum væri verr við gengis- lækkanir en -hækkanir. Fræðileg líkön gefa til kynna að θ < 0 þar sem áhrif undirliggjandi efnahagsþátta á gengi gjaldmiðla innan vikmarka fara minnkandi eftir því sem gengið nálgast vikmörkin (sjá t.d. Brandner, Grech og Stix, 2001). Einnig má búast við því að flökt krónunnar hafi aukist þegar vikmörkin voru víkkuð og loks afnumin 2001. Erlendar rannsóknir benda einnig til þess að flökt í gengi gjaldmiðla aukist í kjölfar opn- unar markaða eftir frídaga þar sem upplýsingar hafa safnast upp sem síðan er verslað út á þegar markaðir eru opnaðir aftur. Áhrif inngripa á flökt gengisvísi- tölunnar túlkast með sama hætti og áhrif inngripa á gengisvísitöluna sjálfa. Taflan sýnir lokamat EGARCH-líkansins. Ein- ungis endanlegt mat er sýnt, þ.e. þar sem ómarktækir stikar hafa verið fjarlægðir (staðalfrávik, leiðrétt með aðferð Bollerslevs og Wooldridge, eru í sviga). Matið á endanlega líkaninu gefur til kynna að gengi krónunnar veikist að meðaltali daginn eftir inn- grip Seðlabankans til styrkingar krónunni. Það gefur til kynna að inngripin hafi ekki náð að koma í veg fyrir veikingu krónunnar. Þó virðist það vænlegra til árang- urs ef inngripin eru stór eða ná yfir nokkra daga. Áhrif- in á flökt krónunnar eru nokkuð mismunandi eftir því hvort inngripin eru fyrir eða eftir víkkun og afnám vik- marka. Fyrir víkkun vikmarka virðist sem stór inngrip hafi náð að draga úr flökti en eftir víkkun þeirra hafa inngrip að meðaltali aukið gengisflökt, þó minna eftir að krónan fór á flot. Áhrifin á flökt eru áfram minni ef inngripin eru tiltölulega stór. Mat á EGARCH-líkani fyrir gengisvísitölu 1. janúar 1998 - 31. desember 2001 Stikar Skýringar Stikamat α0 Fasti í gengisjöfnu ............................................................................................................... 0,013 (0,006) ** β00 Áhrif inngripa á gengi ......................................................................................................... -0,201 (0,047) *** β1 Viðbótaráhrif inngripa ef inngrip ná yfir þrjá daga............................................................. 0,099 (0,018) *** β2 Viðbótaráhrif inngripa ef inngrip eru stór ........................................................................... 0,106 (0,049) ** ω0 Fasti í flöktjöfnu .................................................................................................................. -1,719 (0,333) *** ω2 Viðbótarflökt eftir að gengi krónunnar fer á flot ................................................................ 1,086 (0,269) *** γ1 Áhrif gengisbreytinga á flökt .............................................................................................. 0,412 (0,087) *** γ2 Ósamhverf áhrif gengisbreytinga á flökt............................................................................. 0,194 (0,065) *** γ3 Tafin flöktáhrif..................................................................................................................... 0,557 (0,103) *** λ01 Viðbótaráhrif inngripa eftir víkkun vikmarka ..................................................................... 2,234 (0,695) *** λ02 Viðbótaráhrif inngripa eftir að krónan fer á flot ................................................................. -1,032 (0,611) * λ2 Viðbótaráhrif inngripa ef inngrip eru stór ........................................................................... -0,812 (0,199) *** log L ............................................................................................................................................. -56,929 Staðalfrávik leiðrétt með aðferð Bollerslevs og Wooldridge í svigum. *** (**) [*] táknar marktækan stika frá núlli miðað við 1% (5%) [10%] öryggismörk.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.